blaðið - 27.06.2006, Síða 1
serbiaö um heimiii
og hönnun fylgir
Blaðinu í dag
| SlÐA
■ H£1LSA
■ VlSHUUl
Bandaríkjamenn
einangrast
félagslega
| SÍÐA22
Heimildamynda-
gerð með mynda-
vélasíma
■#m u
| SÍÐA11
Leitaðu tilboða í síma 844 1011 eða á www.thakmalun.is
Friálst,
óháð &
ókeypis!
143. tölublað 2. árgangur
þriðjudagur
27. júní 2006
Hestar allt um kring
Fjöldi ferðamanna flykktist til bæjarins El Rocio í suðurhluta Spánar í gær til að fylgjast með þvi þegar hundruðir villtra mera voru
reknar í gegnum bæinn. Atburðurinn gengur undir nafninu „Saca de yeguas" og fer fram árlega. Þá halda fjölmargir knapar inn í Don-
ana-þjóðgarðinn þar sem þeir safna merunum saman og reka þær yfir í þorpið Amonte.
„Hefði viljað sjá sterk-
ari viðbrögð hjá Alcoa"
Leynd verður ekki aflétt af samningi Landsvirkjunar og Alcoa.
Rætt verður í kjölfarið hvort breyta eigi leyndarreglunni.
■ NEYTENDUR
Seljendur hafa
ríkari ábyrgð
en þeir halda
Seljendur varnings virðast hafa
takmarkaða þekkingu á ábyrgð
sinni þegar kemur að endingar-
tíma dýrari varnings, svo sem
bíla og ísskápa. Kvört-
unarfrestur
neytenda
vegna
slíkrar vöru
er fimm ár
en afarfáir
verslunar-
eigendur
virðast átta
sig á þessu.
| SÍÐA 10
Flóttabjörn
skotinn
Skógarbjörninn Bruno, sem
skotið hefur íbúum í Suður-
Þýskalandi skelk í bringu að
undanförnu, var skotinn til
bana í gær. Björninn hafði
vikum saman flakkað um suður-
hluta Þýskalands þar sem hann
drap húsdýr sér til matar og olli
hræðslu meðal íbúa á svæðinu.
Embættismenn í Þýskalandi
höfðu að undanförnu varað við
bangsa þar sem hann virtist
vera orðinn óhræddur við mann-
skepnuna, þó bangsi hafi ekki
skaðað nokkurn mann.
Nokkrar deilur höfðu sprottið
út af bangsa eftir að yfirvöld
gáfu það út að þau hygðust
skjóta dýrið. Almenningur sem
og dýraverndunarsamtök mót-
mæltu áformum stjórnvalda
harðlega og höfðu nokkur sam-
tök unnið að því að handsama
dýrið með það í huga að bjarga
lífi þess.
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
Leynd yfir orkusölusamningi Lands-
virkjunar (LV) og Alcoa verður ekki
aflétt. Tillaga þess efnis var felld í
stjórn Landsvirkjunar í gær með
þremur atkvæðum gegn tveimur.
Stjórnarformaður LV segir að rætt
verði hvort slíkir samningar verði í
framtíðinni bundnir sömu leyndar-
ákvæðum, en það sé ákvörðun sem
bíði betri tíma. Stjórnarformaður-
inn segir ennfremur að hann hefði
viljað sjá sterkari viðbrögð Alcoa við
því þegar forstjóri fyrirtækisins rauf
trúnað um orkuverðið í brasilískum
fjölmiðlum.
Þrír á móti tveimur
Það voru þau Helgi Hjörvar og Álf-
heiður Ingadóttir, stjórnarmenn í
Landsvirkjun, sem lögðu fram til-
löguna. Hún gerði ráð fyrir að stjórn
Landsvirkjunar samþykkti að fara
þess á leit við Alcoa að trúnaði verði
aflétt svo skýrt væri að Landsvirkjun
hefði fyrir sitt leyti ekkert að fela í
málinu. Tillögunni var hins vegar
hafnað með þremur atkvæðum á
móti tveimur.
