blaðið - 20.07.2006, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Íja§alt.
„Gerard Houllier haföi ekki notfyrir mig. Þess vegna end-
aöi ég hjá Manchester City, gegn vilja mínum. Ég heföi
k aldrei verið að spila fyrir lítil félög undanfarin fjögur ár
fci ef hann heföi ekki gert mér þetta.“
Nicolas Anelka er gramur út i Houllier
Utan vallar
meö Helga Má Magnússyni, körfuknattleiksmanni
Heigi Már Magnússon er í hópi bestu
körfuknattleiksmanna fslands og
fastamaður i landsliðinu. Hann hef-
ur leikið með háskólaliði Catawba
í Bandaríkjunum undanfarin ár en
samdi við svissneska liðið Boncourt
á dögunum og mun leika með því á
næsta timabili.
Fæðingardagur og ár?
27. ágúst 1982.
Uppáhalds bíómynd?
Goodfellas, Big Lebowski og Old
School.
Uppáhaldsbók?
Les nú ekkert sérstaklega
mikið, en mér fannst Lun-
ar Park mjög góð.
Uppáhalds-hljómsveit/tón-
listarmaður?
Stones, Bítlarnir, White
stripes og fleira í þeim
dúr.
Uppáhaldsmatur?
Maturinn hjá mömmu.
Hvað gleður þig mest?
Að vera í góðra vina
hópi.
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér?
Leiðinlegt fólk.
Hvað ætlaðir þú
að verða þegar þú
varst barn?
Flugmaður.
Mestu vonbrigðin á
íþróttaferlinum?
Að vinna ekki (slands-
meistaratitilinn þetta
eina ár sem eg spilaði
með meistaraflokki KR
Mesta afrek innan vallar?
Ætli það sé ekki að tapa
ekki leik í einhver 4-5 ár
í yngri flokkunum. Svo
var einnig gaman að
setja 20 stig á móti
North Carolina-há-
skólanum.
En utan vallar?
Að útskrifast með BS í viðskipta-
fræði.
Hver er skrýtnasti liðsfélaginn?
Steinar Kaldal.
Uppáhaldslið í enska boltanum?
Arsenal klárlega.
Uppáhaldsiþróttamaður fyrr og
síðar?
Patrick Ewing. Tony Adams og
Larry Bird koma þar á eftir.
Ef þú þyrftir að skipta um íþrótt,
hvað yrði fyrir valinu?
Knattspyrnan, en að sjálfsögðu
myndi ég ekki spila fyrir neitt
annað félag en RC Collins.
íslandsmeistaratitill eða 1.
vinningur í lottói?
Lottó.
Hvaða persónu vild-
irðu helst lokast
inni í iyftu með?
Sólmundi
Hólm.
Hvert mynd-
irðu fara ef þú
ættir timavél?
Ætli maður
myndi ekki
freistast til að
sjá hvernig fram-
tíðin væri.
Hvað myndi bíó-
myndin um þig heita
og hver ætti að leika
Þig?
Ég veit ekki hvað
myndin ætti að heita
en stórleikarinn og
söngvarinn Friðrik
Ragnarsson myndi
leika mig í íslensku
útgáfunni og bróðir
hans, Antonio Bander-
as, í þeirri bandarísku.
Hver er tilgangur
lífsins?
Að njóta þess.
Hver viltu að lokaspurn-
ingin sé og hvernig
myndirðu svara henni?
Hver er uppáhalds
staðurinn þinn? Laugar-
nesið.
Eiður Smári blæs á kjaftasögurnar
ekki vera
áfram á
Englandi
■ Sagðist ekki vilja slá Chelsea út í
úrslitum meistaradeildarinnar
Eiður Smári Guð-
johnsen gat hugsað s é r
að leika með öðru liði á Englandi
en Chelsea og var það stór ástæða
fyrir því að hann ákvað að fara
til Barcelona á Spáni. Þetta sagði
hann í viðtali við sjónvarpsstöð
Chelsea í vikunni. Barcelona
greiddi átta milljónir punda
fyrir íslenska landsliðsfyrirlið-
ann sem valdi Katalóníuliðið
fram yfir t.a.m. Real Madrid og
Manchester United.
Ber mikla virðingu fyrir Chelsea
Því var haldið fram í ein-
hverjum fjölmiðlum að Eiður hafi
verið ósáttur við hvernig komið
var fram við hann undir lokin
hjá Chelsea og þá var greint frá
því að draumur hans væri að slá
Englandsmeistarana út í úrslitum
meistaradeildarinnar. Eiður vís-
aði þessu til föðurhúsanna í viðtal-
inu og sagði það með öllu rangt að
hann hefði einhverja ástæðu til að
vilja ná sér niðri á félaginu.
