blaðið - 01.06.2006, Blaðsíða 34
34 I AFPREYING
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2006 blaöiö
ÁLFABAKKA
P0SEID0N KL 3:40-5^0-8-10:10
POSEIDONV KL3rfO&504-10:10
X-MEN3 KL 3:30-5:45-8-10:20
AMENCAN DREAMZ KL 3^0-5:45-8-10:20
SHAGGYDOG KL1-40-550
Ml:3 KL 1-40^8-1050
SCARY MOVIE 4 KL8:15-10:10
KRINGLUNNI
SáMMmk
POSEIDON KL 6-8:15-10:30
AMERICAN DREAMZ KL 8-10:10
Ml:3 KL 8-10:30
SHAGGYDOG KL6
SCARYM0V1E4 K16
KEFLAVlK
-S4MMW
POSEIDON KL8-10
X-MEN3 KL8
THE DAVINCICODE KL 10:10
AKUREYRI
ÍUKtl Kl v
sAMmmt
BPOSEIDON KL 7-9-11
THE DA VINCI CODE KL 6-8-10
SHAGGYDOG KL6-8
-
7
smáRH^ bíú
X-MEN3BJ. 12ÁRA
kl. 5.40,8 og 10.20
DAVINCICODE
kl. 4,5,7,8,10og 11 B.I.14ÁRA
DA VINCICODE ÍUJXUS
kl. 5, 8 og 11 B.l. 14ÁRA
RAUÐHETTA ENSKT TAL
kl. 6 og 8
RAUÐHETTA (SLENSKT TAL
kl. 3.50
ÍSÖLD2
kl. 4 ÍSLENSKT TAL
CRYW0LF
kl. 10B.1.16ÁRA
REGrwoGmn
X-MEN 3
kl. 6,8.30 og 10.50 B.l. 12 ARA
DAVINCICODE
kl. 6 Og 9 B.I.14ÁRA
CRYW0LF
kl. 8BJ. 16ÁRA
RAUÐHETTA ENSKT TAL
kl. 6og 10
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl.6
PRIME
kl. 8og 10.15 B.L16ÁRA
X-MEN3
kl. 6,8 og 10.10 B.L 12ÁRA
DAVINCIC0DE
kl.6og9B.l. 14ÁRA
BANDIDAS SlÐUSTU SÝNINGAR
kl. 6og10.20 B.I.10ÁRA
INSIDEMAN
kl. 8B.I16ÁRA
Híir íftirbm
X-MEN 3 B.1.12 ÁRA
kl. 6,8og 10
DAVINCIC0DE
kl. 6og 9B.1.14ÁRA
Mugihljómsveit þenur sína sál
Um daginn voru tónleikar Mugison
og hljómsveitar í Austurbæ á Lista-
hátíð 2006. Mugison er vanur því
að vera eins manns her en kom nú
fram í fyrsta sinn með sína eigin
hljómsveit. Fyrir utan Mugison
þá skipa hljómsveitina Arnar Geir
Ómarsson, trommuleikari, og Guðni
Finnsson, bassaleikari, meðal ann-
ars meðlimir Dr. Spock, sem spila
með „Isfirsku alþýðuhetjunni" sem
fór suður og ilengdist.
Kynin kyrja
Mugihljómsveit byrjaði á því að láta
karlmenn og konur kyrja og salur-
inn átti þannig heiðurinn að því að
hafa tekið þátt í flutningi á laginu
„Sad as a Truck“, sem er reyndar
eitt af mínum uppáhaldslögum af
Mugimama-plötunni. Það verður að
viðurkennast að ég er ekki sérlegur
aðdáandi gagnvirkrar skemmtunar,
eiginlega þvert á móti, en þetta slapp
fyrir horn og var skemmtileg byrjun
á tónleikunum.
Kraftur og elja
Síðan hóf Mugihljómsveit flutning
sinn af miklum móð og það er virki-
lega gaman að vera á tónleikum
þar sem maður skynjar að það er
verið að leggja líf og limi í flutning-
inn en ekki bara að ljúka þessu af.
