blaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 12
12 I ÁLIT
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 blaöið
blaðið-------------------------------------------
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjórar: Erna Kaaber
Ritstjórnarfulitrúi: Janus Sigurjónsson
Hundalógík
Merkilegt að heyra í ráðamönnum um hátt matarverð og hvað ber að gera til að
létta okkur lífið, leyfa okkur að búa við ámóta verðlag og þekkist hjá öðrum þjóð-
um.
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í gær að alls ekki sé víst þó að
ríkið losi um sínar heljaklær og falli frá hluta þess sem það leggur á lífs-
nauðsynjarnar að það skili sér til neytenda, hann sagði það bara alls ekki
víst. Fákeppni í verslun er það mikil að mati ráðherrans að allsendis er
óvíst að lækkun skatta og lækkun á álögum hins opinbera skili sér til neyt-
enda. Skilja mátti forsætisráðherrann þannig að fjandans kaupmennirnir
myndu hirða allt sem sparast. Hann tók sem dæmi að sælgæti seljist fínt
og ef opinberar álögur verða lækkaðar sé allt eins hægt að reikna með að
kaupmennirnir lækki nammið ekki, heldur hagnist sjálfir á hugsanlegum
breytingum. Það var og. Fleira hefur verið nefnt og sá ótti er uppi núna
að ráðamenn geri fátt til að lækka matarverðið, með þeim rökum að kaup-
mönnum, sem eru sagðir í fákeppni og þá væntanlega ekki í nógri sam-
keppni, hirði allt sem neytendum er ætlað.
Það væri í lagi að reyna, ráðamenn. Reynum kaupmennina, reynum
milliliðina, reynum hvert á annað og sjáum til hvort við getum ekki bara
treyst hvert öðru. Það er ekki mikils virði að neita að framkvæma bara
vegna vissu um að einhverjir muni svindla.
Sami tónn heyrist hjá svo mörgum stjórnmálamönnum þegar þeir verj-
ast lögum á fjármál og fjárreiður stjórnmálaflokka. Þeir segja að ekki sé
hægt að setja lög einsog þekkjast í öðrum löndum, jú vegna þess að ein-
hverjir muni bara fara í kringum lögin. Með svo rakalausum rökum hefur
stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum tekist að verjast lögum um
eigin starfsemi.
Það setur að mörgum kaldan hroll þegar sama, eða svipuð, hundalógik
heyrist þegar verið er að ræða jafn knýjandi mál og lækkun matarverðs.
Fyrirfram gefinn ótti um illsku kaupmanna má ekki verða til þess að ekk-
ert breytist. Fólkið í landinu hlýtur að benda ráðamönnum á að þetta er
ekki þolandi. Það er augljós krafa um að gera breytingar, svo sterk krafa
að aum hundalógík má ekki verða til að þess að ekkert eða alltof lítið verði
gert.
Engin rök eru heldur nógu sterk til að renna stoðum undir þær umkvart-
anir, að breytingar á verndartollum og afnám annarra hafta sé aðför að
landbúnaði, bara alls ekki. íslenskur landbúnaður er fínn, svo fínn að frá
honum koma kannski fínustu matvæli í heimi. Það mun ekkert breytast,
það er frekar að neysluvenjur muni breytast og fari svo að íslenskar vörur
verði dýrari en innfluttar er fjarri lagi að halda að við munum ekki oft og
iðulega velja íslenskar vörur. Við viljum bara fá að velja, eins og og aðrar
þjóðir.
Vonin er samt ekki mikil, nánast afar veik. Tónninn í þeim sem mestu
ráða er ekki betri en svo að sennilega verður enn aftur kosið að gera ekkert,
eða sem minnst. Og að áfram verðum við að sætta okkur við þrengri kost,
aðeins vegna kjarkleysis ráðamanna.
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsimi: 510 3700 Simbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: (slandspóstur
Oriental BBQ-marinerin? meittara flr?entínu komin í vmlanir
Oriental BBQ-marinering meistara Argentínu steikhúss
hefiir notið gríðarlegrar hylli gesta staðarins í 16 ár.
