blaðið - 27.06.2006, Side 18
26 I AFPREYING
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 blaöið
4ÍrO
£!ru bíZar kannski menn?!!
ÁLFABAKKA
BÍLAR »1. tal KL 1:30-3-5:30-8
CARSonskttal KL 3-5:30-8-10:30
CARS onsld tol VIP KL 4:15-8-10:30
SUTHER KL 8-10:30
KEEPINGMUM KL 3:30-5:45-8-10:20
SHE STHEMAN KL 3:30-5:45-8-10:20
POSEIDON KL 5:30-10:30
BAMBI 2 isl. tal KL1:30
KRINGLUNNI^—
BÍLAR ísl. tol KL 4-6:30
CARS enskt tnl
SLITHER
POSEIDON
Ml:3
KL 4-5:30-8-9-
10:30-11:15
KL 10:30
KL 6:10
KL.8
keflavIk
sAMmma
BÍLAR ísl. tal
KEEPING MUM
SHESTHE MAN
16 BLOCKS
KL 8
KL 10:10
KL 8
KL 10:15
AKUREYRI
lUKtYKI -«H|
BÍLAR ísL tal KL6-8
CARS enskt tol KL 6-8-10
SLITHER KL.10
CARS enskt tal Kl. 6-8:30-11
BÍLAR ísl. tnl Kl. 6-7:15-8:30
KEEPING MUM KL 6-8:20-10:30
POSEIDON KL 6:10-8:20-10:30
Ml:3 KL 9:30-11
NYTTIBIO
JÍkVhl LK-k
Otovf bTbil
GlhUr á allar 1
(ýnlngar I
merktar meft I
rauöul
ái»Wi SiBJM I wm
[< rM/nrwm úausa «i; |
flkiy
smáHfí^Blú
JUSTMYLUCK
kl. 5.40,8 og 1020
RV
kl. 3.40,5.50 og 8
THE OMEN B.L16ÁRA
kl. 10.10
X-MEN3B112ARA
kl. 5.40og 10.20
DA VINCI CODE
kl. 6og9B.1.14ÁRA
DAVINCI CODE ÍLÚXUS
kl. 6 og 9 B.L14ÁRA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl. 3A0
ÍSÖLD 2ISLENSKT TAL
kl. 3.40
HEGmaGÍnn
JUSTMYLUCK
kJ. 5.40,8 og 1020
RV
kl.5.50
TAKE THE LEAD
kJ. 8og 10.30
THE OMEN B116ÁRA
kl. 8og 10.30
DAVINQ CODE
kl.6og9 bi. 14ÁRA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kJ.6
STAYALJVE
kl. 6,8og10.20B.Ll6ÁRA
TAKETHELEAD
kl. 5.45,8 og 10.20
16-BLOCKS
kJ. 6 og 8B.1.14ÁRA
Bijrt/.irtiin
JUSTMYLUCK
kl. 6,8og 10
RV
kl. 6og8
THEOMENBJ. 16ÁRA
kJ. 10
Dolby /DD/ Thx "tj bio.is
Kvikmyndir
Birgitta Jónsdóttir
Cars
Leikstjóri: John Lasseter
Aðalhlutverk: Bonnie Hunt, Cheech Marin,
Paul Newman, Richard Petty, Owen Wilson.
Lengd: 112 mín
Bandaríkin 2006 +Í
Bílar er hefðbundin Disney-mynd
sem maður þjáist í gegnum með
börnunum sínum. Yngri sonur
minn skemmti sér stórvel en ég
gat ekki beðið eftir að hún vaeri
búin. Þeir sem skópu þessa mynd
mega eiga það að hafa lagt mikið á
sig til að búa til bílaveröld sem á sér
hliðstæðu í mannheimum. I bílaver-
öldinni eru bílarnir eins og mann-
eskjur, breyskir og hégómlegir en
jafnframt fyndnir og verða meira að
segja ástfangnir.
Pixar fatast flugið
Ég bjóst við meiru frá Pixar, hef haft
nokkuð gaman af fyrri myndum
þeirra. Sumar myndirnar þeirra
hafa fengið mig til að hlæja, gráta
og allt þar á milli, nema kannski að
leiðast.
Sérsvið Pixar hefur verið að nota
tölvutæknina til þess að skapa
ógleymanlega teiknimyndaheima,
en þessir heimar væru ansi innan-
tómir ef ekki væri fyrir snilldar-
lega persónusköpun og leikstjórn á
talsetningu.
Því miður klikka snilldartaktar
Pixar í Bílum og þó að mikilli natni
sé beitt til að skapa augnakonfekt
Breska rokksveitin The Cribs, elekt-
rópopp-rokkararnir í Who Made
Who? frá Danmörku, hin bresk-ís-
lenska The Fields, kanadíska sveitin
Islands og Cold War Kids frá Kali-
forníu hafa nú bæst við dagskrá tón-
listarhátíðarinnar Iceland Airwaves
2006.
