blaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 12
12 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaóiö
blaðið---------------------------------------------
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjóri: Erna Kaaber
Ritstjórnarf ulltrúi: Janus Sigurjónsson
Erindi í alþjóða-
samfélaginu
Svo virðist sem þverpólitísk samstaða hafi myndast um framboð fs-
lands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Almenn sátt virðist um það
á Alþingi að nauðsynlegt sé að rödd íslenskra stjórnmálamanna heyrist á
þessum vettvangi, þó efasemdir hafi heyrst utan þingsala.
En slíkt framboð snýst ekki aðeins um metnað íslenskra stjórnmála-
manna og utanríkisþjónustunnar. Lítum út fyrir landsteinana og hugsum
málið:
Ríkisstjórn fsraels hefur í öllu nema orði lýst yfir stríði gegn Líbanon
vegna aðgerða vígamanna Hizbollah í síðustu viku og Gaza logar af ófriði.
frak er á barmi borgarastríðs milli trúarbragðahópa. Spennan gagnvart
kjarnorkuáætlun klerkastjórnarinnar í Teheran magnast, tilraunaskot N-
Kóreumanna á langdrægum eldflaugum hafa aukið á spennuna í Asíu og
hryðjuverkin í Mumbai hafa enn aukið titringinn á þeim slóðum, ekki síst
milli kjarnorkuveldanna Indlands og Pakistans.
Öll þessi flóknu mál eiga það sameiginlegt að þau koma inn á borð
öryggisráðsins. f því ljósi er ekki út í hött að velta eftirfarandi fyrir sér:
Hvaða afstöðu hafa þeir íslensku stjórnmálamenn sem telja mikilvægt að
rödd íslands heyrist á vettvangi öryggisráðsins til þessara mála? Hvers
vegna liggur sú afstaða ekki fyrir með skýrari hætti?
Nauðsynlegt er að stjórnmálamenn tali skýrri röddu í alþjóðamálum.
Ekki einungis út frá þeim augljósu sannindum að þegnar lýðveldisins
eigi rétt á að vita hvaða afstöðu fulltrúar þeirra hafa til átaka samtímans.
Það er einnig nauðsynlegt vegna þess að fái íslendingar stuðning til setu
í öryggisráðinu þurfa þeir að taka afstöðu í vandasömum málum. Hvað
munu fulltrúar þjóðarinnar taka til bragðs, svo dæmi sé tekið, ef viðskipta-
hagsmunir skarast við almenna réttlætiskennd?
Frá og með lokum kalda stríðsins hefur íslensk utanríkisstefna meðal
annars einkennst af mikill áherslu á eflingu þátttöku fslands i alþjóða-
viðskiptum og á að auka aðgengi íslenskra fyrirtækja að erlendum
mörkuðum. Þessi stefna hefur meðal annars haft í för með sér að þræðir
íslenskra viðskiptahagsmuna liggja mun víðar en áður. Þessi staðreynd
gerir stöðu fslands á vettvangi öryggisráðsins flóknari en ella. Eindregin
afstaða í flóknum deilumálum munu hafa afleiðingar fyrir hagsmuni ís-
lands í öðrum málaflokkum.
Þögn íslenskra stjórnmálamanna um helstu deilumál samtímans
bendir til þess að þeir ætla að hegða sér á vettvangi öryggisráðsins eins
og fulltrúar margra annarra smáríkja gegnum tíðina: gera sem flestum til
hæfis, rata mótstöðulausustu leiðina og hafa hugfast að hjáseta er einatt
þægilegust. Þarf öryggisráðið og heimsbyggðin á slíkri röddu að halda?
Örn Arnarson.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: íslandspóstur
Galskap í systeminu
Fyrir margt löngu, þegar frjálshyggj-
unni fór að vaxa fiskur um hrygg í lok
áttunda áratugarins, urðu margir til
þess að efast um gildi frelsisins. Fljót-
lega ráku þó flestir þeirra sig á það, að
andstaða við frelsið var ekki líkleg til
vinsælda. Gripu andstæðingar frjáls-
hyggjunnar þá til þess að reyna að
gera hana og helstu boðbera hennar
tortryggilega með því að kappkosta
andstöðu sína við „nýfrjálshyggj-
una“ og gáfu sterklega til kynna að
auðvitað vildu þeir standa vörð um
gömlu góðu frjálshyggjuna, hver svo
sem munurinn átti nú að vera.
Einn þeirra, sem talaði niður til
frjálshyggjunnar með þessum hætti,
var Albert heitinn Guðmundsson,
sem var óljós hægrimaður, mikill
fyrirgreiðslupólitíkus og fór gjarnan
eigin leiðir eftir því sem vindar blésu.
Raunar hugsa ég að honum hafi al-
mennt verið fremur uppsigað við allar
hugmyndir um breytingar, því hann
talaði aldrei öðruvísi um Heimdall
- sem þá var hugmyndadeigla Sjálf-
stæðisflokksins - en sem „stuttbuxna-
deildiná'. Þótti sumum það uppnefni
koma úr hörðustu átt, í ljósi þess að Al-
bert var fýrsti atvinnumaður íslands
i fótbolta og hafði sjálfsagt enginn
fslendingur komist jafnlangt á stutt-
buxum og hann.
