blaðið - 10.07.2006, Síða 29
blaðið MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006
MENNING I 29
Listavefur á Netinu:
frá hliðum
Island kynnt
Á menningarnótt í ágúst næstkom-
andi er liðið ár síðan art-iceland.
com opnaði gallerí á Skólavörðustíg
ía. „Það hefur þróast á skemmtilegan
hátt. f upphafi vorum við með með
16 listamenn, en í dag eru þeir 25“ seg-
ir Álfheiður Ólafsdóttir, sem er eig-
andi gallerísins. „Við erum með vef
sem tengist galleríinu. Vefslóðin er:
www.art-iceland.com. Það eru milli
200-300 manns sem heim- s æ k j a
vefinn á hverjum degi.
Aðallega erlendir gestir.
Við leggjum rækt við að
kynna Island ff á hinum
ýmsu hliðum. Skrifum
greinar þar sem feg-
urð landsins er lýst og
höfum við oft fengið
skemmtileg viðbrögð
frá erlendum gest-
um. Það eru margir
sem hafa áhuga á
landi og þjóð. Ekki
skaðar að það er
hægt að festa kaup á listaverkum
í gegnum vefinn. Auk þess er vefur-
inn góð auglýsing fyrir okkur lista-
mennina. Kosturinn við að reka gall-
erí á Skólavörðustíg er að umferðin
er góð og það má segja að verslunin
auglýsi sig sjálf. Gluggarnir eru stórir
þannig að það er skemmtileg mynd-
listasýning fyrir gangandi fólk allan
sólarhringinn.
Við leggjum metnað okkar í að
vera með skemmtilegar uppákomur.
Arnór G. Bieltvedt hélt einkasýningu
í febrúar og fjöllistamaðurinn Algea
frá New York skemmti gestum með
því að spila jazz, reggae og funk tón-
list á trommur, flautur, afrískt ka-
limba og samsláttarhljóðfæri. Hann
var einnig að kynna eigin hönnun á
skemmtilegum höttum.
Galleríið er stöðugt með örsýning-
ar í Ostabúðinni á Skólavörðustíg 8.
Birna Smith var að opna sýningu þar
núna fyrir helgi og stendur sú sýning
yfir í tvo mánuði. Við ætlum að vera
með stórar samsýningar í Mublunni
í Kópavogi. Fyrsta samsýningin þar
opnar þann 29. júlí. Listamennirnir
sem renna á vaðið verða Árni Rún-
ar Sverrisson, Helga Sigurðardóttir
og Álfheiður Ólafsdóttir. Bjóðum
við alla velkomna á þessa fyrstu stór-
sýningu gallerísins. Við munum til-
kynna næstu sýningar þegar það er
komið í ljós hverjir verða næstir í röð-
inni. Vð höfúm ekki minni nöfn en
Kjartan Guðjónsson, Sigurð Örlygs-
son og fleiri sem verða með sýningar
í Mublunni í framtíðinni.
Ég hef oft verið spurð að því hvort
ég sé eingöngu með menntaða
listamenn f galleríinu.
Ér hef ekkert á móti
góðri menntun, nema
síður sé. Okkar ástsæh
Jóhannes Kjarval var
ekki hámenntaður, hann
töffaði frarn litina ffá
náttúrunni í gegnum fing-
urna eins og fyrir eitthvað
óskiljanlegt ævintýri. Eru
það alltaf bestu listamenn-
irnir sem eru hámenntaðir
? Ég tel að það sé ekki þann-
ig og vel inn gott fólk, óháð
menntun.
Á menningarnótt verður galleríið
ársgamalt og í tilefni af því verður
heilmikil dagskrá. Hljómsveitin
Hjónabandið mun kynna nýútkom-
inn disk sinn og einnig ætlar María
Jónsdóttir og niðjar hennar að kveða
nokkrar stemmur. Það verður þjóð-
leg stemning á mennigarnótt hjá okk-
ur í art-iceland.com á Skólavörðustíg
ia,“ segir Álfheiður.
Kiljurfrá JPV:
Guðbergur á kilju
Nýjar bækur:
Ekki nógu
skotinn
Steingrímur Eyfjörðfer á Feneyja-Tvíœringin:
Von á milljón gestum
Listamaðurinn Steingrímur Eyfjörð
hefur verið valinn fulltrúi fslands á
Feneyja-Tvíæringnum á næsta ári.