Auk þessara fimm erlendu hljóm-
sveita bætast tíu íslenskir Iistamenn
við dagskrá hátíðarinnar, þar á
meðal trúbadorinn Þórir eða My
Summer as a Salvation Soldier eins
og hann kallar sig á alþjóðavettvangi,
teknó-tröllið Thor, kókþambararnir
Dr. Mister og Mr. Handsome, Kira
Kira, Biogen, Worm is Green og
Johnny Sexual.
Iceland Airwaves 2006 fer fram í
miðborg Reykjavíkur dagana 18.-22.
október og alls munu um 130 lista-
menn og hljómsveitir koma fram á
hátíðinni, þar af yfir 100 innlendir.
Mikið hefur verið fjallað um The
Cribs í breskum fjölmiðlum und-
anfarið og nýlega breiðskífu sveitar-
innar The New Fellas. Sveitin byrj-
aði árið á því að fara í hljómleikaferð
með Kaiser Chiefs um Bretland og
hitaði upp í tónleikaferðum Franz
Ferdinands og Death Cab for Cutie
um Bandaríkin og Kanada. I sumar
mun The Cribs spila á tónlistarhátíð-
unum Reading, Leeds og T In the
Park í Bretlandi, Fuji Rock, Oxygen
í Noregi og Siren í New York. Með-
limir sveitarinnar eru miklir mátar
strákanna í Kaiser Chiefs sem sögðu
þeim að þeir yrðu að skella sér með
þá er það bara ekki nóg til að fanga
athygli manns í 112 mínútur. Að því
viðbættu að þurfa að þola algerlega
misheppnaða brandara og siðferð-
ispredikanir sem fara út fyrir öll
mörk þolrifja minna þá fær þessi
mynd ekki marga plúsa hjá mér.
Vona að engum detti í hug að gefa
mínu yngsta þetta á DVD þegar það
kemur út.
Harmleikur í gömlu húddi
Söguþráðurinn er í grófum dráttum
þessi: Leiftur McQueen er hroka-
fullur kappaksturs-sólóisti sem vill
gera allt sjálfur og hefur enga trú
á hópefli. í hroka sínum er hann
samt svolítið einmana en er í af-
neitun. Hann á enga vini þó að hann
sé flottur kappakstursbíll. Hann
og tveir aðrir kappakstursbílar
koma allir á sama tíma í mark í að-
alhraðaksturskeppni í bandarísku
bílalandi. Þeir þurfa að heyja nýja
keppni í LA. Á leiðinni þangað vill-
ist Leiftur frá hraðbrautinni inn i
svefnbæinn Vatnskassavin við þjóð-
veg 66.
I klaufalegum eltingaleik tekst
Leiftri að eyðileggja aðalgötu
bæjarins og má ekki fara fyrr en
hann hefur malbikað götuna upp á
nýtt. Öllum leiðist ákaflega mikið
í bænum nema litlum bláum bíl
sem var lögfræðingur í LA. Hún
hefur gert upp vegagistihús fyrir
þreytta bíla. Hún og Leiftur verða
ástfangin og fara í rómantískar öku-
ferðir og njóta stórbrotinnar náttúr-
unnar saman. í bænum býr dómari
nokkur sem er líka viðgerðarbíll
bæjarins. Hann geymir harmleik í
húddi sínu. Hann var eitt sinn aðal-
kappakstursbílinn í keppninni sem
Leiftur er alveg að missa af. Honum
Hljómsveitin Islands mun spila á lceland
Airwaves 2006
þeim á Airwaves í haust.
Hljómsveitin Islands frá Montreal
sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu
Return to the Sea fyrir skemmstu
hjá hinni virtu Rough Trade útgáfu.
Á henni koma meðal annars við
sögu landar þeirra í The Arcade
Fire og Wolf Parade en síðarnefnda
sveitin mun einnig spila á Airwaves
í ár. Islands, sem sprottin er út úr
hljómsveitinni The Unicorns, þykja
hreint rosalegir á sviði og gerðu
mikla lukku á South by SouthWest
hátíðinni í mars.
Hér er hægt að finna meiri fróð-
leik um hljómsveitirnar:
www.myspace.com/islandsareforever
www.myspace.com/thecribs
www.myspace.com/whomadewhomusic
www.myspace.com/songsforthefields
www.myspace.com/coldwarkids
kristin@bladid.net
var kastað úr keppni végna þess að
hann var orðinn of gamall. Hann
reynir að kenna hinum hrokafulla
Leiftri mikilvæga hraðaksturstækni
en Leiftur vill ekkert læra af honum
fyrr en hann finnur þrjá bikara í bíl-
skúr hins gamla bílajálks.
Leiftur eignast sinn fyrsta vin í
þorpinu sem er ryðgaður dráttarbíll.
