blaðið - 09.06.2006, Side 10

blaðið - 09.06.2006, Side 10
10IFRÉTTIR FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 blaöiö Schwarzenegger engan veginn öruggur með sigur í Kaliforníu Kjósendur í Kaliforníu kunna að snúa baki við ofurhetjunni og vöðvatröllinu í ríkisstjórakosn- ingunum í nóvember. Hótanir demókrata um skattahækkanir gætu þó riðið baggamuninn. BlaSit/Frikki Læknanemar mótmæla í anddyri Landspítalans við Hringbraut. Læknanemar mættir til vinnu Læknanemar mættu til vinnu i gærmorgun eftir að samkomulag náðist í kjaradeilu læknanema og yfirstjórnar Landspítala-há- skólasjúkrahúss í gær. Stjórft spítalans lagði fram tilboð á fundi með fiilltrúum læknanem- anna sem þeir samþykktu eftir að hafa borið samninginn undir samnemendur sína. Lækna- nemar á fjórða og fimmta ári mótmæltu í anddyri LSH við Hringbraut í gær til að vekja athygli á kjaradeilu sinni. Þeir mættu ekki til vinnu þann í. júní eins og reiknað hafði verið með þar sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir kjaraskerðingu fyrr á árinu. Arnold Schwarzenegger, vöðvatröll og ofurhetja, kann að eiga í erfið- leikum með að tryggja sér endurkjör í ríkisstjórakosningunum sem fram fara í Kaliforníu í haust. Almennt hafði verið talið að Schwarzenegger myndi tæpast lenda í vandræðum þótt vissulega hafi gengið á ýmsu hjá honum í embætti. Andstæðingur hans verður fjármálaráðherra Kali- forníu og ólíkir eru þeir um flest; fjármálaráðherrann hefur tæpast yfirbragð ofurhetju, ber gleraugu og hikar ekki við að lýsa yfir því að skattarnir verði hækkaðir nái hann kjöri. En Schwarzenegger er í vörn. Frammistaða hans síðasta árið hefur farið illa í marga kjósendur og repúblikanar eiga víða undir högg að sækja i Bandaríkjunum þessa dagana. Forsetinn George W. Bush slær nú flest met í óvinsældum og efasemdir aukast um stríðið í frak. Haldi fram sem horfir gæti Schwarzenegger þurft á öllu sínu að halda i kosningunum í nóvember. Mark nokkur DiCamillo, þekktur sérfræðingur á sviði skoðanakann- ana í Kaliforniu, telur að keppinaut- arnir séu þvi sem næst jafnir nú. <millifs>Mislukkuð herför gegn opinberum starfsmönnum íbúar Kaliforníu virðast orðnir heldur þreyttir á hinum heimsfræga leiðtoga sinum. 1 fyrra varð ríkis- stjórinn fyrir þungu höggi er hann ákvað að leggja til atlögu gegn opin- berum starfsmönnum í Kaliforníu. Þeir brugðust við árásinni með því að efna til mikillar auglýsingaher- ferðar gegn Schwarzenegger sem varð til þess að draga mjög úr vin- sældum hans. Samtök opinberra starfsmanna styðja nú andstæðing hans, Phil Angelides. Sérfræðingar segja að ætli Schwarzenegger sér sigurinn i haust verði hann að byggja nýtt bandalag að baki sér. Hann þurfi að ná til sín \\\\\\\\\\\\\\\\\\\\\\> Gerir þú kröfur ? HM í beinni! Vandaðurbúnaður Tilvalinn fyrir heimilið eða sumarbústaðinn FIFA WORIDCUP GeRmftnY 2006 Eico, alltaf flottastir! Kr. 19.900,- iiiiniiiiiili eoe Pakki fyrir fríar rásir % www.eico.is SKÚTUVOGI 6 SÍMI 570 4700 Arnold Schwarzenegger rfkisstjóri flytur kosningaræðu á kaffihúsi einu í bænum Chico í Kaliforníu. Reuters að minnsta kosti þriðjungi atkvæða kjósenda sem eiga rætur sínar að rekja til rómönsku-Ameríku. Þessir kjósendur sneru baki við Schwarze- negger i fyrra þegar hann stóð í ill- deilum við opinbera starfsmenn og lofaði mjög starfsemi Minutemen, borgaralegra samtaka sem tekið hafa að sér gæslu á