blaðið - 11.05.2006, Blaðsíða 34

blaðið - 11.05.2006, Blaðsíða 34
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2006 blaðið FKUMSÝHWG \ ÁLFABAKKA ’&m míé Ml:3 KL 4-5:20-3*10:40 Ml:3 VIP KL 5:20-8-10:40 | SCARY MOVIE 4 KL 4-6-8-10:10 FAILURE TO LAUNCH KL 4-6-8-10:10 FIREWALL KL 6:30-8:30-10:40 I VFORVENDETTA KL8 | WOLFCREEK KL 10:40 . LASSIE KL6 | BAMBI 2 KL4 IGLUNNI^— sAAaaámá KL 5:30-8-10:40 KL 6-8-10 KL 5:30-8-10:40 smtinn^ Bló MISSION IMP0SSIBLE 3 W.9og 11 B114ÁRA MISSION IMPOSSIBLE 31LÚXUS W.9B.L14ÁRA RAUÐHETTA ENSKT TAL W. 8og10 PRIME W. 8 B116ÁRA THE HILLS HAVE EYES W.108116ÁRA ICE AGE 2 W.8ENSKTTAL REGUBOOinn RAUÐHETTA ENSKT TAL W. 6,8og10 RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL W. 6 PRIME W. 5.30,8 og 10.30 B116ÁRA THE HILLS HAVE EYES W. 8og 10.30B116ÁRA WHEN A STRANGER CALLS W. 6,8og 10 B116ÁRA MISSION IMPOSSIBLE 3 B114ÁRA W. 5.30,8 og 10.20 INSIOE MAN W. 530,8 og 10.20 8116 ÁRA RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL W. 6 RUNNING SCARED W.8B116ÁRA LUCKY NUMBER SLEVIN W. 10.208116 ÁRA hlurTfttrlhtn kl.8og10.20BX18ÁRA RAUÐHETTA (SLENSKT TAL kl. 6 LUCKY NUMBER SLEVIN kl.8og10B.L16ÍRA fSÖLD 2 kl. 6 ÍSLENSKT TAL 34 I AFPREYIIUG__________ Kœrkominn Innherji Inside man_______________ Leikstjóri: Spike Lee. Aðalleikarar: Denzel Washington, Cli- ve Owen, Jodie Foster, Willem Defoe og Christopher Plummer. Lengd: I29mínútur. Bandaríkin 2006 ★ ★★★ Eftir gúrkutíð í kvikmyndahúsum að undanförnu kemur Innherji Spike Lee eins og kallaður. Hinn eitursnjalli Dal- ton Russell (Owen) fer fyrir glæpa- mönnum sem fremja þaulhugsað bankarán og taka gísla í stórum banka á Wall Street. Lögreglumað- urinn Keith Frazier (Washington) er settur í það verk að bjarga gíslunum og leggur sig allan fram, enda lítur hann á verkefnið sem stökkpall til æðri framtíðarstarfa. Þegar banka- stjórinn Arthur Case (Plummer) og hin dularfulla Madeline White (Foster) fara að snuðra óeðlilega mikið í kringum málið fer Frazier hins vegar að gruna að ekki sé allt sem sýnist. Innherjinn er ólík öllu sem Spike Lee hefur gert áður en þetta hlið- arspor hans verður að teljast afar vel heppnað. Lee á margar góðar myndir að baki og hefur nú, öllum að óvörum, bætt hasarmynd um banka- rán og gíslatöku í sitt rósum fyllta hnappagat. Atriði tengd árekstrum ólíkra kynþátta í bandarísku sam- félagi, sem löngum hafa verið aðals- merki Lees, eru þó ekki langt undan. Þau eru þó fyrst og fremst matreidd með góðum húmor og verða aldrei á nokkurn hátt yfirþyrmandi, eins og hefur viljað brenna við. Leikarahópurinn er í einu orðisagt frábær. Clive Owen er stórskemmti- legur í hlutverki glæpamannsins og tekst vel að fá áhorfandann til þess að hreinlega vona að honum takist ætlunarverk sitt. Owen hefur sér- stakan leikstíl og ferst einkar vel úr hendi að túlka kynlegar persónur á skoplegan en mannlegan hátt. Jodie Foster leysir hlutverk hinnar dular- fullu ísdrottningar af stakri prýði og snillingurinn Willem Defoe leikur lögregluvarðstjórann John Darius með annarri hendi. Kremið á kö- kunni er þó Denzel Washington sem er hér að leika í sinni fjórðu mynd með Spike Lee og hefur sjaldan verið betri. Handritið er vel skrifað og flétt- urnar koma mátulega á óvart. Sam- tölin eru sérstaklega skemmtileg og myndin er uppfull af dásamlegum einlínungum (e. oneliners). Innherj- inn er í senn spennandi og snjöll kvikmynd en menn eru þó ekkert að taka sig of alvarlega. T.a.m. fær okkar maður, Frazier, að tala dóna- lega við kerlu sína og útúrdúrinn með albanska túlkinn er kostulegur. 