blaðið - 09.06.2006, Page 14

blaðið - 09.06.2006, Page 14
14 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 blaöið blaöiAm_ Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: ÁsgeirSverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. UM HVAÐ ER DEILT? Engum blandast hugur um að djúpstæður klofningur er ríkjandi innan Framsóknarflokksins. Öll ummæli forystumanna flokksins staðfesta það. Yfirlýsingar einstakra félaga og hópa innan Fram- sóknarflokksins gera slíkt hið sama. Það virðist ráðast af því hvar í höf- uðborginni menn búa hvort þeir telja að öll forustusveitin eða einungis hluti hennar eigi að víkja í því uppgjöri sem óhjákvæmilegt er innan þessa fyrirtækis. En um hvað deila framsóknarmenn? Lengi hefur legið fyrir að innan flokksins eru starfandi tveir armar; sá sem kenndur er við dreifbýlið og hinn sem reynt hefur að höfða til kjósenda á höfuðborgarsvæðinu. Þegar horft er til sóknarinnar á höfuðborgarsvæðinu er ljóst að hún hefur litlu skilað hvað fylgi varðar. f þéttbýlinu er sú skoðun ríkjandi að Framsókn- arflokkurinn hafi náð umtalsverðum völdum þrátt fyrir að hafa til þess takmarkað umboð. Þetta hefur orðið til þess að styrkja enn frekar þá nei- kvæðu ímynd að þar fari flokkur hentistefnufólks sem eigi sér fáar hug- sjónir og lítt skýra sýn til samfélags, verkefna og veruleika. Guðni Ágústsson, varaformaður og landbúnaðarráðherra, hefur nefnt að ágreiningur hans og Halldórs Ásgrímssonar, fráfarandi forsætisráð- herra og formanns, snúist einkum um svonefnd „Evrópumál“. Þótt Hall- dór Ásgrímsson hafi að vísu aldrei stigið skrefið til fulls leikur tæpast vafi á því að langt er um liðið frá því hann sannfærðist um að íslendingum beri að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Aðild að því fyrirbrigði hefur á hinn bóginn ekki verið á dagskrá núverandi ríkisstjórnar og fullyrða má að þátttaka í samrunaferlinu suður í álfu verði ekki úrlausnarefni þeirra sem með völdin fara á íslandi nú um stundir. Óhugsandi er því að svo valdasæk- inn og sveigjanlegur flokkur sem Framsóknarflokkurinn er klofni vegna þessa máls. Og vitanlega takast menn og armar á innan annarra flokka í þessu landi. Klofningurinn í Framsóknarflokknum er í eðli sínu bundinn við per- sónur þeirra sem þar ráða nú för. Vissulega hefur afar hófstillt fráhvarf frá þeim þjóðlegu gildum sem núverandi landbúnaðarráðherra telur sig verja skapað einhverja ólgu innan flokksins. En um djúpstæðan hugmynda- fræðilegan ágreining ræðir ekki; persónulegar deilur og þreyta eftir langa valdasetu ræður mestu. Flokkurinn glímir við andleysi, hann skortir er- indi og sífellt fleiri draga umboð hans í efa. Sveigjanleiki miðjustjórnmál- anna hefur kostað flokkinn trúverðugleikann. Átök eru óumflýjanleg áður en Framsóknarflokkurinn kemur fram sem skýr og raunhæfur valkostur í íslenskum stjórnmálum. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík. Aðalsími: 5103700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: (slandspóstur. oo $AMtAKA fVIÍ! £im~TVEjJl...O(ý HOPPA Framsókn þarf að klára sín mál Síðustu dagar hafa verið dálítið sérkennilegir fyrir okkur stjórn- málamenn. Sú atburðarás sem fór af stað með ákvörðun Halldórs Ás- grímssonar um að láta af störfum sem forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins hefur tekið á sig ýmsar og óvæntar myndir og á þessari stundu er of snemmt að spá fyrir um lyktir þeirra mála. Við sjálfstæðismenn höfum verið í þeirri óþægilegu stöðu að horfa á samstarfsmenn okkar til margra ára vega miskunnarlaust hver að öðrum á opinberum vettvangi en erum að sjálfsögðu ekki í neinni aðstöðu til að hlutast til um niður- stöðuna. Við erum að mörgu leyti í sömu stöðu og fólk sem horfir upp á hjónabandserjur hjá nákomnum vinum eða ættingjum - gerum okkur grein fyrir að vandamál eru til staðar og vonum að þau leysist - en höfum á sama tíma hvorki for- sendur né vilja til að blanda okkur í deilurnar. Farsælast að setja niður deilurnar Nú er að sjálfsögðu rétt að hafa ( huga að þetta er ekki í fyrsta sinn sem átök eiga sér stað innan stjórnmálaflokka hér á landi. Allir flokkar hafa fengið sinn skammt af klofningi á einhverjum tímabilum sögu sinnar. Innbyrðis ágreiningur hefur frá upphafi einkennt flokkana á vinstri vængnum og virðist engu máli skipta í því sambandi