Hvað þetta varðar er Mugison með
skemmtilegri tónlistarmönnum
landsins og nýtur nú sterkrar lið-
veislu frá mönnum með kraft og elju
ef svo má að orði komast.
Ég var gjörsamlega heillaður af
trommuleik kvöldsins sem náði loka-
hnykk í laginu „Let's go dancing"
þar sem húðirnar voru strýktar til
blóðs. Reyndar var allur hljóðfæra-
leikur frábær og reglulegar gítarstill-
ingar voru skemmtilegt innlegg í tón-
leikana. Án þeirra hefðu gestir ekki
fengið að heyra hina stórkostlegu
belgísku-kúkasögu en þess er vænt-
Mugison er kominn með verðuga hljómsveit.
anlega ekki lengi að bíða að allir upp-
rennandi tónlistarmenn hafi allir
skitið á sig á einhverjum tónleikum,
í einhverju krummaskuði.
Margt til lista lagt
En ef maður hélt að Mugison og
hans ótrúlegi hringvöðvi væri há-
punktur kvöldsins þá tóku við atriði
sem geta ekki talist síðri. Guðni söng
lagið um plötuna hans Páls, sem var
pöntuð að utan og endaði ævi sína í
kjaftinum á ketti Páls. Eins og með
allan aldagamlan, ódauðlegan skáld-
skap þá er allt á reiki með hver sé höf-
undur ljóðsins um plötu Páls. Guðni
söng þetta hátt og snjallt rétt eins og
barn með hæfileika þegar mamma
og pabbi fá gesti og vilja monta sig
af arfleifð sinni. Mjög skemmtilegt
lag og fantagóður flutningur. Addi
trommuleikari hermdi síðan eftir
því hvernig hljóð heyrist þegar létt-
bjór er þambaður (ekki þessi sterk-
ari sem fæst víðs vegar í sérvöldum
búðum um allt land). Þessum
mönnum er þannig ýmislegt til lista
lagt og ekki skemmir það fyrir.
Mugihljómsveit spilaði að
minnsta kosti tvö ný lög sem hljóm-
uðu virkilega vel. Frekar hressandi
lög en ég tel Mugison (og núna Mugi-
hljómsveit) takast best upp í kraft-
miklum lögum þar sem Mugi þenur
sál sína.
Tvískipt útsetningin á „murr murr“
var mjög flott þar sem fyrst var blús-
aður rólyndiskafli en því síðan snúið
Blaðiö/Steinar Hugi
upp í argasta kántrí með tilheyrandi
gleði. Mugihljómsveit tók síðan úr-
val af lögum Mugison og sló aldrei
feilnótu og ekkert skorti heldur upp
á sviðsframkomuna.
íslenskur ástaróður
Eins og vill oft verða á tónleikum
var Mughljómsveit klöppuð upp og
til að þakka fyrir flutti Mugihljóm-
sveit íslenskan ástaróð. Haganlega
smíðaður textinn virtist lýsa hefð-
bundnu starfi ísfirsks heimilis-
læknis sem elskar starf sitt. Hann
þráði einungis djúpið og að fá að
kíkja aðeins inn í þig.
jon@bladid.net
Ofurhetjuhasar
Kvikmyndir
Birgitta Jónsdóttir
The Dude
Leikstjóri: Brett Ratner
Aðalhlutverk: Patrick Stewart, Hugh Jack-
man, lan McKellen, Halle Berry,
Lengd: 144mínútur
Aldurstakmark: 12 ára
Bandaríkin 2006 ★ ★★
Ég er haldin teiknimyndaáráttu.
Les frekar teiknimyndir en að horfa
á sápuóperur og hef ekki lengur tölu
yfir hve margar útgáfur af X-Men ég
hef lesið og þar af leiðandi skiptir
mig litlu máli hvaða söguþræði er
fylgt eða hvort að persónurnar séu
nákvæmlega eins og í einhverri
tiltekinni sögu. Finnst aðalmálið
við kvikmyndir sem byggðar eru
á teiknimyndasögum að þær nái
ákveðnum hughrifum, áferð og síð-
ast en ekki síst að þær nái að blása
lífi í söguhetjurnar og gera þær
spennandi.
