blaðið - 10.07.2006, Síða 19
blaðið MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006
TÍSKA i 19
Svortur á leik
Sígild og flott tíska
I okkar vestræna menningarheimi
hefur svartur lengi verið táknrænn
fyrir sorg og dauða og því klæðumst
við honum í jarðarförum til þess að
túlka sorgina. En þrátt fyrir þessa
túlkun er svarti liturinn algengasti
liturinn í dag við hin ýmsu tilefni
og er nú notaður án þess að tákna
hið fyrrnefnda eingöngu. Svarti lit-
urinn hefur náð að skjóta föstum
rótum í tískunni og fellur aldrei úr
móð, hvort sem er einn og sér eða
ásamt öðrum litum.
Um þessar mundir er svarti litur-
inn sérstaklega vinsæll ásamt hvíta
litnum og eru báðir þessir litir ríkj-
andi, þrátt fyrir að nú sé sumar.
Þetta kann að hljóma einkennilega
ef tekið er mið af árstíðinni, en engu
að síður er þetta raunin og þessir
litir tróna á toppnum. En konur
mega að sjálfsögðu nota aðra liti
samhliða þessum klassísku og búa
þannig til vel tónað dress með öllu
tilheyrandi.
Á meðfylgjandi myndum gefur
að líta nýlega hönnun frá Gucci, An-
tonio Berardi, Lanvin og Carolina
Herrera, sem öll virðast leggja ríka
áherslu á svarta og hvíta litinn.
halldora@bladid.net
Elie Saab
Svart og hvítt passar virkilega vel saman og
gerir heildarútlitið stilhreint og fágað. Þetta
dress er gott dæmi um klassíska blöndu
þessara tveggja lita.
Christian Lacroix
Þetta dress er kannski aðeins of mikið af því
góða og eflaust mætti klæðast einhverju
innanundir, en engu að sfður skemmtiiegur
kjóll og stelpulegur.
Antonio Berardi
Virkilega flott samsetning frá Antonio Ber-
ardi. Kannski ekki fyrir alla, en óneitanlega
fyrir þær sem þora að vera svolítið spes.
Carolina Herrera
Dressið er bæði kvenlegt og klassískt, auk
þess að undirstrika kvenlegan vöxtinn og
glæsileikann. Svona kjól ættu allar konur að
eignast.
Louis Vuitton
Frábær samsetning frá Louis Vuitton.Takið
eftir skónum, veskinu og hattinum sem
skreyta dressið til muna.
Luca Luca
Þessi sumarlegi kjóll frá Luca Luca myndi
passa við öll tilefni; í veisluna, á veitingastað-
inn eða partíið.
Lanvin
Stígvél, svartar buxur og jakki sem setur
punktinn yfir i-ið. Getur ekki klikkað.
BRÚNT OG KLASSfSKT
Flott veski sem passar við hvað sem er. Þægi-
leg stærð og nóg af hólfum fyrir varalitina
og símann.
Verð; 8.495 kr.
GULLJAKKI
Skemmtilegur gulljakki sem fer vel með
gallabuxum, pilsi eða kjól.
Verð: 8.990 kr.
GRÆNN OG SUMARLEGUR
Sætur, stelpulegur og tilvalinn (sólarlanda-
ferðina. Flott að krydda hann með brúnum
hálsmenum, armböndum eða eyrnalokkum.
Verð: 9.495 kr.
Fallegar flíkur í Whistles
íversluninni Whistles í Kringlunni kennirýmisso graso og þar er hægt að kaupa ýmislegt klæðilegt fyrir
sumarið. Hvort sem um ræðir kjóla, veski, toppajakka eða annað er ábyggilegt að allar konur geta
fundið sér fallegar flíkur sem verða vafalaust teknar ósjaldan út úr fataskápnum.
Þessa dagana stenduryfir útsala í versluninni, en hægt er að fá allt að 70% afslátt á vörum.
GRÆNT LEÐURVESKi
Allarkonureiga aðeiga
góð veski í öðrum litum en
bara svörtum og hvítum.
Þetta veski gerir mikiö
fyrir heildarútlitið og setur
mikinn svip á konuna.
Verð: 6.995 kr
DRAPPLITAÐUR KJÓLL
Kvenlegur kjóll sem gerir mikið fyrir línurnar.
Með skemmtilegu rósóttu mynstri sem lífgar
upp á kjólinn.
Verð: 8.495 kr.
RÖNDÓTTUR
HLÝRAKJÓLL
Sumarlegur kjóll sem hentar
bæði hversdags og við ffnni
tilefni. Flottur einn og sér eða
undir klassískan jakka.
Verð: 7.495 kr.
>/' W' 'l
LILLABLEIKUR Á BALLIÐ
Fallegur en sérstakur kjóll sem passar vel í
matarboðln eða á ballið.
Verð: 9.995 kr.
LJÓSTOG RÓSÓTT
Sætur sumarkjóll með
skemmtilegum litum. Hentar
við öll tilefni og fallegur með
Ijósum jakka eða gallajakka.
Verð: 9.995 kr.