hversu oft þeir skipta um nöfn, sameinast eða klofna. Sjálfstæðisflokkurinn fékk á árum áður sinn skerf af inn- anflokksvandamálum af þessu tagi og endaði það stundum með því að ákveðnir einstaklingar urðu við- skila við flokkinn, þótt aldrei yrði um eiginlegan klofning að ræða. 1 tilviki Framsóknarflokksins þarf að leita langt aftur til að finna sam- bærileg átök og nú eiga sér stað - trúlega allt aftur til tíma Jónasar Viðhorf Birgir Ármannsson frá Hriflu og stofnunar Bænda- flokksins - því þótt þar hafi menn vissulega tekist á bæði um stefnu- mál og embætti hafa deilurnar ekki orðið jafn opinberar og nú. Sagan segir okkur því að allir stjórnmálaflokkar geta lent í inn- anflokksátökum og þau eru jafnan óþægileg meðan á þeim stendur, en farsæld þeirra til lengri tíma ræðst af því hvernig þeim tekst að leysa úr þeirri stöðu og hvort þeim lánast að greiða úr þeim deilumálum, sem þeir eiga við að stríða. Gott samstarf stjórnarflokkanna Fyrir okkur sjálfstæðismenn skiptir að sjálfsögðu miklu máli að Framsóknarflokkurinn leysi úr vanda sínum eins fljótt og auðið er. Hafa ber í huga að þessir flokkar hafa í ellefu ár átt farsælt samstarf í ríkisstjórn og vandamál Fram- sóknarflokksins ( dag stafa ekki með neinum hætti af árekstrum milli flokkanna. Flokkarnir eru auðvitað ólíkir að mörgu leyti og hafa mismunandi afstöðu til ein- stakra mála, en þeir hafa hins vegar jafnan borið gæfu til að ná sameig- inlegri niðurstöðu í ágreinings- málum. Þeir hafa staðið saman að stjórnarstefnu sem hefur fært þjóð- inni meiri hagsæld og framfarir en dæmi eru um á síðari tímum. Til að varðveita þann árangur þarf ríkisstjórnin á næstu mánuðum að fást við vandasöm verkefni og taka ýmsar umdeildar ákvarðanir og því er nauðsynlegt að hún styðjist við samhentan hóp þingmanna en ekki sundraðan. I því ljósi er lykil- atriði að framsóknarmenn finni leiðir til að setja niður deilur sínar sem fyrst. Höfundur er þingmaður Sjálfstœðisflokksins í Reykjavík. Klippt & skorið klipptogskorid@vbl.is Segja má að bloggarar landsins séu með „framsóknarræpu ana því það er nánast sama hvaða vefsetur er heim- sótt - allir hafa s(na skoðun á máiinu. Þannig segir Jóhanna Sigurðardóttir um málið: „Eiginhagsmunagæsla rekur liðið áfram en ekki velferð lands og þjóðar. Guðni varaformaður er korninn i lykihtööu eftir að Halldór formaður klúðraði málum afþvi hann þekkti ekki orðið sinn eigin flokk. Hann hélt að hægt væri að bjóða flokksfólkinu upp á hvað sem er. Meira að segja að brjóta flokkslög."Sm mörg voru þau orð. „Ég er alvarlega að hugsa um að axla ábyrgð og segja mig úr Framsóknarflokknum. Þannig vil ég sýna myndugleik og taka á mig minn skerfaf óvinsætdum flokksins. Auðvitað er flokkurinn svona misheppnaður vegna þeirra sem eru I honum. Það þýðir ekkert að aðeins einn maður þó gildursé taki pokann sinn, alls ekki. Efeitt- hvað ermáhlýturformaðurinn að hafa verið fremstur meðaljafningja og eðlilegtaö allir hinir flokksmenn- irnir ogþá fyrst varaformaður og ritari axli einnig ábyrgð, nánustu samstarfsmenn hans og ráögjafar. Formaðurinn varjú talinn þeim fremri og hæfari afflokksmönnum og þú losar þig ekki bara við þann hæfasta. Það er að fara úr nærbuxunum á undan utanyfir- buxunum. Með sama hætti má segja að þessi svokallaða landsstjórn ætti að axla ábyrgð. Það var jú eftir fund i landsstjórninni á Þingvöllum aðþetta endemis klúður náði hámarki sínu og auðvitað á miðstjórn flokksins að segja af sér. Hún ber höfuðábyrgð á þessum forystu- mönnum og höfuðábyrgð á stefnu flokksins." Baldur KristjAnsson A www.baldur.is Lögmál réttvísinnar eru oft óútskýran- leg. Kllppari rak til að mynda upp stór augu þegar hann las dóm frá Héraðs- dómi Reykjaness sem kveðinn var upp fyrr í vik- unni. Þar var karlmaður á þrítugsaldri dæmdur til að greiða 70 milljóna króna sekt fyrir „stór- felldar rangfærslur við virðisaukaskattskil" eins og það er orðað í dómnum. Geri hann slíkt ekki verður honum stungið í grjótið í heila sex mánuðil Klippara reiknast það til að við þar hafi hann rúmar 11,5 milljónir króna í tekjur á mánuði, auk þeirra tekna sem hann fær af núm- eraplötugerð. Það þýðir tæpar fjögur hundruð þúsund krónurá dag, sem mynduá einhverjum heimilum landsins þykja þokkalegar tekjur. þessa dag-

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.