blaðið - 01.06.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 01.06.2006, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2006 blaöið 10 TT 'jr r| »1 fululiAii Sumarstarf Árbœjar- safns Mikið verður um að vera í Ár- bæjarsafni í sumar að venju. í dag hefst sumarstarf safnsins og verður það opið alla daga frá klukkan ío til 17. Alla sunnu- daga í sumar verður boðið uppá sérstaka viðburði og má m.a. nefna fornbíladag, harmóniku- hátíð og heyannir að gömlum sið. Næstkomandi sunnudag koma Fáksmenn í heimsókn á safnið og þá verður guðsþjón- usta í gömlu torfkirkjunni klukkan 11. Þann 16. júní næstkomandi opna tvær nýjar sérsýningar í safninu. Annars vegar- „Hús- gerð höfuðstaðar - Saga bygg- ingartækninnar" og hins vegar sýningin „Diskó og pönk“. Aðgangseyrir er 600 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er inn á safnið á föstudögum. Nýtt upphaf - ný ævintýri Viðopnum 2. júní Bjartir dagar i Hafnarfirði Listahátíð Hafnarfjarðar verður settformlega í dag. Boðið verður uppá fjölbreytta dagskráfyrir alla aldurshópa. Lögð verður áhersla á börn, ung- linga og fjölmenningu á Björtum dögum, lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar. Hátíðin verður sett formlega í dag en þá verður einnig útnefndur bæjarlistamaður Hafnar- fjarðar þetta árið. Fjórða árið í röð Boðið verður upp á fjölbreytta dag- skrá fyrir alla aldurshópa á Björtum dögum, lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar. Hátíðin verður sett formlega í Hásölum klukkan 16 í dag og mun hún standa í tíu daga eða til sunnudagsins 11. júni. Þetta er fjórða árið í röð sem boðið er uppá sérstaka listahátíð í Hafnarfirði. 1 þetta sinn verður sérstök áhersla lögð á börn, unglinga og fjölmenn- ingu. Tekur dagskráin mið af þessum áherslum ogmá t.a.m. finna mikið af efni sem höfðar beint til barna og taka þau einnig virkan þátt í mörgum atburðum. Þannig munu leikskólabörn í Hafnarfirði skreyta fyrirtæki og stofnanir með verkum sínum og þá munu þrír hafnfirskir söngvarar sýna barnaóperuna Bastien og Bastienne eftir Mozart í Hafnarfjarðarleikhúsinu á morgun svo fátt eitt sé nefnt. Laugardagurinn 3. júní verður sérstaklega helgaður fjölmenningu en þá verður m.a. opið hús hjá ný- búadeild Lækjarskóla þar sem boðið verður upp á fjölmörg skemmtiat- riði. Um kvöldið verður svo haldin söngvakeppni hinna mörgu tungu- mála í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Keppnin er haldin í samstarfi við Alþjóðahúsið en í henni mega þátt- takendur hvorki syngja á móður- máli sínu né ensku. Hefst keppnin klukkan 20. Á setningarhátíð lista- og menningarhátfðar Hafnarfjarðar í dag mun blokkflautukór Áslandsskóla leika nokkur lög undir stjórn Rann- veigar Hafberg. Dagskrá listahátíðarinnar tekur sérstakt mið af börnum og unglingum. Sinna öllum aldurshópum Að sögn Marínar Hrafnsdóttur, dag- skrástjóra listahátíðarinnar, höfðar dagskráin til allra aldurshópa. Hún segir markmiðið að skapa skemmti- lega hátíð þar allir geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. „Við erum að sinna öllum aldurshópum. Augljós- lega með tilliti til þema hátíðarinnar er mikið af dagskráratriðum fyrir börn.“ Marín segir mikið af innflytj- endum í Hafnarfirði og því hafi verið ákveðið að leggja sérstaka áherslu á fjölmenningu í þetta skiptið. „Um 6% íbúa Hafnarfjarðar eru innflytj- endur. Þetta er hærra meðaltal en á landsvísu. Þar sem þetta á að vera menningarhátíð fyrir alla bæjarbúa fannst okkur því eðlilegt að leggja áherslu á fjölmenninguna.