Nú er þessi óviðjafnanlegi kryddlögur fáanlegur í verslunum
svo að eldklárir grillmeistarar heimilanna geta nýtt sér hann
til aukinna vinsælda í sumar.
FullkomnaÍu grillsteikina að hatti Argentinu steikhúss!
WICEEEEEES K^NAN
V/t H Mi) KoMH) % eru mtiViWR
''iSLe.NDÍWDA PVRÍR BOTKÍ MitfJAR-PARfrAFS. ÚÆStA SKR£F
HLÝtUR. AP VERA w AFM'A VFíRRðfcOi ja(WAH
— NAEí) GUí)S V'jLjA
Stórfyrirtæki og skætingur þeirra
Opið bréftil Hannesar Smárasonar
Mér er sagt að þú eigir Icelandair.
Ég hef nú oft reynt að skrifa ykkur
en er ekki svarað. Því er best að ég
skrifi hér. Þið skuldið mér semsagt
peninga, samtals 106.550 kr.
Ég þurfti til Jótlands í sumarhá-
skóla. Og þið týnduð fyrir mér tösku,
sem er ekki merkilegt ef reynt væri
að bæta úr. En þjónustan öll var verri
en hjá skattinum. Byrjaði svosem
ekki illa. Ég gaf skýrslu hjá fyrir-
tæki á Kastrup sem heitir Servisair
GASC. Mér sagt að hringt yrði í mig
á morgun eða alveg á næstunni. Beið
fram á mánudag í Kaupmannahöfn
enda í töskunni allt lesefni sem
ég átti að nota í skólanum, lyf og
nokkrar bækur sem ég vinn í þessa
dagana og voru allar uppmerktar, en
bakvið þær merkingar voru giska
margar vinnuvikur.
Enginn heima
Ég reyndi ég öðru hvoru að hringja
í hið virta töskufyrirtæki en tókst
aðeins einu sinni að ná sambandi og
var þá svarað með skætingi.
Gerði álíka misheppnaðar tilraunir
til að hringja í Flugleiðir, fyrirgefðu,
Icelandair, heima á Islandi, en náði
þar aldrei tali af neinum sem taldi
koma sér við þó fyrirtækið týndi
tösku. Á mánudag sendi ég bæði
danska fyrirtækinu og netföngum
sem ég fann á www.icelandair.is bréf
þar sem ég gerði grein fyrir vand-
ræðum mínum vegna töskunnar.
Námskeiðið væri nú hafið og ég bæði
bókalaus og hálfvegis heilsulaus.
Danirnir sendu ekkert svar en
Icelandair sendi mér nokkur auglýs-
ingabréf þar sem mér var bent á hvað
frábært væri að skipta við fyrirtækið.
Þegar ég sendi inn kvörtun yfir þess-
ari vélrænu og ómerkilegu afgreiðslu
á erindi mínu sendi svokölluð fjar-
sala mér nafnlaust bréf þar sem bent
Bjami Harðarson
var á að netfangið sem sæi um svona
mál héti baggage@igs.is. Ég hafði frá
því fyrsta sent bréfin á það netfang
einnig og sendi nú bréf þangað í
þriðja sinn án árangurs.
Á miðvikudag var hringt frá Ser-
visair og mér sagt að taskan væri
komin í leitirnar og kæmi daginn
eftir. Ég þakkaði í auðmýkt en engin
kom taskan.
Taskan finnst en ekkert gerist
Þegar komið var langt fram á föstu-
dag hringdi ég aftur í danska tösku-
fyrirtækið, þar sem ég náði samband
eftir margar tilraunir og 48 mín-
útna bið í síma, sem kostar svolítið
þegar farsíminn er tengdur á Islandi.
Jú, taskan var ennþá á Kastrup, en
til stóð að senda hana með flugi til
Billund. Þaðan með flutningabíl til
Árósa og svo einhvern veginn upp
í háskólann þar. Þetta myndi auð-
vitað taka nokkra daga.
