blaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 15

blaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 15
Áfengis- og vímuefnaneysla Til umhugsunar! Unglingadrykkja Rannsóknir sýna að tengsl eru á milli ýmissa neikvæðra hliða áfengis- og vímuefnaneyslu og þess að hefja neyslu áfengis á unga aldri, s.s. að því fyrr sem neysla hefst þeim mun: 1. Meiri líkur eru á vandamálum í æsku, s.s. samskiptavanda við foreldra og fjölskyldu; 2. Meiri líkur enu á vandamálum tengdum námi og skólagöngu; 3. Meiri líkur eru á hegðunarvanda; 4. Meiri líkur eru á neyslu ólöglegra vímuefna; 5. Meiri líkur eru á misnotkun og mikilli og skaðlegri áfengisneyslu á fullorðinsaldri. Viðhorf foreldra hafa mikil áhrif á áfengisneyslu barna. Börn og ungmenni foreldra sem veita börnum sínum oft áfengi drekka um það bil þrefalt meira en börn sem fá aldrei áfengi hjá foreldrum sínum. Sýnum ábyrgð og árvekni og styðjum börn og ungmenni í að hafna neyslu áfengis og annarra vímuefna. Ölvunarakstur Akstur undir áhrifum áfengis eða lyfja er ein af þremur algengustu orsökum banaslysa í umferðinni. Auk þess verða margir fyrir alvarlegu heilsutjóni, jafnvel ævarandi örorku, vegna ölvunaraksturs. Petta er hægt að koma í veg fyrir með hugarfarsbreytingu og þeirri ófrávíkjanlegu reglu að aka aldrei undir áhrifum áfengis. Mikilvægt er að ökumenn hafi í huga að ekki er hægt að flýta fyrir niðurbroti vínanda í blóði með neinum. Kaffidrykkja, köld sturta, líkamsæfingar eða annað slíkt leiða ekki til þess að það renni hraðar af fólki. Ölvun Áfengi dregur úr dómgreind, þ.e. hæfninni til að draga ályktanir og hugsa rökrétt. Ölvun dregur einnig úr hömlum. Ölvuð manneskja á erfiðara með að sjá fótum sínum forráð en ódrukkin og getur orðið sjálfum sér og öðrum hættuleg. Ölvun býður því margs konar hættum heim: - u.þ.b. þriðjungur drukknana er vegna ölvunar, - um helmingur morða er framinn undir áhrifum áfengis, - stóran hluta afbrota má rekja til ölvunar og - flestar nauðganir verða þegar gerendur og þolendur eru drukknir. Sýnum aðgát og ábyrgð við neyslu áfengis. Bestu óskir um ánægjulegt ferðalag og sumarfrí. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ í FÍKNIVÖRNUM www.forvarnir.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.