blaðið

Ulloq

blaðið - 10.07.2006, Qupperneq 4

blaðið - 10.07.2006, Qupperneq 4
4IFRÉTTIR MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 blaðiö Fáklæddur á ferðalagi: í sundskýlu og sokki Lögreglan í Borgarnesi fann ungan mann á gangi á þjóðveginum við Reykholt aðfaranótt laugardags- ins. Að sögn lögreglu var hann á vesturleið, í mjög annarlegu ástandi og einungis klæddur sundskýlu og einum sokki. Eftir að hafa reynt að gera grein fyrir sjálfum sér var manninum ekið á tjaldsvæði í Reyk- holti þar sem gestir könnuðust við kauða. Trúðar geta valdið ógleði og óreglulegum hjartslætti Tónleikar í uppnámi: Óttast trúðs- búninga Aðstandendur rokktónleika sem eiga að fara fram á Wight-eyju við suðurströnd Englands í september hafa þurft að endurskipuleggja tónleikana vegna ótta við að ofsa- hræðsla muni gripa gestina. Tón- leikarnir áttu að vera tileinkaðir fjölleikahúsum og voru allir þeir sem ætluðu að mæta hvattir til þess að klæða sig í trúðsbúning En í kjölfar þess að fjöldi fólks setti sig í samband við tónleikahaldarana og benti þeim á að ótti við trúða væri al- gengt vandamál hjá fullorðnu fólki ákváðu þeir að breyta um þema. Trúðafælni er vandamál meðal heilbrigðisstétta og eru einkennin stuttur andardráttur, svitaköst, óreglulegur hjartsláttur og ógleði. Stór rauð nef, andlitsmálning og bældar neikvæðar minningar um trúðalæti í bernsku eru líklegust til þess að kalla fram einkenni trúðafælni. BlaíiS/Eslher Jón Stefánsson leigubílstjóri segir leigubílastöðvar beita ólöglegum aðferðum: Rekinn frá BSR og þá varð atvinnuleyfið gagnslaust ■ Bílstjórar verða að vera á leigubílastöð ■ Breyta þarf reglunum, segir umboðsmaður Alþingis Eftir Atla Isleifsson „Mér var sagt upp störfum eftir að ég ræddi við stjórnendur BSR um að þeir hafi verið að misnota akstursleyfi leigubílstjóra. Þær ástæður sem voru upp gefnar voru að það þjónaði ekki viðskipta- legum hagsmunum að hafa mig í starfi þar og að kvartanir hefðu borist frá viðskiptavinum. Hins vegar kemur hvergi fram hvaða viðskiptahagsmuni var átt við og ég fékk aldrei kvartanir frá viðskiptavinum BSR meðan ég starfaði þar,“ segir Jón Stefánsson, leigubílstjóri. Jón segir að eftir að honum hafi verið sagt upp störfum hjá BSR hafi hann sótt um stöðu hjá Hreyfli. „Ég fékk ekki stöðvarpláss þar. Astæðan var sögð vera tölvuleysi og að þeir myndu ekki taka inn fleiri í bili. Þeir hleyptu þó inn fjölda manna næstu misserin svo að tölvuleysi var ekki að hrjá þá. Ég veit að stjórnendur Hreyfils og BSR höfðu samband sín á milli og höfðu samráð um að taka mig ekki í afgreiðslu." Eins og lögin eru nú þá eru leigu- bílstjórar skyldaðir til að hafa af- greiðslu á leigubifreiðastöðvum. „Eftir stóð ég með rétt til að keyra leigubíl, en átti í mestu vand- ræðum með að nýta réttinn vegna lagaumhverfisins. Leigubílstjórar eru undir náð og miskunn stjórn- enda leigubílastöðvanna komnir. Þeir sem hafa réttindin geta verið hindraðir eða jafnvel útilokaðir frá því að nýta sér atvinnuréttindi sín, eftir geðþótta þeirra sem stjórna stöðvunum. Þeir hafa öll tromp á hendi,“ segir Jón. Jón leitaði þá til samgönguráðu- neytisins, en fékk þau svör að ráðuneytið gæti ekkert gert þar sem málið væri ekki kæranlegt til ráðuneytisins. „Ég skrifaði því bréf til umboðsmanns Alþingis. I svar- inu til mín, sem barst í lok síðasta mánaðar, tók hann undir að laga- umhverfinu væri ábótavant. Um- boðsmaður hefur af þvi tilefni sent bréf til samgönguráðuneytisins þar sem hann kom þeirri ábendingu á framfæri að ráðuneytið taki til at- hugunar hvort tilefni sé til þess að settar verði reglur sem tryggi betur réttaröryggi leigubílstjóra gagnvart leigubifreiðastöðvum og eftirlit stjórnvalda með þeirra málum.