blaðið - 20.07.2006, Page 19

blaðið - 20.07.2006, Page 19
blaðið FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 SAGA I 19 Rita trúði eiginmanni sínum númer tvö, Orson Welles, fyrir því að faðir hennar hefði margoft haft samfarir við hana og barið hana þegar hún var barn og unglingur. „Hann var hræðilegur maður og hún hataði hann,“ sagði Welles. Þegar hún var heima við gekk hún fram og aftur tímunum saman, neri saman höndunum og talaði við sjálfa sig á óskiljanlegu máli. Fjöl- miðlar komust ekki hjá því að heyra að stjarnan fyrrverandi væri vægast sagt orðin einkennileg í háttum. Þeir fundu enga aðra skýringu en þá að Rita væri orðin drykkjusjúk- lingur og þeir sem þekktu Ritu voru margir á sama máli. Það var ekki fyrr en árið 1980 sem hún var greind með alzheimer. Síðustu árin var hún jafn ósjálfbjarga og unga- barn og var í umsjá dóttur sinnar, Yasmin. Rita Hayworth lést árið 1987,68 ára gömul. Rita Hayworth • Veggspjald af Ritu gegndi allnokkru hlutverki í söguþræð- inum í smásögu Stephen King, Rita Hayworth and Shawshank Redemption og seinna í hinni vinsælu kvikmynd, Shawshank Redemption, sem gerð var eftir sögunni þar sem Morgan Free- man og Tim Robbins fóru með aðalhlutverk. • Árið 1999 lenti Rita í 19. sæti á lista bandarísku kvikmyndaaka- demíunnar yfir 25 mestu kven- kynsstórsjörnur sögunnar. • Madonna nefnir Ritu í lagi sínu Vogue og syngur um andlit hennar sem hún segir vera fallegt. • joseph L Mankiewicz, sem leikstýrði og skrifaði handritið að The Barefoot Contessa, þar sem Ava Gardner fór með aðal- hlutverkið, er sagður hafa byggt aðalkvenhetju sína Mariu Vargas á ævi Ritu og hjónabandi hennar og Ali Khan. É' lÉ ^ ' /öeÆTTs ^ GEFUR LÍFINU EPLABRAGÐ!

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.