blaðið - 20.07.2006, Side 27
blaðiö FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006
27
Þegar ég var háttuö hér um kvöldið
spann ég upp langa sögu um kálf sem
kunni að knippla blúndur og klifra í trjám,
og hugsaðu þér, ég trúði hverju einasta orði!
Þetta kalla ég nú að Ijúga af list.
Lína langsokkur
Afmælisborn dagsms
PETRARKA, SKÁLD, 1304
EDMUND HILLARY, FJALLGÖNGUMAÐUR, 1919
kolbrun@bladid.net
Tónleikaferð
Láru
Tónlistarmaðurinn Lára Rúnars-
dóttir mun á næstu dögum leika
á nokkrum
tónleikum
um landið í
tilefni útgáfu
nýjustu plötu
sinnar „Þögn“.
Þetta er önnur
plata Láru og
er hún gefin
út af hjá Senu
undir merkjum
Dennis Rec-
ords en árið
2003 kom út platan „Standing Still“
hjá Geimsteini.
Auk þess að semja og syngja
eigin tónlist hefur Lára numið klass-
ískan söng og tónmenntakennara-
nám við Kennaraháskóla íslands.
Tónleikarnir verða haldnir á eftir-
töldum stöðum og tíma:
Fim. 20. júlí:
Reykjanesbær: Yello
Sun. 23. júlí:
Akureyri: Deiglan
Þri. 25. júlí:
Húsavík: Gamli Baukur
Lára Rúnarsdóttir
Fim. 27. júlí:
Isafirði: Tjöruhúsið
Helgin 4.-6. ágúst:
Reykjavík: Innipúkinn
Fim. 10. ágúst:
Reykjavík: Stúdentakjallarinn
Metsölulistinn - Innlendar bækur
1.
2.
Draumalandið: sjálfshjálparbók
handa hræddri þjóð
Andri Snær Magnason 1
Vetrarborgin - kilja
Arnaldur Indriðason
íslenska vegahandbókin
‘ Vegahandbókin ehf.
Flugdrekahlauparinn - kilja
' Khaled Hosseini
Lost in lceland
■ Sigurgeir Sigurjónsson
- Hálendishandbókin
Páll Ásgeir Ásgeirsson
- Leyndardómur býflugnanna
' Sue Monk Kidd
Skuggi vindsins - kilja
' Carlos Ruiz Zafón
Hann er ekki nógu skotinn í
9. þér
Greg Behrendt/Liz Tuccillo
10 ísland vegaatlas
' Landmælingar
Listinn var gerður út frá sölu dagana
05.07.06 - 11.07.06 ÍPennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og menn-
ingar.
Metsölulistinn
- Erlendar bækur
Nora*
. Blue Smoke Nora Roberts Blué Smokv.
_ The Thieves of Heaven '
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
Saving Fish From Drowning
Amy Tan
Lifeguard
James Patterson & Andrew Gross
Until I Find You
John Irving
Fire Sale
Sara Paretsky
Predator
Patricia Comwell
The Camel Club
David Baldacci
Fourth of July
James Patterson
■ n The Devil’s Feather
' Minette Walters
Listinn ergerðurút frá sölu dagana
12.07.06- 18.07.06 i
Bókabúðum Máls og menningar,
Eymundsson og Pennanum
I návígi við Grikki
igurður A. Magnússon
rithöfundur var á dög-
unum sæmdur heiðurs-
orðu gríska lýðveldisins
fyrir störf í þágu grískr-
ar menningar undanfarin fimmtíu
og fimm ár. Sigurður hefur verið
óþreytandi við að kynna íslending-
um gríska menningu, hefur þýtt
úr grísku, skrifað bækur um Grikk-
land og unnið sem leiðsögumaður á
Grikklandi. Hann vinnur nú að bók
um gríska munkríkið Aþos.
„Grikkir voru útsæknir og forvitn-
ir. Sæfarar vita alltaf meira en land-
krabbar," segir Sigurður. „Það var
löngun til að læra meira um heim-
inn sem var grundvöllur þeirra
afreka sem þeir unnu á sviði eðlis-
fræði, heimspeki, bókmennta og
lista. Ég sagði í fyrstu
bókinni sem ég
skrifaði um
Grikkland
að Grikkir
séu líkari
Islend-
ingum
e n
nokk-
ur önn-
ur þjóð.
Það var
hlegið að
þeim orð-
um mínum.
