blaðið - 27.06.2006, Qupperneq 2
2 I FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 blaöið
blaöid—
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
m BlaMMki
I sjöunda himni
Það er ekki ónýtt útsýnið hjá Sigga Gfsla, kranamanni, sem situr í hæstu hæðum í Borgartúninu þessi misserin. Siggi hefur stjórnað
krönum í rúmlega þrjátíu ár og kraninn sem hann vinnur á nú um stundir er sá hæsti á landinu. Sem dæmi um stærð kranans er bó-
mann heilir 70 metrar en til viðmiðunar mætti nefna að turn Hallgrímskirkju er 73 metrar.
Grunur um
tugmilljóna
fjársvik
Grunsemdir hafa vaknað um að
fyrrverandi starfsmaður Trygg-
ingastofnunar (TR) hafi svikið
fé út úr stofnuninni sem nemur
tugum milljóna króna. Þetta
kom í ljós við eftirlit innan TR
í síðustu viku. „Virtist sem hinn
fyrrverandi starfsmaður hafi
með blekkingum og í krafti
stöðu sinnar látið einstaklinga
kerfisbundið og án tilefnis fá
greiðslur frá stofnuninnisegir
i fréttatilkynningu frá TR. Eftir
frekari samanburð og skoðun
gagna hjá TR, sem styrktu grun-
semdir.varmáliðkærttilríkislög-
reglustjóra á föstudaginn og um
leið var krafist opinberrar rann-
sóknar á málinu. Sérfræðingar
TR og efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra hafa
undanfarna daga unnið
að öflun gagna og skoðun
bókhalds samhliða eftirliti hjá
stofnuninni.
Bush eldri
til íslands
George Bush, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, hefur þekkst
boð Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Islands, um að koma i
heimsókn til íslands dagana 4.-7.
júlí. Bush mun sitja kvöldverð-
arborð forseta íslands á Bessa-
stöðum á þjóðhátíðardegi Banda-
ríkjamanna, 4. júlí.
Með í för forsetans verða
nokkrir vinir hans, meðal ann-
ars Sig Rogich sem var sendi-
herra Bandaríkjanna á íslandi
í forsetatíð Bush. „George H. W.
Bush og föruney ti munu halda til
laxveiða í boði Orra Vigfússonar,
formanns Verndarsjóðs villtra
laxastofna (NASF), en forsetinn
fyrrverandi hefur verið eindreg-
inn stuðningsmaður slíkrar
verndar,“ segir í tilkynningu frá
skrifstofu forseta íslands.
DKEYPIS TIL
BO.000
heimila og fyirtækja aila virka daga
blaöiö
Sjúkraflutningamenn þurfa lög-
regluvernd gagnvart slösuðum
Varaformaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir það koma
ítrekað fyrir að þvælist fyrir sjúkrabílum þegar þeir keyra um miðborg Reykjavíkur.
Eftir Val Grettisson
Algengara er orðið að sjúkraflutn-
ingamenn þurfi á lögregluvernd
að halda gagnvart slösuðum þegar
verið er að ferja þá á spítala sam-
kvæmt Sverri Birni Björnssyni, vara-
formanni Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna.
Hann segir það líka koma ítrekað
fyrir að fólk stökkvi fyrir sjúkrabíla
þegar þeir reyni að komast af vett-
vangi úr miðborg Reykjavíkur og
hefti þar með för þeirra. Þar að auki
hefur verið rænt úr bílunum meðan
sjúkraflutningamenn hafa hlúð að
slösuðum.
Spurning um líf og dauða
„Það er afar alvarlegt þegar við getum
ekki unnið í friði,“ segir Sverrir Björn,
en hann hefur unnið við sjúkraflutn-
inga síðan 1985. Hann segir að það
geti verið hættulegt fyrir heilsu
fólks ef óprúttinn aðili steli sjúkra-
tösku úr bílnum því hugsanlega séu
nauðsynleg áhöld í töskunni sem
þeir þurfi að notast við á staðnum.
Einnig bendir hann á að það sem
er í sjúkrabílunum gagnist engum
nema sjúkraflutningamönnunum.
Sverrir áréttar að sjúkraflutningar
geti skipt sköpum um það hvort fólk
lifi eða deyi og því geti hverskyns
tafir haft hrikalegar afleiðingar í för
með sér.
Lögreglan í sjúkrabílum
I viðtali Blaðsins við Árna Odd-
son, varðstjóra Slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu á mánudag,
segir hann að til handalögmála
hafi komið á milli sjúkraflutninga-
manna og einstaklinga sem skiptu
sér afgangi mála ávettvangi. Sverrir
tekur undir það og segir að það hafi
líka aukist að sjúkraflutningamenn
þurfi að hafa lögreglumann í sjúkra-
bílnum svo hægt sé að tryggja öryggi
þeirra gagnvart hinum slasaða.
Sverrir tekur fram að þetta sé að-
eins í öfgafyllstu tilfellum og yfir-
leitt eigi slíkir atburðir sér stað um
helgar.
Sverrir segist ekki geta útskýrt
viðmótið sem mæti þeim á einn eða
annan hátt. Hann segir að ástandið
hafi versnað og þá kannski með
brevttum tímum.
„Eg vil bara biðja fólk um að sýna
náunganum tillitssemi, samúð og
kærleik," segir Sverrir alvarlegur að
lokum.
valur@bladid.net
Glerveggir-hurðir
Brautir - Hert gler
Hawa
www.jarngler.is
0 HeiSsklrtíjJ léttskýjaíáÍlL'Skýjað Alskýjað-íft;— Rigning, lítilsháttar^£^HignlngÍÍ»4Súld & - Snjékoma Jíf)* Slydda d££i» Snjðél
Skúr
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chícago
Dublin
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Vín
Þórshöfn
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Mynd/Eggert