Dráttarbíllinn er með eindæmum
einföld en góðviljuð bílasál. Auð-
vitað leysast öll hin djúpu vanda-
mál og sálarangist, bærinn kemst
á kortið. Leiftur ákveður að vinna
ekki keppnina en hjálpa gömlum
keppanda að komast í mark. Hann
er kominn með nýtt hjálparteymi
sem eru allir nýju vinirnir úr
Vatnskassamýri.
Sætar bílaflugur og hroll-
vekjandi dúkkuaugu
Disney kemst oft upp með að keyra á
væmninni og ákveðinni hjartahlýju
en það bara skilar sér ekki með því
að reyna að fá bíla til þess að haga
sér eins og manneskjur með mann-
Drungalegt
stuðlag
Lagið Sviksemi með Ham
verður flutt í fyrsta sinn í
útvarpi t Popplandi á Rás 2
í dag milli 13.00 og 16.00.
Nýtt lag frá hljómsveitinni
Ham verður flutt I fyrsta sinn
í útvarpi í dag. „Þetta er klass-
ískt Ham-lag, mjög drungalegt
og uppfullt af stuði. Það varð til
við æfingar hljómsveitarinnar
í vor; þá vorum við farnir að
hugsa um tónleikana og æfa
fyrir þá. Lagið Sviksemi er í
gamla Ham-stílnum og ætti
ekki að koma neinum á óvart,“
segir Óttarr Proppé, söngvari
hljómsveitarinnar.
Nú styttist óðum í tónleika
Ham sem haldnir verða á Nasa
næstkomandi fimmtudag
- þann 29. júní. Miðasala á tón-
leikana er í fullum gangi og
hefur gengið vel. „Það verður
ekki mikið af nýju efni á tón-
leikunum en eitthvað þó. Við
tókum þann pól í hæðina að við
spiluðum eingöngu lög sem við
spilum vel og koma vel út, bæði
gömul og ný. Við lofum því góðu
stuði,“ segir Óttarr.
leg gildi. Virkaði að gera þetta með
fiska og maura en bílar eru vélar og
heimur þeirra ætti kannski frekar að
vera eins og einn risastór bílakirkju-
garður frekar en stórbrotin náttúra
Arizona. Stuðararnir eru munnar
og dauð dúkkuaugu skreyta fram-
rúðurnar á einhvern frekar hroll-
vekjandi hátt. Mér fannst reyndar
bílaflugurnar nokkuð sætar og
teiknimyndavinnslan fagleg. Ágætis
afþreying fyrir þá sem hafa lítið að
gera í sumarrigningunni.
birgitta@bladid.net
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
09.00 - Börn
Leikvellir ÍTR fyrir 2-5 ára börn
kl. 09:00 - 16:30. í sumar verða
opnir leikvellir á vegum ÍTR
fyrir 2-5 ára börn í hverfum
borgarinnar. Þar er boðið upp
á útivist og leik í öruggu um-
hverfi. Komugjald er 100 kr. Nán-
ari upplýsingar á www.itr.is og í
síma 4115000.
Róluvellir Reykjavíkurborgar
13.00- Fyrirlestur
Doktorsvörn í vélaverkfræði við
verkfræðideild Háskóla íslands.
Þá ver Sonja Richter doktors-
ritgerð sína Símæling á tær-
ingarhraða í hitaveitukerfum
(e. Monitoring of Corrosion in
District Heating Systems). And-
mælendur eru Dr. G. Tim Burst-
ein, prófessor við Cambridge há-
skóla og Dr. Dominique Thierry
framkvæmdastjóri við Frönsku
tæringarstofnunina. Leiðbein-
endur eru Dr. Ragnheiður Inga
Þórarinsdóttir, Orkustofnun og
Dr. Fjóla Jónsdóttir, dósent við
verkfræðideild. Auk þeirra situr
dr. Guðmundur R. Jónsson í
doktorsnefnd.
Háskóli íslands,
hátíðarsalur
19.00-Gönguferð
Sr. Þórir Stephensen, fyrrver-
andi staðarhaldari í Viðey, fræðir
gesti um sögu Viðeyjarklaust-
urs sem var eitt ríkasta klaustur
landsins á skemmtilegri göngu-
ferð. Svo verður gengið um Vest-
ureyogÁföngum Richards Serra
ásamt fleiru gefinn gaumur. Sr.
Þórir er með fróðustu mönnum
um allt sem viðkemur Viðey og
enginn er svikinn af því að ganga
með honum um hina miklu sögu-
eyju. Lagt af stað með Viðeyjar-
ferjunni frá Sundahöfn kl 19:00
og gangan tekur rúmar tvær
klst. Ferjutollur er 750 kr fyrir
fullorðna og 350 kr fyrir börn
en leiðsögn er ókeypis. Allir þátt-
takendur fá frían Kristal í boði
ölgerðarinnar.
Sundahöfn
Enn bœtist við
á Airwaves
Islands, The Cribs, Who Made Who? - og 12
aðrir listamenn bœtast á dagskrá tónlistar-
hátíðarinnar Iceland Airwaves 2006