blaðið - 11.05.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 11.05.2006, Blaðsíða 10
10 I FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2006 blaðiö Þýskum fílum fjölgar Bou Bou, tæplega þriggja mánaða gamall, fíll, hélt sig nálægt mömmu sinni, Veri, þegar hann kom í fyrsta sinn fyrir augu almennings í gær. Bou Bou fæddist f dýra- garði í bænum Hodenhagen i norðurhluta Þýskalands þann 23. mars síðastliðinn. Fílsunginn átti t erfiðleikum með að fóta sig til að byrja með en eflaust má rekja það til þess að fílar eru ekki skapaðir frá náttúrunnar hendi til þess að stunda leik og störf í Þýskum bæjum. Jarðvegsþjöppurá „samanþjöppuðu" verði Dæmi: PC 1442 Shatal jarðvegsþjappa Stærð plötu: 400 x 550 mm Þyngd: 80 kg Mótor: Hondn bensin 5,5 hö Miöflóttaafl á plötu: 1400 kg ^ Mesti hradi áfram: 26 m/min Vibratiðni: 93 Hz Hfe 120.190«: Mikið úrvai af jarðvegsþjöppum MÚRBÚÐIN Byggingavöruverslunin iÁrbænum Kletthálsi 7 • Slmi: 544-5470 • sala@murbudin.is ■ www.murbudin.is MÚRBÚÐIN Húsavík Indónesar vilja miöla málum í kjarnorkudeilu Hugmyndir lagðar fram í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna að íranir fái viðskiptaívilnanir gegn því að þeir setjist til samninga. Hassan Wirajuda, utanríkisráðherra Indónesíu, tekur á móti Mahmoud Ahmadinejad, for- seta frans, á flugvellinum í Jakarta í gær. Stjórnvöld í Indónesíu hafa boðist til að miðla málum í kjarnorkudeilu Ir- ana og alþjóðasamfélagsins. Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Ind- ónesíu, kom þessum skilaboðum á framfæri í gær við hinn íranska starfsbróður sinn, Mahmoud Ahm- adinejad, sem nú er í þriggja daga opinberri heimsókn í Indónesíu. Yudhoyono sagði á fundi með fréttamönnum i höfuðborginni, Jak- arta, að hann vonaðist til að unnt yrði á finna friðsamlega lausn á deil- unni. Klerkastjórnin í íran sætir nú vaxandi þrýstingi vegna kjarnorku- áforma sinna sem fullyrt er að eigi sér eingöngu borgaralegan tilgang; ekki sé i ráði að koma upp búri ger- eyðingarvopna. Alþjóðasamfélagið með Bandaríkjastjórn í broddi fylkingar hefur efasemdir um að áform írana séu friðsöm og hefur því verið lýst yfir að aldrei verði samþykkt að stjórnvöld í íran komi sér upp atómvopnum þvert á gerða samninga. Viðskiptaívilnanir gegn samningum Bandaríkjamenn beita sér nú fyrir því að samþykkt verði á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna harðorð ályktun þar sem því verði lýst yfir að gripið verði til refsiað- gerða láti stjórnvöld í íran ekki af kjarnorkuáætlun sinni. Gagnrýni þessa láta klerkarnir í fran sem vind um eyru þjóta. Raunar er það svo að slík ályktun á vettvangi öryggisráðsins myndi ekki sjálfkrafa kalla refsiaðgerðir yfir írana. Um slíkt þyrfti að semja sérstaklega á vettvangi öryggisráðs- ins þar sem Rússar og Kínverjar þráast við að samþykkja ályktun um kjarnorkuáform klerkanna í Teheran. Bæði rikin eiga mikilla viðskiptahagsmuna að gæta. Fréttir bárust að því í gær að Bandaríkjamenn, Frakkar og Bretar væru reiðubúnir að leggja fram tillögu