landamærum Kaliforníu í þeim tilgangi að hefta straum ólöglegra innflytjenda. Schwarzenegger er nú tekinn að búa sig undir kosningarnar og leggur áherslu á að fara sem víðast til að breiða út boðskap sinn. „And- stæðingar okkar tala um framtíð- ina - við erum að skapa framtíðina,“ sagði hann m.a. í ræðu er hann flutti í Redding í Norður-Karólínu. Ýmislegt hefur þó gengið ríkis- stjóranum í hag að undanförnu. Þing Kaliforníu þar sem demókratar eru í meirihluta hefur lýst yfir stuðn- ingi við áætlun hans sem borin verður undir atkvæði í Kaliforníu um leið og kosningarnar fara fram. Skatttekjur reyndust meiri en gert hafði verið ráð fyrir og þá fjármuni vill ríkisstjórinn nýta til að bæta menntakerfið. Hefur þetta mælst vel fyrir. Forkosningar demókrata vegna ríkisstjórakjörsins í haust kost- uðu hatrammar deilur í röðum þeirra sem einnig er talið gagnast Schwarzenegger. Vinsældir hans hafa enda aukist ef marka má skoð- anakannanir. I könnun sem dag- blaðið The Los Angeles Times birti nýverið mældist stuðningur við hann 49% og hefur hann ekki verið meiri um nokkra hríð. Þá kváðust 54% svarenda hafa „jákvætt álit“ á Schwarzenegger. Ekki taka þó allir þessar tölur hátíðlegar og bent er á að stuðningur við ríkisstjórann hafi iðulega mælst rétt rúmlega 40%. Það hlutfall er talið innan hættumarka fyrir hvern þann sem sækist eftir endurkjöri. Phil Angelides, andstæður Schwarzeneggers, á kosningafundi í Los Angeles. Beuters Víðsfjarri meginstraumnum Angelides hefur heitið því að hækka skatta hinna ríku og boðar að þeim fjármunum verði varið til að bæta skóla. Slík skattheimta mælist frekar illa fyrir í Kaliforníu. Á dög- unum felldu kjósendur i Kaliforníu tillögu þess efnis að hinum auðugu yrði gert að greiða hærri skatta til að unnt reyndist að bæta leikskóla. Schwarzenegger neitar þvi stað- fastlega að hækka skattana og talið er vist að þetta verði kjarninn í mál- flutningi hans fyrir kosningarnar. Kosningastjóri rikisstjórans, Steve Schmidt, segir að andstæðingur, Phil Angelides, sé viðsfjarri meg- instraumi pólitískrar hugsunar í Kaliforníu þegar hann lýsi yfir þeim ásetningi sínum að hækka skatta. Demókratar reyna nú hvað þeir geta til að breiða yfir átökin sem for- kosningar flokksins kostuðu. Ang- elides og helsti keppinautur hans, Steve Westly, komu nýlega saman á ráðstefnu demókrata í Los Angeles og hétu því þá að vinna saman i því augnamiði að fella Schwarzenegger. ,Við munum sigra í þessum kosn- ingum,“ sagði Angelides. „Og við hyggjumst halda áfram og vinna fleiri afrek, við munum skapa styrk- ara og sanngjarnara ríki fyrirbörnin okkar og komandi kynslóðir.“ Westly, sem er auðkýfingur, varði um 35 milljónum dollara í baráttu sína fyrir því að verða útnefndur ríkisstjóraefni Demókrataflokks- ins. Hann vandaði Angelides ekki kveðjurnar og sakaði hann m.a. um margvísleg níðingsverk á sviði um- hverfismála. Almennt er þó talið að demókratar muni ganga samein- aðir til þessara kosninga og að ofur- hetjan úr kvikmyndunum eigi fyrir höndum erfitt verkefni. Upplýsingar og skróning á netinu: www.ulfljotsvatn.is - Kassaklifur - GPS ratleikir - Bátasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastöt/f Fyrir stráka og stelpur 8-l 2 ára - skipt í hópa eftir aldri #/Krassandi útilífscEvintýri - fjör og hópeflisandiT' INNRITUN ER HAFIN - OpiS virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.