blaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 6
6 I FRÉTTZR
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaöíð
Liverpool-búi leggur land undir fót:
Heimsækir Liverpool
í öllum heimshornum
Phil Bimson, 50 ára gamall maður
frá Liverpool á Englandi, hyggst
heimsækja alla staði í heiminum
sem bera nafnið Liverpool. Til þess
þarf Bimson að ferðast tæpa 50 þús-
und kílómetra en staðirnir eru sjö
„Mig langar að verða fyrstur til þess
að koma allra staða ( heiminum
sem heita Liverpool," sagði Bimson.
Fimm staðir eru í Bandaríkjunum,
einn er í Nova Scotia í Kanada er
einn og þá er einn í Ástralíu.
Frá Liverpool á Englandi.
Meindýr á vergangi
Guðmundur Björnsson,
meindýraeyðir Reykjavík-
urborgar, skýtur máva og
minka. Mynd/Þorkell
Borgarbúar svefnvana vegna óláta í sílamávum:
Mávarnir halda
fólki andvaka
■ Borgarbúar andvaka vegna mávanna
■ Andarungum fer líka fækkandi á Akureyri
Eftir Val Grettisson
Sílamávarnir sem leitað hafa inn
fyrir borgarmörkin halda vöku fyrir
borgarbúum á nóttinni að sögn Guð-
mundarBjörnssonar,meindýraeyðis
Reykjavíkurborgar. Hann hefur
fengið fjölmargar kvartanir af öllum
toga vegna mávanna og þar á meðal
frá svefnlausum borgarbúum.
Borgarbúar svefnlausir
„Við fáum oft kvartanir vegna
láta í mávum um nætur,“ segir Guð-
mundur en mávurinn kemur sér
oft fyrir í húsagörðum og á ljósa-
staurum nálægt húsum, svo gargar
hann inn í nóttina, nálægum íbúum
til mikils ama.
„Þeir eru ekkert frekar á einu
svæði heldur en öðru, þeir koma sér
bara fyrir þar sem þeir geta,“ segir
Guðmundur og ljóst er að enginn er
óhultur fyrir látunum í þeim.
Að sögn Guðmundar eru kvartanir
af öllum toga. Hann segir að kvartað
sé yfir því að hann taki steikur af
grillum. Einnig er nokkuð kvartað
yfir því að hann éti andarunga líkt
og kom fram í Blaðinu í gær.
Tekur tíma
Að sögn Guðmundar mun máva-
stríðið taka töluverðan tíma og ekki
mun mikið breytast á þessu ári.
Hann segir að það sé ekki fyrr en
eftir tvö ár sem einhver sjáanlegur
árangur verður en mikilvægt sé að
önnur sveitarfélög leggist á eitt ásamt
borginni. Hafnarfjörður er nýbúinn
að tilkynna að þeir múni einnig farga
mávum og svo hefur Álftanes slegist
i hóp hinna staðföstu.
Ónáða á Akureyri
Mávuarnir eru ekki eingöngu að
gera óskunda á höfuðborgarsvæð-
inu því nokkuð hefur farið fyrir
hettumávum á Akureyri.
Að sögn Þengils Stefánssonar,
meindýraeyðis Akureyrarbæjar,
mun hettumávurinn vera ansi árás-
argjarn þegar er verið að gefa önd-
unum brauð á Pollinum. Þeir ráðast
beinlínis á endurnar.
„Hettumávurinn er friðaður yfir
sumartímann þannig við erum ekki
að skjóta hann en það er ótrúlegt
hvað hann kemur tímanlega því
mávurinn sést ekki í bænum fyrir
en í apríl,“ segir Þengill en bannið
nær frá 1. apríl til 1. september.
Skelflleg afföll
„Við verðum vör við að mávarnir
eru meira inn 1 bænum en áður var,“
segir Þengill en bætir við að ástandið
sé ekki jafnslæmt og í borginni. Hann
segir að þeir skjóti máva á hverju
sumri og það sé ekki meira um það
nú heldur en hefur verið áður.
Að sögn Þengils hefur einnig verið
áberandi að fáir andarungar kom-
ast upp líkt og í Reyjavík, en það sé
frekar við ketti að sakast en máva,
enda meira kvartað vegna katta en
máva.
„Þau eru samt skelfileg afföllin hjá
ungunum," segir Þengill samúðar-
fullur í garð þessa meinlausu fugla.
valur@bladid.net