Á síðasta ári komu tæplega milljón
sýningagestir á sýninguna en hún
er talin vera ein mikilvægasta sýn-
ing á nútímalistaverkum í heimin-
um.
Steingrímur er einn þeirra lista-
manna sem leitar f íslenskan menn-
ingararf og vinnur með undirmeð-
vitundina. í myndlist Steingríms er
allt ferlið við listsköpunina hluti af
listaverkinu og spilar undirbúnings-
ferlið ekki síður veigamikinn þátt í
sýningum hans.
Áhugavert verður að fylgjast með
því hvað hann sýnir á Feneyja-Tví-
æringnum að ári.
JPV útgáfa hefur sent frá sér í kiljuút-
gáfu Sú kvalda ást sem hugarfylgsn-
in geyma eftir Guðberg Bergsson. f
kjallaraherbergi úti í bæ kúrir mið-
aldra maður og bíður þess að félag-
inn berji að dyrum. Þar leita þeir
nautnar sem er ósýnileg heimin-
um, rammflæktir í íslenskum hnút,
innst í völundarhúsi ástarinnar.
Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin
geyma kom fyrst út árið 1993 og var
tilnefnd til íslensku bókmennta-
verðlaunanna sama ár. Bókin hlaut
afar góða dóma á f slandi og víða um
heim.
JPV útgáfa hefur sent frá sér
The Lodger and Other Stories eftir
Svövu Jakobsdóttur. f bókinni er að
finna enskar þýðingar á skáldsög-
unni Leigjandanum, auk úrvals af
smásögum Svövu. Julian Meldon
D'Arcy þýddi Leigjandann og allar
sögurnar nema tvær sem Alan Bouc-
her og Dennis Auburn Hill þýddu.
Inngang að bókinni ritar Ástráður
Eysteinsson.
Svava Jakobsdóttir var einn
fremsti rithöfundur íslendinga á 20.
öldinni. Hún var auk þess baráttu-
kona fyrir jafnrétti og hafði mikil
áhrif á sinn samtíma með sögum
sínum, leikritum og fræðiskrifum.
Hún braut blað í íslenskri sagna-
gerð og fáir deila um þær nýjung-
ar sem hún innleiddi varðandi
söguefni og frásagnahátt. Hún var
frumkvöðull og hefðarbrjótur bæði
á sviði skáldskapar og skáldskap-
Guðberg Bergsson
arfræða en á seinni árum vöktu
fræðilegar ritgerðir hennar um bók-
menntir mikla athygli.
Svava var í hópi þeirra rithöfunda
sem komu með nútímann inn í ís-
lenskar bókmenntir. Hún leiddi til
sögunnar konur og tókst með ein-
att ögrandi og írónískum furðustíl
sínum að fletta ofan af hefðbundn-
um hlutverkum karla og kvenna og
beina spjótunum að viðjum þess
vana sem beislar manneskjuna. Sög-
ur Svövu segja frá venjulegu fólki en
með því að brjóta upp tíma, rúm og
aðstæður og skapa þannig eins kon-
ar furðuveröld, kryfur Svava inn að
beini óréttlæti og mismunun. Hún
segir jafnt frá aðstæðum kvenna og
karla, þótt konur séu oftast í aðal-
hlutverkum í sögum hennar.
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út
bókin Hann er ekki nógu skotinn í
þér eftir Greg Behrendt og Liz Tucc-
illo. Þóra Sigurðardóttir þýddi. Öld-
um saman hafa
konur komið
saman yfir kaffi
og kokkteilum
og talað sig hás-
ar um karlmenn
og furðulegt
háttalag þeirra.
Höfundar þessar-
ar bókar halda
því fram að karl-
menn séu ekki
mjög flókin fyrirbæri.
Hjá Máli og menningu eru komn-
ar út tvær skemmtilegar bækur fyrir
yngstu bókaormana, Max fer á leik-
völlinn og Max fer í feluleik. Bæk-
urnar eru eftir belgíska listamann-
inn Guido van
Genech-
ten og
þýddar af
Kristínu
S t e i n s -
dóttur.