Lögreglunni sigað á slökkvilið
En einhverju sinni þrey ttist einhver
á þessu tali hans um „nýfrjálshyggju"
- gott ef það var ekki Óli Björn Kára-
son - og spurði karlinn að því á stjórn-
málafundi í Háskólabíói hvað þessi
,nýfrjálshyggja“ eiginlega væri. Albert
var að venju skjótur til svars. Um
þær mundir stóðu vinnudeilur, þar
sem slökkviliðsmenn höfðu hótað
útgöngu og verið bent á að ólöglegar
aðgerðir af því tagi yrðu ekki látnar
Andrés Magnússon
óátaldar. Þetta tilefni nægði Alberti
og hann svaraði að bragði: „Nýfrjáls-
hyggja, það er þegar lögreglunni er
sigað á slökkviliðið!"
Auðvitað var þetta svar hans merk-
ingarlaus þvæla, en það dugði samt,
því salurinn sprakk úr hlátri og Al-
bert náði að sýna á hvaða mið hann
reri í sínum áróðri.
En kannski það hafi verið punktur
í þessu hjá karlinum eftir allt saman.
Var hann kannski að reyna að koma
orðum að því, að umræða um hlut-
verk hins opinbera hefði aldrei átt sér
stað hérlendis, hvað þá að hún væri
til lykta leidd? Var Albert að ýja að
því, að verulega skorti á mörk og mót-
vægi í íslenska stjórnkerfinu? Að hug-
myndafræðileg rökræða ætti erindi í
dægurdeilurnar?
Tvær víglínur í Leifsstöð
Þetta flaug mér í hug þegar ég átt-
aði mig á hinni tvöföldu víglínu, sem
nú liggur um Leifsstöð, hvor þvert á
hina.
Annars vegar hefur ríkið þurft að
leita á náðir fýrirtækjanna Securitas
og Öryggisþjónustunnar um að ann-
ast öryggisleit í Leifsstöð á farþegum,
sem hingað koma frá löndum utan
Evrópusambandsins. Þykir mörgum
einkar óheppilegt að valdheimildir
til þess að leita á fólki séu framseldar
með þeim hætti og þá eru ótalin sjón-
armið verkalýðsleiðtoganna, fána-
liðsins og þeirra allra.
Hins vegar sætir ríkið svo kæru
til Eftirlitsstofnunar EFTA fyrir að
standa í verslunarrekstri í þessari
sömu Leifsstöð, þar sem enginn
vandi virðist vera að finna opinbera
starfsmenn til þess að dæla brenni-
víni og gotteríi í þreytta ferðalanga.
Þetta er náttúrlega svo galið, að
engu tali tekur. Hvað næst? Verða
ráðuneytin boðin út meðan hið
opinbera snýr sér alfarið að rekstri
hárgreiðslustofa?
f þessum efnum þarf ríkisstjórnin
að taka sér taki og raunar allir stjórn-
málamenn, hvar í flokki, sem þeir
standa. Umræðan kann að vera löng
og hún kann að vera leiðinleg, en
það þarf að komast að almennri nið-
urstöðu um það hvert hlutverk ríkis-
ins er og síðan þarf það að halda sig
innan þeirrar girðingar.
Höfundur er blaðamaður
Klippt & skorið
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráð-
herra, þykir hafa sýnt mikið rögg með því
að senda júmbóþotu yfir hnattfjórðung
til þess að sækja Islendinga til Mið-
jarðarhafsbotns vegna ófriðarins
í Líbanon. Sumir hafa þó á orði að
viðbrögðin hafi verið fullfumkennd.
Segja þeirað vafalaust hefði mátt finna minni far-
arskjóta. Aðrir klóra sér þó í höfðinu yfir því hvers
vegna þurfti að senda vél eftir fólkinu, fyrst það
komst heilu og höldnu frá Beirút til Damaskus,
en ekki er vitað til þess að bráð hætta vofi yfir
þeirri elstu borg heims, en sjálf hefur Valgerður
kynnt þá skoðun sína að mesta ógn á svæðinu
stafi af ísraelsmönnum. Nema náttúrlega að hún
viti meira en hún lætur uppi, en meðal erlendra
ráðamanna og fjölmiðla er gengið út frá því sem
vísu að Sýrlendingar og (ranir hafi ýtt atburðarás-
inni af stað, hugsanlega til þess að beina athygli
alþjóðasamfélagsins frá brýnni málum, sem þá
varðar.
r
Iþví samhengi var athyglisvert að hlýða á við-
tal, sem tekið var við Ölmu Hannesdóttur
áNFSígær, en hún er ein
(slendinganna, sem komu á
vegum Valgerðar til íslands.
Alma hefur verið búsett (
Líbanon um nokkra hrið og
lá hún ekki á þeirri skoðun
sinni að mikilvægast væri fyrir Libanon að hryðju-
verkasamtökunum Hizbollah yrði útrýmt, svo
hernaðurinn hefði einhverja þýðingu. Svo mætti
koma á friði. Gaman væri að heyra hvað utanríkis-
þjónustunni finnst um það sjónarmið.
elgi Seljan hefur sótt mjög í sig veðrið
á NFS að undanförnu, 'c'MBL
einkum með skínandi : ;
fínum og fréttnæmum við- Íf-~ tr-
tölum. í fyrradag fékk hann svo R
þau Össur Skarphéðinsson Hk M
og Drífu Hjartardóttur í viðtal til sín í (sland
í dag um lækkun matvöruverðs. Þegar þing-
mennirnir hófu svo gamalkunnan söng um hvað
þetta væri allt flókið og erfitt og síðan kæmi sam-
þjöppun á matvælamarkaði (veg fyrir að góð
markmið næðust, fauk í Helga og spurði hann af
hverju í ósköpunum samkeppnisyfirvöld gerðu
ekkert í málunum þegar búið væri að fjasa um
það í tíu ár. Fátt varð um svör.
andres.magnusson@bladid.net