blaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 4
NIKON Coolpix P1
8,0 milljón pixlar
Þráðlaus yfiríærsla á tölvu og prentara
3 x aðdráttalinsa (36-126mm)
4 x stafrænn aðdráttur
Ljósopf/2.7-5.2
Val á milli 19 program stillinga
Innbyggt flass með In Camera red-eye fix
2,5" LCD skjár (upplausn 110.000 punktar)
Quicktime videotaka
Innbyggt 32 mb minni
Notar Li-ion rafhlöðu EN-EL8/180 myndir
Hleöslutæki, Þyngd 170 g
Verð kr. 34.900
FYRIR KRÖFUHARÐA
KEFLAVÍK • Sími 421 1535
SMÁRALIND • Sími 530 2900
AKUREYRI • Sími 461 5000
SÍÐUMÚLA 9 • Sími 530 2800
ORMSSON
SJÁ NÁNAR: www.ormsson.is
4IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 blaðiö
VEGAVINNA Á UMFERÐAREYJU Landsmenn hafa tekið eftir því að víða er verið að vinna að endurbótum á götum borgarinnar um þessar mundir. Jarðvegsþjöppur eru meðal annars notað-
arviðslíkverk.
íbúðabyggð í Örfirisey mögu-
leg þrátt fyrir olíutankana
Til stendur að skipuleggja byggð í Örfirisey. Óvíst er hvort eldsneytisbigðastöðin hverfi
þaðan að fullu og kemu til greina að byggt verði í eynni þó tankarnir verði þar áfram.
Eftir: Gunnar Reyni Valþórsson
Byggð í Örfirisey er á stefnuskrá hjá
nýjum meirihluta í borginni. Enn er
þó óvíst um framtíð olíubirgðastöðv-
arinnar í eynni. Kjartan Magnússon
borgarfulltrúi segir jafnvel koma
til greina að skipuleggja þar byggð
í grennd við olíutankana. í skýrslu
samráðshóps um málið sem skilað
var rétt fyrir kosningar kom fram
samdóma álit þátttakenda um að flug-
vélaeldsneyti sem nú er geymt í eynni
ætti að geyma í Helguvík. Hópurinn
lagði ennfremur til að hagkvæmnis-
mat yrði gert á því að fly tja olíubirgða-
stöðina austur fyrir borgina.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
sjálfstæðismanna, segir að flutningur
þotueldsneytisins verði vonandi eitt-
hvað sem gerist á næstu árum. „Það
er síðan ein af þeim áskorunum sem
við stöndum frammi fyrir að reyna á
næstu árum að hefja skipulagningu
á byggð þarna, atvinnuhúsnæði jafnt
sem íbúðabyggð, og hafa tankana
þarna líka.“
Kjartan segir ekki útilokað að
menn komist að þeirri niðurstöðu
að tankarnir verði þarna áfram í ein-
hverri mynd.
Kjartan segir að tankarnir sem
geyma þotueldsneytið séu um það
bil 20% af þeim tönkum sem í eynni
eru. Það væri því alltaf bróðurpartur-
inn sem yrði eftir þrátt fyrir að þotu-
eldsneytisgeymslur verði í Helguvík í
framtíðinni.
Byggt nálægt olíutönkum erlendis
„Við höfum fengið mikið land úr
uppfyllingum á þessu svæði og því
verður haldið áfram,“ segir Kjartan.
„Það má skipuleggja byggð á þeim
uppfyllingum, í áttina að Akurey,
og það verður þá skoðað með tank-
ana hvort að þeir verði að víkja eða
hvort þeir geti verið áfram í breyttri
mynd. „Erlendis byggja menn miklu
nær svona tönkum en þarna hefur
verið gert,“ segir hann. Kjartan segir
þó of snemmt að slá einhverju föstu
í þessum efnum, þessi mál eigi eftir
að skoða.
Að mati Kjartans væri auðvitað
skemmtilegast að losna við alla
tankana úr eynni. „En það má ekki
gleyma því að tankarnir skila Reykja-
víkurhöfn töluvert miklum tekjum,“
segir Kjartan.
„Það er heldur ekki til neins að vera
að flytja þá langt út fyrir bæinn, til
þess eins að flytja eldsneytið á bílum
inn í borgina aftur. Við hljótum
að vilja reyna að miða við það að
flytja bensínið sem fæsta ekna kíló-
metra. Örfirisey er glettilega nálægt
mörgum bensínstöð vum svo að þetta
þarf allt að skoða og reikna út,“ segir
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi.
gunnar@bladid.net
Lyfjaverð
til neytenda
hækkar
Verð á lyfseðilsskyldum lyfjum
hefur hækkað um allt að 20% hjá
markaðsráðandi lyfsölukeðjum
frá því i apríl 2005. Þetta eru niður-
stöður nýlegrar lyfjaverðskönnunar
verðlagseftirlits ASÍ sem gerð var á
dögunum.
„Samhliða því sem leyfileg
hámarks smásöluálagning hefur
lækkað hafa lyfjabúðir dregið úr
þeim afslætti sem þær veita af hluta
sjúklings í lyfjaverðinu og þannig
minnkað verulega ávinning neyt-
enda af því samkomulagi sem gert
var við lyfjasmásala í fyrra um
lækkun á lyfjaverði,“ segir í fréttatil-
kynningu frá ASl.
Spá lækkun
íbúðarverðs
Flest bendir til þess að íbúðaverð
muni lækka þegar horft er til næsta
árs. Þetta kom fram í Morgunkorni
Glitnis í gær.