„Eg veit ekki hvort að það fór mikið
fyrir þessum fréttum hér en þegar ég
var á lslandi sá ég nokkrar greinar í
fjölmiðlum þar sem því var haldið
fram að ég ætti mér þann draum að slá
Chelsea út úr meistaradeildinni. Það
er alls ekki rétt,“ sagði Eiður. „Ég vil
að það sé á hreinu að ég ber mikla
virðingu fyrir Chelsea og ef ég hef
sagt eitthvað sem fór fyrir brjóstið á fólki
þá þykir mér það afar leitt,“ sagði hann
enn fremur.
Of sterk tengsl
Þegar ljóst varð að Úkraínumaðurinn
Andriy Shevchenko væri á leið til Chelsea
fóru fjölmiðlar að spyrða Eið við fjölmörg
lið, ekki síst á Englandi, og var Manc-
hester United nefnt sem sérstaklega lík-
legur áfangastaður. Eiður sagði hins vegar
að tengsl hans við Chelsea væru svo sterk
að hann hefði átt erfitt með að leika fyrir
annað félag í sömu deild.
Eiður gekk til liðs við Chelsea frá Bolton
fyrir fimm milljónir punda árið 2000.
Hann varð tvöfaldur Englandsmeistari
með þeim bláklæddu en á þessum sex
árum lék hann 263 leiki og skoraði 78
mörk.
Snoðaður Mourinho Silfurrefurinn Jose Mourinho tollir í tískunni og hefur
látið snoðklippa sig. Þessi mynd var tekin af honum í Cobham i suðurhluta Eng-
lands þar sem Chelsea er við æfingar um þessar mundir. Englandsmeistaramir
undirbúa sig nú afmiklum móð fyrir timabilið sem hefst á Englandi eftir mánuð.
Skeytin inn
PSV Eindhoven hefur áhuga á
að fá Hollendinginn Jan Krom-
kamp frá Liverpool. Krom-
kamp, sem er varnarmaður, gekk til
hðs við Rauða herinn ffá Villarreal
í janúar á þessu ári en hefur ekki
náð að vinna sér fast sæti í hðinu og
aðeins verið sjö sinnum í byijun-
arhðinu. „Við höfum sett okkur í
samband við Liverpool og spurst
fyrir um Kromkamp," sagði Rob
Westerhof, stjómarformaður PSV.
„Það er liins vegar ekkert komið á
hreint ennþá. Við vitum ekki hvort
við getum fengið hann lánaðan eða
hvort við verðum að kaupa hann.
Vonandi skýrist þetta fljótlega.“
Liverpool er við það að ganga
fr á kaupum á Dirk Kuyt,
leikmanni Feyeno-
ord, samkvæmt breskum
fjölmiðlum. Kuyt hefur
verið orðaður við fjöl-
mörg hð í Evrópu eftir
aðhafavakiðmikla
athygh með vasklegri
ff ammistöðu sinni í
hohensku deUdinni, en samkvæmt
breska dagblaðinu DaUy MaU verður
hann orðinn leUonaður Liverpool í
síðasta lagi á morgun. Rafael Benitez,
stjóri Liverpool, vúdi ekki kaupa
hoUenska sóknarmanninn á 13,75
miUjónir punda eins og PSV hafði
krafist en nú gæti farið svo að félagið
fái hann fyrir rúmar 10 miUjónir,
sökum ákvæðis í samningi hans.
Newcastle hefur áhuga á að fá
tíl sín Dean Ashton, sóknar-
mann West Ham, og er
tilbúið að greiða 10 miUjónir
punda fyrir kappann.
Glenn Roeder, stjóri Newc-
astle,leitar
logandi ljósi að eftirmanni Alans
Shearer og hefur talað um Ashton
sem góðan möguleUca. Enska úrvals-
deUchn hefst eftir fimm vikur og
eiga þeir röndóttu ekki úr mörgum
kostum að velja í ffamlínunni. Enski
landshðsmaðurinn Michael Owen
verður sem kunnugt er ekkert með
Newcastle fyrstu mánuðina vegna
meiðsla og þá hefur Shola Ameobi
einnig verið tæpur. Ashton, sem er
22 ára, gekk tU íiðs við West Ham frá
Norwich fyrir 7,25 miUjónir punda á
síðustu leiktíð og átti með þeim gott
tímabU.