blaðið - 27.06.2006, Side 15
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006
HEILSA I 23
Likamlegt ástand endurspeglast i iljunum
Svœðanudd er oft notað til aðfinna út hvaða vandamál líkaminn er helst að glíma við.
Reflexologi áhlns vegar rætur sínar
að rekja til kínverskrar heimspeki eða
hugmynda, kenninga um orkubrautir
og punkta á orkubrautunum. Þar er
unnið að því að örva sérstaka punkta
(nálastungupunkta) og virknin því
hnitmiðaðri og sérhæfðari.
Bandarískur læknir, Dr. William
H. Fitzgerald, endurvakti svæða-
nuddið (zoneterapi) á öndverðri síð-
ustu öld og gaf út bók um efnið árið
1917 ásamt kollega sínum Edwin Bo-
wers. Það kom svo í hlut nemanda
Dr. Fitzgeralds, Eunice Ingham, að
fínvinna tæknina og hún gaf einnig
út bækur um svæðanudd árið 1938.
Þær bækur hafa meðal annars verið
þýddar og gefnar út á íslensku.
Fyrsti svæðanuddskólinn
byrjaði árið 1970
Hanne Marquardt, þýskur hjúkr-
unarfræðingur og „heilpraktiker”,
var nemi hjá Eunice Ingham. Hún
opnaði fyrsta svæðanuddskólann
í Evrópu í Þýskalandi árið 1970 en
Marquardt er almennt talin hafa
verið fyrst til að kynna fræðin fyrir
Evrópubúum.
Árið 1982 gáfu Danirnir Solveig
Lauborg svæðanuddari og Per Lau-
borg nálastungufræðingur út bók
um svæðanudd þar sem þau sýndu
fram á tengsl zoneterapi og ref-
lexologi. Svæðanudd er heildrænt
J Kinverski nuddarinn Lai frá Shanxi héraðinu í Norður-Kína sést hér nota svæðanudd, en
hún starfar um þessar mundir i Heilsudrekanum.
meðhöndlunarform sem gegnum
ákveðin svæði/punkta á iljum og
fótum er talið getað leiðrétt orku-
ójafnvægi í líkamanum. Meðferðin
gefur viðkomandi slökun og deyfir
verki þar sem hún losar um endor-
fín sem segja má að sé eigið verkja-
lyflíkamans.
Eykur á þrótt og vellíðan
Svæðanudd er almennt talið styrkja
varnarkerfi líkamans og örva eigin-
leika hans til að lækna sjálfan sig,
auka á vellíðan og gefa aukinn and-
legan og líkamlegan þrótt. Nokkuð
hefur verið gert af því að rannsaka
virkni svæðanudds.
Ekki hefur tekist að sýna fram á
fslenska hugtakið svæðanudd
felur í sér 2 erlend hugtök, ann-
ars vegar zoneterapi sem þýðir
svæðanudd og hins vegar reflexo-
logi sem þýðir viðbragða- eða
svæðameðferð.
Zoneterapi er talin upprunnin frá
Egyptum og byggir á örvun mið-
taugakerfisins. Einnig er talið að
m.a. Indverjar og norður-amerískir
indíánar hafi lagt stund á svæða-
nudd fyrr á öldum. Hugmyndin
sem liggur að baki er sú að líkams-
hlutar eigi sér samsvörunarsvæði í
fótunum, að líkaminn og líkamlegt
ástand endurspeglist í fótunum.
Kínverskar kenningar um
orkubrautir líkamans
það vísindalega hvernig svæðanudd
virkar. Það er engin bein taugateng-
ing milli viðbragðapunktanna undir
fætinum og hinna innri líffæra.
Því hallast menn einkum að því að
svæðanudd virki eftir hinum aust-
rænu hugmyndum, þ.e. í gegnum
orkubrautirnar svokölluðu.