„Mikið framboð er framundan á
íbúðamarkaði en hækkun vaxta og
skertur aðgangur að lánum dregur
úr eftirspurn. Lækkun íbúðaverðs
mun draga úr verðbólgu, bæði með
beinum hætti þar sem íbúðaverð
er stærsti einstaki þáttur vísitölu
neysluverðs, og með óbeinum hætti
þar sem lækkandi íbúðaverð slær á
tiltrú neytenda og kaupgleði. Gengi
krónunnar mun sennilega lækka
frekar á næstunni, en líklegt er að á
næsta ári komi gengið til baka þegar
viðskiptahallinn tekur að minnka
að ráði og úr óvissu dregur varðandi
lánshæfiseinkunn landsmanna.“
Leiðrétting
Af fyrirsögn fréttar í Blaðinu í gær
um hraðahemla í bifreiðum mátti
skilja sem svo að uppi væru hug-
myndir um það hjá Umferðarstofu
að tryggt yrði með slíkum búnaði
að bílar kæmust ekki hraðar en 90
km á klukkustund. Þetta er ekki rétt
því Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi Umferðarstofu, vill
ekki endilega skoða þennan búnað
í ljósi þess að takmarka hraða bif-
reiða við 90 km hraða. Hann segir
að fyrst og fremst þurfi að taka úr
umferð það sem kallast ofsaakstur.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum
Uppsafnað áhorf
Stöðvar 2 minnkar
Tæplega 92% aðspurðra í nýjustu
fjölmiðlakönnun Gallup horfðu eitt-
hvað á Ríkissjónvarpið í vikunni sem
spurt var um. Það er um 1% minna
en í síðustu fjölmiðlakönnun Gallup
frá marsmánuði. Uppsafnað áhorf á
Stöð 2 minnkaði um 7% milli kann-
ana og var rúmlega 67%. Skjár einn
bætir við sig um einu prósentustigi
frá síðustu könnun og mældist með
65% áhorf. NFS bætir við sig um 10%
og mældist með 33,8% áhorf. Áhorf á
Sirkus minnkaði um 2% og mældist
um 33,4%.
Fréttatími Sjónvarpsins var sá
þáttur sem mældist með mest upp-
safnað áhorf, eða 38%, en fréttatími
Stöðvar 2 og NFS mældist með 21%
áhorf. Séu vinsælustu dagskrárliðir
allra sjónvarpsstöðvanna skoðaðir,
að fréttatímum frátöldum, kemur í
ljós að Kastljósið og Aðþrengdar eig-
inkonur eru vinsælustu þættirnir,
báðir með rúmlega 28% áhorf. Þá
mældist þátturinn Út og suður með
um 26% áhorf ogþátturinn Lost með
24% áhorf.
Á Skjá einum voru þættirnir CSI
og CSI: Miami vinsælustu þættirnir
með tæplega 17% áhorf. Á Stöð 2 voru
þættirnir 24 og Prison Break vinsæl-
astir, að frátöldum fréttatímanum,
báðir með um 14% áhorf. Á Sirkus
mældist úrslitaþáttur American Idol
með mest áhorf, eða um 13%.
Könnunin var framkvæmd dag-
ana 28. maí til 3. júní 2006.1 úrtakið
voru 1.500 Islendingar á aldrinum 12-
80 ára valdir með tilviljunaraðferð úr
þjóðskrá. Alls bárust 614 svör.
r-Jk Nikon
Pnnmann haLL-m
Fagmenn þekkja Nikon gæðin.
6.0 milljón pixlar
3 x aðdráttur í linsu (38-116mm)
15 tökustillingar
2.5" LCDskjár
Video upptaka með hljóði
23 MB innbyggt minni - hægt að
stækka með XD minniskorti
Aðeins 120 grömm án rafhlöðu
Notar AA rafhlöðu
Verð kr. 29.900
EHm3
8,1 mílljón pixlar
VR linsa, alvöru hristivöm
3,5 x aödráttur I linsu (36-126mm)
16 tökustillingar
2.5" LCD skjár
Video upptaka með hljóði
23 MB innbyggt minni
- hægt að stækka með XD minniskorti
Aðeins 170 gán rafhlöðu
Notar Lithium rafhlöðu
Verð kr. 49.900
Konur hlutfallslega lægst
launaðar á Vesturlandi
Tekjur kvenna á Vesturlandi eru ein-
ungis 58% af tekjum karla á sama
svæði samkvæmt fréttavefnum
skessuhorn.is. Árið 2005 voru meðal-
atvinnutekjur kvenna á Vesturlandi
rúmar 1,9 milljónir króna á meðan
tekjur karla voru á sama tíma rúmar
3,3 milljónir króna. Eru konur á Vest-
urlandi því lægst launaðar á landinu
öllu því þar var hlutfallið tæplega 64
% af tekjum karla. Á undanförnum
árum hefur hlutfall launa kvenna
á Vesturlandi þó farið hækkandi
miðað við laun karla því árið 1998
var hlutfall launa þeirra aðeins tæp
52%.
Falleg - sterk - náttúruleg
Suðurlandsbraut 10
Sími 533 5800
www.simnet.is/strond
V§TRÖND
Alfesca hækkaði um 6,5%
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,04% í
Kauphöll Islands í gær og var 5.566
stig í lok dagsins. Bréf Alfesca hækk-
uðu um 6,5%, bréf Atorku um 3% og
bréf Mosaic Fashions um 3%. Bréf
Össurar lækkuðu um 2 % og bréf Atl-
antic Petrolium um 1%. Alls námu
viðskipti í Kauphöllinni í gær um 12
milljörðum króna.
Nikon
FÆST EINNIG í:
r FRlHÖFNINNI
Arvirkíanum
Eyrarvegi 32, Selfossi. s: 480 1160
PIXLAR
GEISLA
MODEL
BÓKAVERSLUN ÞÓRARINS
Garðsbraut 9. HúsaviV, 5:464 1234
1
-
’WSBWKf