“ Þá segir Marín ókeypis inn á flesta viðburði hátíðarinnar. „Það er undantekning ef það kostar inn. Við reyndum að hafa ókeypis inn á sem flesta viðburði og það kostar ekkert inn á barnaviðburði. Það eru aðeins á einstaka viðburðum í Hafn- arfjarðarleikhúsinu þar sem krafist er aðgangseyris og í einstaka öðrum undantekningartilvikum.“ 1 dag eru einnig 98 ár síðan Hafn- arfjarðarbær fékk kaupstaðarrétt- indi. Tekið verður sérstakt tillit til þess á setningarhátíðinni í dag þegar Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, setur hátíðina formlega. Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar verður útnefndur og veittir verða tveir hvatningarstyrkir til listamanna. LAGERHILLUR Til sölu notaðar lagerhillur úr stáli. Um er að ræða hillur á ca 150 ferm gólffleti á tveimur hæðum ca 220 cm á hæð x 2. Hentar fyrir varahluti eða alls konar vörur í þeim dúr. Selst á staðnum til niðurtektar eða niðurtekið. Verðtilboð óskast í allann pakkan. Upplýsingar í síma 896 0599 eða 899 2844. Hægt að skoða á staðnum. www. n uddpottar. is Glæsilegir rafhitaðir nuddpottar frá Californiu verð frá 399.000 til 490.000 Rúmgóðir og djúpir nuddpottar frá 13001. til 17001. Njóttu sumarsins í nuddpotti frá nuddpottar.is Hvað er betra en að liggja í heitum nuddpotti og njóta sumarkvöldsins Við hjá nuddpottum.is viljum óska öllum okkar viðskiptavinum til hamingju með sína glæsilegu potta KÍKTUÁ HEIMASÍÐU 0KKAR www.nuddpottar.is Fastagestir frumflytja Baróperu á Grand Rokk Björgúlfur Egilsson er einn af þremur höfundum óperunnar Baróperan sem frumflutt verður á listahátíð Grand Rokks næstkomandi laugardag. Um sextán leikendur taka þátt í verkinu og leikið verður undir á kontrabassa, gítar, mandólín og banjó. Boðið verður uppá frumsamda óperu á listahátíð Grand Rokks sem hefst í dag. Verkið verður frumflutt á laugardaginn en það eru fasta- gestir barsins sem sömdu óperuna sérstaklega fyrir listahátíðina. Franskur listamaður Listahátíð Grand Rokks hefst form- lega í dag klukkan 18 með uppá- komu franska Fluxuslistamannsins Robert Filliou. Fjölmargir listamenn úr ólíkum listgreinum taka þátt í hátíðinni en henni lýkur næstkom- andi sunnudag með stórtónleikum hljómsveitarinnar Hjálma á efri hæð Grand Rokks. Þetta er í fimmta skiptið sem Grand Rokk blæs til listahátíðar en hátíðin einkennist af fjölbreyttri dagskrá þar sem blandað er saman ólíkum listgreinum. Á morgun föstudag mun m.a. jasshljómsveitin Flosason Koppel Quintett spila og á laugardaginn verður frumflutt ný ópera sem fastagestir Grand Rokks hafa sérstaklega samið fyrir lista- hátíðina. Um er að ræða verkið Bar- óperan eftir þá Jón Benjamín Eiríks- son, Björgúlf Egilsson og Magnús Einarsson. 1 verkinu taka þátt 16 leikendur en það fjallar á gaman- saman hátt um lífið á barnum. Hefst sýningin klukkan 16. Strax á eftir mun Inferno 5 svo fremja gjörning- inn Sársauka óperan. Á meðan á listahátíðinni stendur verður boðið uppá lifandi list á neðri hæðinni. Þar munu listamenn smám saman skapa listaverk en hægt verður að kaupa endanleg verk á sérstöku uppboði sem fer fram á sunnudaginn. Ókeypis aðgangur Að sögn Þorsteins Þórsteinssonar, verta á Grand Rokk, er hátíðin fyrst og fremst haldin til að skapa tilbreyt- ingu. „Við erum að þessu til að hafa gaman af og skapa tilbreytingu. Þá leiðist fastagestum okkar ekki að fá tækifæri til að gera eitthvað annað en drekka bara bjór. Hátíðin er að mestu unnin af þeim og þeir standa á bak við flestar uppákomur.“ Þorsteinn segir aðgang ókeypis á alla viðburði nema tónleika Hjálma á sunnudaginn. Frekari upplýsingar um dagskrá listahátíðar Grand Rokks má finna á vefsíðunni www. grandrokk.is.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.