sem myndi veita Irönum hagstæðar viðskiptaívilnanir gegn því að þeir snúi aftur að samninga- borðinu. Talið er að þetta útspil geti sannfært Kínverja og Rússa um að samþykkja harðari ályktun í örygg- isráðinu fallist klerkastjórnin ekki á fyrra tilboðið. Talið er að rætt verði um þessa útfærslu næstu tvær vikurnar og fyrr er ekki tíðinda að vænta. Aukin samskipti milli íran og Indónesíu Indónesía er fjölmennasta múslima- ríki heims. Viðskipti við íran eru umtalsverð m.a. á sviði orkumála. Iranar hafa lagt milljarða dollara í fjárfestingar í Indónesíu einkum á sviði olíu- og gasvinnslu. Bæði hafa ríkin lýst yfir því að þau vilji stuðla að auknum tvíhliða viðskiptum. Er gert ráð fyrir að forsetarnir, þeir Ahmadinejad og Yudhoyono, und- irriti margvíslega samninga um aukin viðskipti á meðan á heim- sókn þess fyrrnefnda stendur. I ráði er m.a. að reisa olíuhreinsunarstöð á eyjunni Jövu. Hassna Wirajuda, utanríkisráð- herra Indónesíu, sagði í gær mik- ilvægt að íranar veittu fyllri upp- lýsingar um kjarnorkuáætlunina. Hins vegar kvað hann fyrir liggja að sérhver þjóð ætti rétt á því að smíða áætlanir um borgaralega nýtingu kjarnorku samkvæmt al- þjóðasamningum. Vísaði hann þar til NPT-sátmálans um bann við út- breiðslu kjarnorkuvopna en innan ramma hans eru slíkar rannsóknar- áætlanir heimilar. Sérfræðingar telja litlar líkur á að stjórnvöld í Indónesíu beiti Irana og Ahmadinedjad forseta miklum þrýstingi vegna kjarnorkuáætlunar- innar. Þrátt fyrir að stjórnvöld telji að þau geti miðlað málum í deilunni sé ljóst að þau séu á milli tveggja elda; ráðamenn vilji gjarnan sefa reiði Evrópumana og Bandaríkj- anna gagnvart Irönum en jafnframt þurfi þeir að hafa í huga að styggja ekki eigin landsmenn þar sem mús- limar eru í miklum meirihluta. Yiltu stofna fyrirtæki ...og læra að reka það með góðum hagnaði Tfmasetning skiptir öllu Skráning q Kynningarfund eró www.rekstrarmidiun b Nýtt og spennandi verkeíni - Enginn stofnkostnaður - Val um rekstrarleiðir - Eigin viðskiplaþjálfi - Vönduð kennslugögn - Glæsileg kennsluaðstaða - 20 ára víðskiplakerfi - Nánari upplýsingar á kynningarfundum www.rekstrarmidlun.is - Skeifan llb, Reykjavík - frumkvodlaskolinn@rekstrarmidlun.is Dýr sjálfs- morðstilraun Þýskur maður á fimmtudags- aldri hefur verið dæmdur af dómstól í Múnchen til þess að standa kostnað af þeim skaða sem misheppnuð tilraun hans til sjálfsmorðs olli. Maðurinn ætlaði að kasta sér fyrir lest en tímsetningu hans var ábótavant. I stað þess að lenda í veg fyrir lest- ina lenti maðurinn á glugga lest- arstjórans á hlið fremsta vagns- ins. Fékk maðurinn skrámur og mar á andlitið en engin alvarleg meiðsli við áreksturinn. Vagnstjóri lestarinnar fékk taugaáfall vegna atburðarins og var frá vinnu í margar vikur. Yfirvöld í Munchen fóru í mál við hinn seinheppna Þjóðverja og var hann dæmdur til að borga 240 þúsund krónur í bætur vegna vinnutaps vagn- stjórans og skemmda á glugga lestarvagnsins. Reuters

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.