blaðið - 11.05.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 11.05.2006, Blaðsíða 20
 Tjö&reyttur matseðíff úr jersku firáejní Á matseðli Hereford er úrval gómsætra rétta sem gestir staðarins geta valið úr og notið þess að snæða í notalegu og rólegu umhverfi. Maturinn er framreiddur af sérstakri kostgæfni og kjötið er sérvalið og verkað að óskum matreiðslu- meistara staðarins. Verðlagið er líka eitthvað sem allir ættu að ráða við enda er Hereford steikhús þekkt fyrir að bjóða upp á vín með matnum á mun hagstæðara verði en þekkist á öðrum veitingastöðum. Á matseðli Hereford má finna marga ljúffenga rétti. Forréttirnar eru fallega fram bornir og bragðið svíkur engan. Matargestir geta valið á milli Nauta-carpacio með klettasalatspesto og parmesan osti, hvítlauksristaðra snigla og sjávarréttasúpu svo eitthvað sé nefnt. Eins er í boði gómsætt Gorgonzola frauð með plómutóm- ötum og basil klettasalati, kjúk- lingalifrar parfait með sultaðri papriku og súkkulaðikryddsósu eða Laxahrogn á blinis og súrs- aðri lauktvennu, fyrir þá sem vilja bragða á gómsætum og fram- andi réttum. í aðalrétt er hægt að velja á milli gæðasteika úr úrvals hrá- efni. Nautið og kálfakjötið bráðna undir tönn og lambakjötið og kalkúnalundirnar eru ferskar og safaríkar. Gestir hússins geta valið á milli þess að fá bakaðar eða franskar kartöflur með steikinni og steikt grænmeti fylgir með réttunum. Eins eru í boði eru Bernaise- og piparsósa ásamt hvítlaukssmjöri. Steikurnar eru bragðmiklar enda sérvaldar og látnar meyrna til fulls eftir óskum yfirmatreiðslu- meistara Hereford steikhúss. Fyrir þá sem kjósa fisk í stað kjöts þá býður staðurinn upp á gómsæta grillaða túnfisksteik eða ljúffengan lax með sítrónu og kóríander olíu, grillaðan kónga- krabba og ljúffengan humar. Eftirréttir Hereford steikhúss eru umtalaðir. Þar er hægt að velja á milli créme brúlée, volgrar epíaböku með kanilís og vanillu- sósu eða kaldrar mangó súpu með hindberjaís sem er toppuð með Grand Marnier. Eins geta gestirnir fengið sér fersk jarðaber með myntukrapi og krydduðu rommi á heitum sumarkvöldum eða volga súkkulaðiköku með chili marineruðum ananas sem svíkur engan. Á vínlistanum er úrval gæða- vína frá öllum helstu vínekrum jarðar og ættu matgæðingar því ekki að eiga í erfiðleikum með að finna rétta vínið með steikinni. Eins hafa þjónarnir hjá Hereford góða þekkingu á vínunum og geta því auðveldlega leiðbeint við- skiptavinum um val á víni með matnum. Á Hereford steikhús er lögð áhersla á góða steik með frábæru víni og að málsverði loknum er um að gera að fá sér eðalkaffi og Armagnac sem er frá sam- nefndu héraði í suðvesturhluta Frakklands en Hereford steikhús hefur að bjóða marga árganga af þessum eðaldrykk. Á Hereford eru allir miðviku- dagar rifjadagar. Þá má fá rif og stóran bjór á milli kl. 17 og 20 á aðeins 1.990 kr. Rifin eru sérstak- lega meðhöndluð og marineruð af matreiðslumönnum Hereford og eru einstaklega bragðgóð. Frá fimmtudegi til sunnudags er boðið upp á glæsilegan þriggja rétta matseðill fyrir aðeins 5.200 kr. og er því um að gera að lyfta sér aðeins upp á virkum dögum og njóta góðs matar og gæða víns á Hereford steikhús. 'céur dttoui j/ FERSKAR KJÖnrVÖRUR II II 11 ÍSLANDS ÍSLANDS ISLANDS NAUT LAMB GRÍS j* - •• -t

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.