Ég reyndi að malda í móinn og
sagðist ekki trúa því að ekki mætti
gera þetta með ögn skjótari hætti.
Jú, svaraði daninn. „But, Icelandair
does not pay for that.“
Og Icelandair svarar ekki póstum
frá mér, svo hvað veit ég? Taskan á
eftir að þvælast milli manna líklega
langt fram yfir það að kúrsinn í Ár-
ósum er búinn og ég kominn heim.
Og líklega töpuð mér með ómetan-
legu innihaldi.
Ég skynjaði í öllu þessu máli hvað
stórfyrirtæki eru ómanneskjuleg,
samviskulaus og sennileg til að veita
slæma þjónustu þegar virkilega á
reynir að hún sé góð. Hvað ég var
litill og ómerkilegur í þeirra heimi
þegar mér var svarað með auglýsinga-
pósti og öðrum skætingi.
Ég bað danskinn á Kastrup að setja
töskuna á leigubil og borgaði bílstjór-
anum möglunarlaust 4.064 danskar
krónur eða 53.275 kr. fyrir. Annað
eins tel ég lágmark fyrir öll óþægindi,
hótel, símakostnað, tíma og leiðindi
sem í málið fóru. Semsagt krónur
106.550. Þú getur, Hannes, borgað
þessa upphæð inn á ávísanareikn-
inginn minn sem er númer 14395 í
Landsbankanum hér á Selfossi. Ekki
láta það um þig spyrjast að þú sért
sjálfur orðinn eins og stórfyrirtæki!
Kær kveðja
Bjarni Harðarson.
Höfundur er ritstjóri
Sunnlenska fréttablaðsins.
Klippt & skorið
Þegar Fréttablaðinu í gær var fletí
mætti ætla að Jónína Bjartmarz
væri i kosningabaráttu. Þar mátti lesa
aðskiljanlegar fréttir
um það að umhverfis-
ráðherra mætir í vinn-
una. En fyrst Guðni
Ágússtson, eljari
Jónínu um hylii fram-
sóknarmanna, á ekkert
málgagn er klippara
Ijúft að upplýsa að þó allir séu að tala um
matarverð og landbúnaðarstyrki, er það helst
tíðinda úr landbúnaðarráðuneytlnu ef marka
má vef þess (www.landbunadarraduneyti.is)
að laus ertil leigu lóð í Flatey á Skjálfanda.
Annars er gaman að fylgjast með
viðbrögðum við matvælaskýrslunni
frægu. Geir H. Haarde, forsætisráð-
herra, segir að stjórnarflokk-
arnir séu sammála um að verja
verði islenskan landbúnað og
að ekki megi vaða yfir einstaka
atvinnugreinar með þjösna-1
skap. Á sama tíma sendir Borgar Þór Einars-
son, stjúpsonur Geirs og formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna, frá sér yfirlýsingar
um að sjálfsagt sé að jafnræðis sé gætt í skatt-
lagningu matvæla og að það sé ekki hlutverk
ríkislns að ástunda neyslustýringu með slíkri
skattlagnlngu „líkt og ein-
stakir stjórnmálamenn virðast
aðhyllast." Þeir eiga sjálfsagt
eftir að ræða þetta betur yfir
hryggnum um helgina.
Annars er merkilegt hvað margir stjórn-
málamenn kvarta undan einelti þessa
dagana. Eggert Haukdal skrifar í
Morgunblaðið í gær um hvernig hann hafi sætt
pólitískum ofsóknum og ekki sist af hálfu sam-
flokksmanna sinna. Daginn áður hafði þing-
maðurinn Björgvin G. Sigurðsson kvartað
undan því sem hann sagði einelti og róg í garð
forystu Samfylkingarinnar. (
sama mund ferðast Halldór
Asgrímsson á kveðjufunda-
ferðalagi sínu um landið og
segir einelti fjölmiðla helstu
ástæðu ófara framsóknarmanna. En ættu
menn ekki að velja sér annan starfsvettvang
en stjórnmál ef andstreymið er þeim svo erfitt?
andres.magnusson@bladid.net