1 því liggur einmitt stærsti kostur myndarinnar. Þó að gloppur leyn- ist vissulega í sögunni koma þær alls ekki að sök, því Innherjanum er fyrst og fremst ætlað að vera skemmtun og tekst það prýðilega. Björn Brngi Arnarsson bjorn@bladid.net Mæður ættu að læsa dætur sínar inni því Bones Brigade ætla að eigin sögn að stela kvenfólki landsins. Hljómsveitin kemur við I Reykjavík og á Akranesi í heimsókn sinni. Bones Brigade rœöst til atlögu Blaðinu hefur borist tilkynning frá Bandarísku hljómsveitinni Bones Brigade sem er væntanleg til lands- ins á morgun: „Brjálceðingar á íslandi! Við komum frá Bandarikjunum til að stela kven- fólkinu ykkar, drekka áfengið ykkar og skvetta úr skinnsokki okkar ofan í hverina ykkar. Við munum móta hjólabrettapalla úr jöklunum ykkar og einnigspila tónlist." Bones Brigade mun spila á tveimur tónleikum hér á landi. Annars vegar í Hinu húsinu á morgun, föstudag, ásamt íslensku hljómsveitunum I Adapt, Fighting Shit og Morðingj- unum. Húsið opnar Jdukkan 18 og aðgangseyrir er 500 krónur. Hins vegar kemur sveitin fram á Akranesi, á Ægisbraut 9. Þar munu sveitirnar Raw Material, Gavin Portland, Death Metal Superssquad og Oak Society sjá um upphitun. Aðgangseyrir er sem fyrr 500 krónur. í tilkynningu frá aðstandendum tónleikanna segir að Bones Brigade sé „hrikalega öflug tónleikasveit". Enn fremur segir að meðlimir sveitar- innar séu „snarklikkaðir hjólabretta- gaurar' sem spila blöndu af pönki, rokki og þungarokki. Bones Brigade hefur verið þekkt fyrir að breiða yfir lög hljómsveita á borð við Iron Mai- den, Slayer og Minor Threat svo að enginn pönkari, rokkari eða þunga- rokkari ætti að vera svikinn. atli@bladid.net FM91.9 BEYKJAVÍK Afmœlistón- leikar Bubba Bubbi Morthens heldur stórtónleika í Laugardalshöll þann 6. júní í tilefni af 50 ára afmæli sínu þann dag. Á tónleikunum, sem bera yfirskriftina 06.06.06, ætlar Bubbi að líta yfir far- inn veg og flytja tónlist frá ferlinum undanfarin 26 ár, allt frá fyrstu árunum með Utangarðsmönnum til dagsins í dag. Á þriðja tug tónlist- armanna koma fram með Bubba á tónleikunum. Bubbi Morthens hefur allt frá 1980 verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins en hann á að baki fleiri seldar plötur á íslandi en nokkur annar tónlistarmaður. Vinsældir hans hafa verið ótvíræðar en um leið hefur hann verið einn umdeildasti tónlistarmaður íslenskrar rokksögu. Hann hefur starfað í nokkrum af vinsælustu rokkhljómsveitum lands- ins eins og Utangarðsmönnum, Egó, Das Kapital og GCD sem hafa sent frá sér fjölmörg lög og breiðskífur. Stiklað á stóru Bubbi hefur ennfremur sent frá sér íjölda platna á eigin vegum sem hann mun gera skil á tónleikunum, ýmis einn á sviðinu með kassagítar í hendi eða með hljómsveit sér til að- stoðar. Má þar nefna plötur á borð við Fingraför, Kona, Sól að morgni, Frelsi til sölu, Von og Sögur af landi. Tónleikarnir spanna því ólík tímabil og eru merkisviðburður í íslenskri tónlistarsögu. Undirbúningur fyrir tónleikana, sem eiga að spanna þrjár klukku- stundir, hefur staðið yfir undanfarna mánuði enda er markmiðið að gera þá sem best úr garði. Meðal annars er búið að ná saman meginþorra þeirra tónlistarmanna sem hafa starfað með Bubba í hljómsveitum og öðrum verkefnum undanfarin 26 ár. Það má því gera ráð fyrir skemmtilegum end- urfundum og frábærri afmælisveislu. Bakhjarlar tónleikanna eru Og Vod- afone og Glitnir. Almenn miðasala er nú hafin í öllum verslunum Og Vodaf- one og á www.ogvodafone.is. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, Bubbi Morthens, og Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og Vodafone. Hvaðerað gerast? Blaðið vill endilega fjalla um atburði íðandi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladid.net. 17.00-Fundur Dennis McNamara: Flóttamenn í eigin landi Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegur 42 17.00 - Fyrirlestur Prófessor Lynn Jamieson við Edin- borgarháskóla: Families - Chang- ing Intimacy? Oddi stofa 101 19.30-Tónlist Gul tónleikaröð. Sinfóníuhljóm- sveit Islands Háskólabíó Miðasala á midi.is 20.00-Tónlist TÍBRÁ. íslensk þjóðlög. Kliður fornra strauma. Steindór Ander- sen, Sigurður Rúnar Jónsson og Bára Grímsdóttir Salurinn Miðasala á midi.is 22.30 - Leiklist Pörupiltar Borgarleikhúsið Miðasala á midi.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.