“ Umboðsmaður vakti í bréfinu athygli á því að hann telji mikil- vægt að þegar ríkisvaldið hafi séð ástæðu til að hafa afskipti af og leggja hömlur á tiltekið atvinnu- svið, í þessu tilviki á akstur leigu- bifreiða á tilteknum svæðum með því að skylda leigubílstjóra til að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð, þá sé þess samhliða gætt að þær takmarkanir leiði ekki til þess að þeir sem þegar hafa fengið útgefin atvinnuleyfi til að rækja viðkom- andi starfsemi verði hindraðir eða jafnvel útilokaðir frá því að nýta sér atvinnuréttindi sín, eftir geðþótta þeirra sem stjórna leigubifreiða- stöðvum, án nokkurra möguleika á að fá slíkar ákvarðanir metnar af stjórnvaldi. atlii@bladid.net Bjóðum þessar heimsþekktu þýsku kamínur í mörgum stærðum og gerðum á hreint frábæru verði\ ORMSSON SIÐUMULA 9 • Sími 530 2800 | SMARALIND • Sirni 530 2900 AKUREYRI • Sími 461 5000 I Sjá nánar: www.ormsson.is Björn Bjarnason dómsmálaráöherra hunsaði álit nefndar: Skipaði ekki hæfasta dómarann Við skipun í embætti héraðsdómara við héraðs- dóm Suðurlands nýverið, var það álit matsnefndar um hæfi umsækjenda, að tveir þeirra sköruðu fram úr hinum, látið liggja milli hluta. Alls sóttu sex um embættið og taldi nefndin þá alla vel hæfa til þess að gegna embættinu, en tók jafnframt fram að tveir þeirra hefðu meira til brunns að bera. Ástríður Grimsdóttir, sýslu- maður í Ólafsfirði, var síðan skipuð, en hún var í hópi hinna fjögurra. Ekki hefur verið hreyft mót- mælum við skipuninni, en heim- ildarmenn Blaðsins í dómskerfinu segja að sumir telji skipunina óheppilega í ljósi álits nefndar- innar. Björn Bjarnason, dómsmála- ráðherra, sem skipaði i embættið, segir hins vegar að um ein- falda ákvörðun hafi verið að ræða. „Nefndin taldi alla umsækjendur vel hæfa og ég skipaði Ástríði með vísan til reynslu hennar og fyrri starfa." Spurður að því hvort vanalegt væri að skipa í embætti þvert á álit nefndarinnar, kvaðst Björn ekki þekkja um- sagnir nefndarinnar frá fyrri tíð. Heimildarmenn Blaðsins telja, að fleira en mat á hæfi umsækjend- anna kunni að hafa ráðið ákvörð- uninni. Bent er á að Ástríður hafi hlotið skipun í embætti sýslu- manns árið 2001 til fimm ára og sé nýbúið að endurnýja hana. Fyrir dyrum standi hins vegar að afnema sýslumannsumdæmið í Ólafsfirði og hefði hinu opinbera þá borið að Björn Bjarnason bjóða Ástríði sambærilegt starf, en þau séu hreint ekki á hverju strái. Skipan hennar i dómaraembætti hafi því verið forvirk lausn á upp- rennandi vanda. Umsækjendur auk Ástríðar voru þau Ásta Stefánsdóttir, Hall- dór Björnsson, Kristinn Halldórs- son, Sandra Baldursdóttir og Sigurður Gísli Gíslason. Þau Krist- inn og Sandra þóttu hæfust til þess að gegna embættinu að mati nefndarinnar. Ástríður er fædd 13. mars 1955. Hún lauk lögfræðiprófi frá laga- deild Háskóla Islands árið 1993 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi ári síðar. I kjölfarið stofnaði hún lögmannsstofuna Lögbæ i Mosfellsbæ. Ástríður hefur starfað sem sýslumaður í Ólafsfirði frá 1. júlí 200, en áður var hún m.a. settur sýslumaður á Seyðisfirði.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.