blaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 10
10 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaðið
Mynd/JimSmarl
Landsflug:
Áfram með sjúkraflug
Samningi um sjúkraflug milli
Vestmannaeyja og Reykjavíkur
verður ekki rift af hálfu heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytis-
ins og Tryggingastofnunar ríkis-
ins að svo stöddu. Komið hefur
upp sú staða að sjúkraflug hefur
ekki verið tiltækt þegar á þurfti
að halda. Vildi Vestmannaeyja-
bær því láta endurskoða samning-
inn til þess að athuga hvort um
brotalöm væri að ræða að hálfu
Landsflugs. Mat ráðuneytisins var
hins vegar það að Landsflug hefði
staðið við sitt og að samningi yrði
ekki rift.
48%
fituskert
og eggjalaus
gerir gœfumuninn
VOGABÆR
Síml 424 6525 www.vogabaer.is
Strætó:
Björn Ingi vill ekki
skerða þjónustu
■ Vill endurvekja leið S5 ■ Útilokar ekki úrgöngu úr Strætó bs.
■ Gjaldfrelsi enn í myndinni
uninni við; nýting vagnanna sé
öldungis óviðunandi og farþegum
fækki í sífellu. Hann telur að ytri
þættir líkt og fjölgun fjölskyldubíla
og gisnari byggð valdi þarna nokkru,
en ekki verði hjá því litið að ekki hafi
verið brugðist nægilega vel við.
„Maður heyrir bullandi óánægju
með margar þær breytingar, sem
gerðar voru á leiðakerfinu, og síðan
kemur þessi gífurlegi hallarekstur
upp á yfirborðið rétt eftir kosningar,"
segir Björn Ingi og leggur áherslu á
að gerð verði stjórnsýsluleg úttekt
á Strætó, svo menn átti sig betur á
stöðunni og þeim kostum, sem til-
tækir eru.
Björn Ingi segir ekki sérstakt
metnaðarmál af hálfu Rekjavíkur-
borgar að losa sig út úr byggðasam-
laginu Strætó. „En þannig
háttar til, að borgin hefur aðeins
einn fulltrúa í stjórn fyrirtækisins
líkt og hin sveitarfélögin, en við
borgum 70% af kostnaðinum. Það
er engin sanngirni,“ segir Björn Ingi.
.Sérstaklega þegar litið er til þeirrar
ótrúlegu tilviljunar, að niðurskurð-
arleiðirnar, sem stjórn Strætó hefur
bryddað upp á, bitna fyrst og fremst
á Reykvíkingum." Segir hann að
menn þurfi að leggja á það kalt mat
hvernig hagsmunum borgarbúa sé
best borgið.
En hvað með hugmyndir, sem
Björn Ingi kynnti í kosningabarátt-
unni um gjaldfrelsi í Strætó fyrir til-
tekna hópa? „Sú hugmynd lifir góðu
lífi og er raunar ættuð frá nafna
mínum, Birni Inga Sveinssyni, borg-
arverkfræðingi. Meirihlutinn er
sammála um að gera eigi
slíka tilraun, en mér
finnst á hinn bóginn
rétt að bíða stjórn-
sýsluúttektarinnar
áður en menn gára
vatnið frekar."
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs, segir ljóst að grípa verði
til skjótra aðgerða til þess að leysa
rekstarvanda Strætó bs., en telur
að það verði ekki gert með því að
skerða þjónustu við borgarana. „Það
eru engar töfralausnir til á vanda
Strætó, en það að fækka leiðum og
minnka tíðnina eru engar lausnir í
mínum huga,“ segir Björn Ingi í sam-
tali við Blaðið. „Sérstaklega finnst
mér bagalegt að ein af stofnleið-
unum sex skuli lögð af sisona,“ segir
Björn Ingi.
„Auðvitað vissum við að Strætó
stæði ekki vel, en við höfðum enga
hugmynd um að ástandið væru jafng-
rafalvarlegt og nú er komið á daginn."
Hann segir liggja fyrir að leiðakerf-
isbreytingin hafi engan veginn náð
að snúa
Par vann 200 milljónir í lottói:
Vinna áfram
á McDonalds
Alþýðlegt breskt par sem datt
í lukkupottinn og vann hátt í
200 hundruð milljónir í lottói á
dögunum ætlar ekki að hætta að
vinna og njóta lífsins í krafti hins
nýfengna auðs. Þau Emma Cox og
Luke Pittard, sem eru bæði á þrí-
tugsaldri, ætla að halda áfram að
starfa við að grilla hamborgara á
McDonalds í Cardiff í Wales. Hins
vegar ætla þau að nota hluta vinn-
ingsins tilþess að finna sér hentuga
fasteign en fram til þessa hafa þau
ekki haft ráð á að kaupa fasteign
sökum lágra launa. Emma hefur
búið, ásamt tveggja ára gamalli
dóttir sinni, hjá foreldrum sínum á
meðan kærasti hennar hefur búið
hjá sínum foreldrum í nágrenninu.
McDonalds hefur verið örlaga-
valdur í lífi þeirra beggja. Emma
Cox hóf störf hjá McDonalds-
staðnum sem hún vinnur hjá í dag
fyrir sextán árum. Á þessum sex-
tán árum hefur hún unnið sig upp
og er nú yfirmaður staðarins. Fyrir
um fjórum árum hóf Luke störf á
staðnum og felldu þau snemma
hugi saman.
Duttu í lukkupottinn Ólíkt Lýöi Oddsyni,
sem auglýsir tyrir íslenska getspá, ætla
Emma og Luke ekki aö hætta að vinna
eftir aö hafa unnið ílottói.
Parið uppgötvaði að þau höfðu
unnið í lottóinu á þriðjudag. Til
þess að fagna lukkupottinum fóru
þau út að borða. Að sjálfsögðu varð
McDonalds fyrir valinu.
Byggingavísitala Endurskoöaðir
kjarasamningar hafa áhrif.
Byggingavísitala:
Hækkar
um 4,14%
Vísitala byggingakostnaðar,
reiknuð eftir verðlagi um miðjan
júlí, hækkaði um 4,14% frá fyrra
mánuði samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu íslands. Endurskoð-
aður kjarasamningur iðnaðar-
manna og verkafólks tók gildi í
upphafi mánaðar og hækkuðu
þá laun í byggingavísitölunni að
meðaltali um 8,1% vegna þessa.
Áhrif þess á vísitöluna voru 3,2%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala byggingakostnaðar hækkað
um ix,8%.