Árið 1965 var ég
í boði hjá Penfi-
eld, bandaríska
sendiherranum hér
á landi. Hann kom
til mín og sagðist Afsteypa af grískri
hafa heyrt þessi orð gullgrlmu sem er I
mín. Sjálfur hefði ei9u Siguröar.
hann farið um allan
heim og hefði aldrei hitt tvær þjóð-
ir sem væru jafn líkar og Grikkir Sigurður A. Magnússon. Hann varádögunum sæmdur heiðursorðu gríska lýðveld-
og íslendingar. Síðan hef ég verið isins og vinnur nú að bók um Munkalýðveldið Aþos. Á skrifborði Sigurður má sjá högg-
ófeiminn við að segja þetta.“ mynd afAlexander mikla
Stóra nafnið í grískum
bókmenntum
Sigurður hefur þýtt nokkur
verk grískra öndvegishöfunda á
íslensku: Sól dauðans eftir Pandel-
is Prevelakis (1964), ljóðabálkinn
Goðsaga eftir Gíorgos Seferis (1967)
og Naktir stóðum við - sgrísk nú-
tímaskáld (1975). Þar birtust ljóð
eftir Gíorgos Seferís, Nikos Gatsos,
Jannis Ritsos, Kostis Papakongos og
Kostas Kindynis. „Ritsos er kannski
eftirminnilegastur af þessum fimm,
læknir að mennt og kommúnisti
sem varð að gjalda fyrir skoðanir
sínar og sat í fangelsi á Djöflaeyj-
unni í mörg ár.“
Sigurður hefur ekki þýtt verk eftir
manninn sem hann segir vera stóra
nafnið í grískum bókmenntum. Ni-
kos Kazantsakis, höfund Grikkjans
Zorba og Síðustu freistingarinnar.
„Kazantsakis er ekki mjög vinsæll
í Grikklandi. Hann var ótal sinn-
um orðaður við Nóbelsverðlaunin
en Grikkir lögðust alltaf gegn því
og segja að verk hans séu málsuða.
Hann ferðaðist um Grikkland og
skrifaði hjá sér sérkennileg grísk
orð og orðatiltæki og hrærði þeim
saman í bækur sínar. Ég les grísku
með erfiðismunum en Kazantsak-
is er ólæsilegur fyrir mig einmitt
Ikon eftir grískan munk sem færöi Sigurði
það að gjöf.
vegna þessa og ég hef aldrei lagt í að
þýða hann,“ segir Sigurður.
Dýrgripirá Aþos
Kazantsakis bjó í hálft ár í Aþos
en Sigurður er einmitt að vinna að
bók um ríkið. Sigurður kom þangað
fyrst árið 1952 og síðan í maí síðast-
liðnum. „Aþos er munkalýðveldi á
skaga sem er 60 kílómetra langur
og tíu kílómetra breiður. Þarna hef-
ur verið sjálfstætt ríki frá 963. Þegar
mest var voru þarna 7000 munkar
en eru nú um 2000," segir Sigurð-
ur. Á skagann má ekkert kvenkyns
stíga fæti en munkarnir ráða ekki
við komur kvenkynsflugna og kven-
kynsfugla. Ég sá þarna eina læðu og
spurði hvað hún væri að gera þar og
fékk það svar að hún hefði smygl-
að sér þangað með ferjunni. Þarna
eru tuttugu stór klaustur, víggirt
eins og kastalar og síðan eru útibú
og einsetumannakofar út um allan
skagann. Þar eru geymdir ótrúlegir
fjársjóðir, freskur, íkonar og bibl-
íur skreyttar gimsteinum. I hverju
klaustri eru bókasöfn þar sem eru
geymd þúsundir dýrmætra hand-
rita sem aldrei hafa verið gefin út.
Það er stórmerkilegt að koma þarna
og ótrúlegt að sjá hvernig þarna
liggja dýrmætir fjársjóðir sem ekk-
ert er gert við.“
Bók Sigurðar um Aþos kemur út í
haust og heitir Garður guðsmóður
- munkríkið Aþos. Elsta lýðveldi í
heimi. Þar lýsir hann heimsóknum
sínum þangað og fjallar um sögu
þessa einstæða ríkis. Bókin verður
ríkulega myndskreytt.
menningarmolinn
Misheppnað morðtilræði
Á þessum degi árið 1944 slapp Hitl-
er lifandi frá morðtilræði. Háttsett-
ir menn í þýska hernum ákváðu að
ráða Hitler af dögum því þeir töldu
að hann væri að leiða Þýskaland í
glötun. Claus von Stauffenberg, yf-
irmaður varahersins, fékk það verk-
efni að koma sprengju fyrir 1 skjala-
tösku sem hann setti undir borð á
fundi sem Hitler átti með ráðgjöfum
sínum. Stauffenberg yfirgaf fund-
inn fljótlega. Hitler var að skoða
kort af austurvígstöðvunum þegar
Heinz Brandt ofursti ýtti skjalatösk-
unni til hliðar, og frá Hitler, til að
sjá betur á kortið. Með þessu hefur
Brandt trúlega bjargað lífi foringja
síns. Klukkan 12:42 sprakk sprengj-
an. Hitler slasaðist lítillega en ekki
meira en svo að hann átti fund með
Benito Mussolini seinna þennan
sama dag og sýndi honum verksum-
merki. Fjórir létu lífið í sprenging-
unni. Stauffenberg var handtekinn
og skotinn. Alls lét Hitler taka af lífi
5000 manns sem hann taldi vera
flækta í samsærið gegn sér. Hitler
leit svo á að örlögin hefðu þyrmt
lífi hans og sagði að hinn mikli mál-
staður sem hann berðist fyrir hlyti
að ná fram að ganga og allt myndi
fara vel.