„Það setti alvarlegt strik í reikn-
inginn þegar aðalforstjóri Alcoa
rauf í raun trúnað þegar hann fór
að gefa út yfirlýsingar um orku-
verðið í fjölmiðlum í Brasilíu,“ segir
Helgi Hjörvar. „Ég held að það hafi
bæði stjórn og framkvæmdastjórn
Landsvirkjunar þótt mjög óheppi-
legt. Kannski ekki síst í ljósi þess að
þar hafi verið dregin upp mynd af
því að á íslandi sé samið um helm-
ingi lakara orkuverð en tíðkist í
Suður-Ameríku.“
Helgi segir að hann hafi á sínum
tíma greitt atkvæði gegn samn-
ingnum. „Það er ekkert launungar-
mál að mér hefur þótt orkuverðið
vera of lágt. Ég held að það hefði
verið gott að hreinsa andrúmsloftið
með því að létta leyndinni af þessum
samningi. Deilur um þetta mál
munu halda áfram á meðan leyndin
er yfir því,“ segir Helgi. Tillaga
þeirra hafi því gert það að verkum
að það væri undir Alcoa komið hvort
upplýst yrði um verðið eða ekki. „En
meirihlutinn var ekki tilbúinn i það,“
segir hann. „Hér eru opinber fyrir-
tæki að veita mönnum aðgang að
takmörkuðum mengunarkvótum
og takmörkuðum náttúrugæðum
landsins. Menn geta ekki hegðað sér
í þessu eins og um einkafyrirtæki sé
að ræða.“
Helgi segir, að þrátt fyrir að til-
lagan hafi verið felld séu það fleiri en
aðeins flutningsmenn tillögunnar
sem séu hugsi yfir þessari stefnu í
heild sinni.
Skiija sjónarmiðin að baki
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórn-
arformaður Landsvirkjunar, segir
að yfir þessi mál hafi verið farið á
stjórnarfundinum og að þetta hafi
orðiðniðurstaðan. „Isjálfusérskilja
menn þau sjónarmið sem lágu að
baki tillögunni,“ segir hann. „Það
liggur hins vegar ljóst fyrir að í samn-
ingnum er það geirneglt að þetta
skuli vera trúnaðarmál.“ Jóhannes
segir að menn hafi rætt það á fund-
inum hvortþað væri rétt stefna að við-
hafa leynd um innihald svona samn-
inga og hvort því ætti að breyta. „En
það er nýtt ákvörðunaratriði og ekki
er loku fyrir það skotið að það verði
rætt í framtíðinni." Jóhannes Geir
segir að það hafi verið skoðað hvort
leynd yfir svona samningum væri
viðtekin venja annars staðar. „Nið-
urstaðan úr þeirri skoðun var sú að
í miklum meirihluta svipaðra samn-
inga væri verðið ekki gefið upp. Hitt
væri undantekning frá reglunni “
Jóhannes segir að engin ákvörðun
hafi verið tekin um frekari aðgerðir
af hálfu LV vegna ummæla Alcoa-
forstjórans. „Ég get hins vegar alveg
sagt að ég hefði viljað sjá sterkari
viðbrögð hjá Alcoa.“ Hann segir enn-
fremur á hreinu að forstjórinn hafi
ekki farið með rétt mál í viðtalinu í
Brasilíu.
Alvoru Ffallatijól
Sumartilboð
20% afsláttur af öllum
hjólum út þessa viku.
Einnig 20% afsláttur af
öllum hjálmum
Full búð af nýjum hjólum!!
CÁP
FREESTYLE
m
Mlschief BO”
Tyax Comp BB”
Frábært fjallahjól fyrir
kröfuharða
Mntomicro 16”
Frábært barnahjól
fyrir 4-6 ára
Rokadíle
Al R6”
Einnig til með kvk stelli.
FJALLAHJOLABUÐIN
FAXAFENI 7 S: 5 200 200
MÁN-FÖS.KL. 9-18.LAU.10-16
gunnar@bladid.net