Víða viðurkennt sem
meðferðarform
í nokkrum af nágrannalöndum
okkarersvæðanuddviðurkenntmeð-
ferðarform í hinu opinbera heilbrigð-
iskerfi, m.a. á krabbameinsdeildum
og svokölluðum verkjadeildum
(„smerteklinikker"). Þar er og sums
staðar hægt að fá tilvísun frá heim-
ilislækni til löggilts svæðanuddara
og margir vinnustaðir bjóða starfs-
mönnum sínum upp á svæðanudd
(eða nudd) með reglulegu millibili.
Kínverskar jurtir og dýrahorn
f Heilsudrekanum, Skeifunni 3,
hefur um langt skeið verið lögð
stund á margskonar nudd sem á
rætur sínar að rekja til Austurlanda.
Meðal þess nudds sem boðið er upp
á er svæðanudd. Dæmi eru um að
fólk hafi öðlast mikla heilsubót
með því að fara í svæðanudd, en
oft má greina alvarlega sjúkdóma í
gegnum það. Blaðamaður kom að
máli við Dong Qing Guan, eiganda
Heilsudrekans.
„Það eru mörg dæmi um að fólki
líði miklu betur eftir svæðanudds-
meðferðir. Mér dettur strax í hug
kona sem kom hingað í meðferð
fyrir ekki svo löngu. Hún var orku-
laus, átti erfitt með gang og átti við
mikil ristilvandamál að stríða. Eftir
að hún var búin að vera í svæða-
nuddsmeðferð í einhvern tíma varð
hún allt önnur manneskja," segir
Dong og bætir því við að svæðanudd
sé ekki bara fyrirbyggjandi eða slök-
unarmeðferð heldur sé það einnig
árangursrík lækningarmeðferð. Við
svæðanudd eru einnig notaðar fjöl-
breyttar aðferðir sem eiga að tryggja
betri árangur meðferðarinnar.
„Hálftíma áður en fólk fer í svæða-
nudd þarf það að fara í fótabað þar
sem við notum sérstakar kínverskar
jurtir. Jurtirnar eru sérstaklega
kínverskra kenninga um orkubrautir
líkamans. En þar er talið að sérhvert
líffæri eigisér samhljóm á ákveðnu svæði,
eða punktum, í iljunum.
valdar eftir því vandamáli sem ein-
staklingurinn glímir við. Þessar
jurtir opna svo rásir líkamans og
þar með verður svæðanuddið árang-
ursríkara. I svæðanuddinu notum
við fleiri hluti til að gera meðferðina
árangursríkari. Til að mynda eins-
konar penna sem er gerður úr dýra-
horni og með honum þrýstum við á
ákveðin svæði og punkta á ilinni.“
Hver eru algengustu vandamálin
sem fólk notar svæðanudd við?
„Það eru í raun allskonar vandamál
sem svæðanuddið dugar við. Yfir-
leitt eru þetta samt vandamál sem
eru í innyflum eða sjálfri líkams-
starfseminni, en ekki í vöðvum.
Kannski hormónatruflanir, melting-
artruflanir og fleira. Yfirleitt notum
við svæðanuddið mikið til að finna
út hvaða vandamál líkaminn er helst
að glíma við. Stundum fara svo ein-
staklingarnir til hefðbundis læknis
eftir það til að fá bót meina sinna,
en margir eru með ofnæmi fyrir
sterkum lyfjum eða kjósa af öðrum
ástæðum að fara óhefðbundnar
leiðir,“ segir Dong að lokum.
margret@bladid.net
- og geitungarnir
leggja á flótta
Sláið 3 flugur í einu höggi
Fælir í burtu flugur
Góður ilmur
Verndar húðina
Einnig ætlað bömum
Drelfingarsíml: 698 7999
Fæst í öllum apótekum
REUTERS
Hér má sjá götubörn (Karachi taka þátt (mótmælum gegn fíkniefnum en (gær var haldinn alþjóðlegur dagur (nafni Sameinuðu þjóðanna gegn eiturlyfjanotkun og eiturlyfjaviðskiptum.