Fyrstu tvær X-Men myndirnar
hafa náð þeim árangri að mig langar
að sjá þær aftur og mun X-Men 3
án efa bætast í DVD safnið mitt.
Auðvitað er söguþráðurinn hvorki
djúpur né flókinn enda átti ég ekki
von á því. Það sem er styrkur þess-
arar myndar er að hún er þétt, alltaf
eitthvað að gerast sem fangar athygli
manns og heldur henni út alla mynd-
ina. Einhversstaðar heyrði ég meðal
þeirra sem elska hasarmyndir að
þetta væri hasarmynd ársins. Ég leit
í það minnsta aldrei á klukkuna á
meðan á henni stóð.
Það er alveg hægt að sjá þessa
Hin klassíska barátta á milli ills og góðs heldur áfram
mynd án þess að hafa séð hinar tvær
X-Man myndirnar, hún stendur sem
sjálfstætt verk. Það er nokkuð áber-
andi að ekki er sami leikstjórinn við
stjórnvöllinn á þessari og hinum
tveimur og alþekkt að Singer hefur
sérstakt lag á að láta teiknimynda-
sögur lifna við á hvíta tjaldinu, Mér
finnst nýja leikstjóranum Ratner
takast að búa til eitthvað sem ég er
sátt við. Eina sem fer kannski í taug-
arnar á mér er hve ömurleg og fyrir-
sjáanleg flest samtölin eru.
Ógnarafl í endurrisinni persónu
Sagan gengur út á hið sígilda stríð
milli góðs og ills, þó að maður geti
á vissan hátt haft ákveðna samúð
með Magneto (lesist vondi gaurinn)
og málstað hans. Lyfjarisi kynnir
lyf til sögunnar sem gefur þeim
sem hafa stökkbreytta genið í sér
tækifæri á að læknast og verða eins
og “venjulegt” fólk. Auðvitað bregð-
ast ekki allir þeir sem hafa þetta
ofurgen í sér vel við því að litið sé
á þá og þeirra einstöku eiginleika
sem sjúkdóm. Eigandi lyfjafyrirtæk-
isins er pabbi Englastráksins. Per-
sónusköpunin er oftast flott nema
að mér finnst Englastrákurinn ekki
alveg vera að gera sig þó að væng-
irnir hans séu mjög fallegir. Hann
er bara allt of litlaus. Flottasta per-
sónan er Fönixinn, óheft ógnarafl í
endurrisinni persónu Jean Grey og
uppgjörsatriðið á milli hennar og
Xavier er ógleymanlegt. Það var eitt-
hvað einstaklega sorglegt við það að
sjá sumar persónurnar læknast, þó
að þær hefðu verið bláar eða brodd-
gölltóttar, siðlausar eða saklausar.
Fyrir þá sem vilja lesa eða kynn-
ast þessum söguhetjum þá er Borg-
arbókasafnið með mjög gott úrval af
sögum um X-Men.
birgitta@bladid.net
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net
10.00-Ráðstefna
Skyn(sam)leg rými - rými, list
og umhverfi
Hafnarhúsið
12.15 -Málstofa
Peter Hennessy, University of
London og Guðni Th. Jóhannes-
son, Háskóla íslands: Málstofa
um þorskastríðin
Hátíðarsalur Háskóla íslands
19.00-Tónlist
Andspyrnuhátíð: Innvortis, I ad-
apt, Severed Crotch, Finnegan,
Morðingjar og Raw Material
Tónlistarþróunarmiðstöðin
20.00 - Leiklist
Fullkomið brúðkaup
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00-Leiklist
NAGLINN
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00-Tónlist
Tónleikar í tilefni af Worldwide
Awerness deginum. Benny Cres-
po’s Gang, Bob Justman, Red
Cup, Ég, Aggi Lights og Shadow
parade
Gaukurá Stöng
21.00-Tónlist
Anders Widmark og Carmen
Nasa við Austurvöll