blaðið - 03.08.2006, Qupperneq 2
2IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaðið
Á förnum vegi
Helðsklrt CJr Léttskýjaö ia. Skýjað Alský|að4fi^R|gnlnB,lítilsháttar>*£^RioningJ^I»Súld• Sniókoma-íí' Slydda CÍ Snjðél --Skúr
í • r
*&*.
.ÍI
rrooasti Teroareiaginn
— Stútfullur af nýju efni —
Ný útgáfa
m Wm
UÖHDEOKIH
Ferðahandbókin þin!
tts\ * <*i UrOWA; 0^5 w) ítefW»m
- óutiparttMaeW vt "*o»* Wiosvrtm-J
Ferðumst og fræðums
Vegahandbókin sími: 554 7700
Skilaðu gömlu bókinni í næstu bókabúð og fáðu 1.000.- kr. afslátt
ÚJJj'Jjlí’ 30
Algarve
Amsterdam 21
Barcelona 28
Berlin 18
Chicago 23
Dublin 19
Frankfurt 19
Glasgow 16
Hamborg 20
Helsinki 21
Kaupmannahöfn 16
London 20
Madrid 33
Mallorka 32
Montreal 19
New York 29
Orlando 25
Osló 25
Paris 19
Stokkhófmur 22
Vin 22
Þórshöfn 12
Fórstu á tónleikana
með Sigur rós?
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 9020600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Islands
Jóhann Waage, fjölskyldufaðir.
„Nei ég hafði ekki tíma því ég þurfti
að sinna konunni og barni.“
Ása Ninna Pétursdóttir,
háskólanemi.
„Já, þeir vor æðislegir."
Elfa Arnardóttir, kennari.
„Já ég fór. Þetta voru frábærir tónleik-
ar og ég hef séð þá marg oft áður.“
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir,
þáttastjórnandi.
„Já og ég lamaðist algjörlega eftir
lokalagið."
Elín Vigdís Guðmundsdóttir,
þáttastjórnandi.
„Já ég fór á þá. Mér fannst eins og
skýin hreyfðust í takt við hjartað mitt.“
blaði
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 * www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@biadid.net
Þingmenn á ferðalagi:
Boeing 777 þota:
Lenti með
veikan farþega
Breiðþota frá bandaríska
flugfélaginu American Airlines
lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli
síðdegis í gær. Innanborðs var
veikur farþegi sem fluttur var á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Farþeginn, 15 ára drengur sem
var einn á ferð, var meðvitund-
arlaus. Talið er að hann þjáist
af sykursýki. Þotan var á leið til
Chicago frá London.
Sjóvá:
Græddu meira
en 4 milljarða
Hagnaður af rekstri Sjóvár nam
4,1 milljarði króna fyrir skatta á
fyrstu sex mánuðum ársins í sam-
anburði við 1,7 milljarða árið áður.
f tilkynningu frá fyrirtækinu
segir að rekstrarkostnaður Sjóvár
hafi lækkað um rúm þrjátíu pró-
sent á tímabilinu og að fjárfesting-
arstarfsemi gengið vel þrátt fyrir
lækkun á hlutabréfamarkaði.
„Mesti ávinningurinn í starfsem-
inni hjá klárlega lækkun rekstr-
arkostnaðar. Við erum komin í
forystu í þeim efnum,“ segir Þór
Sigfússon, forstjóri Sjóvár.
Strandaglópar
í Stokkhólmi
Óánægðir með þjónustu Flugleiða ■ Alþingi taki á málinu
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Þrír alþingismenn ásamt tveimur
starfsmönnum Alþingis lentu í
ógöngum í Stokkhólmi þegar þeir
misstu af tengiflugi til Kiruna í
Norður-Svíþjóð þar sem þeir ætluðu
að sitja á ráðstefnu um málefni norð-
urskautsins. Björgvin G. Sigurðsson,
þingmaður Samfylkingar, segir farir
sínar og félaga sinna ekki sléttar og
segir framkomu Flugleiða hafa verið
dæmalaust rugl. Með Björgvini í för
voru Sigurður Kári Kristjánsson, Jón
Kristjánsson og tveir starfsmenn
Alþingis.
Sagt að hafa ekki áhyggjur
„Vél sem átti að fara klukkan átta á
þriðjudagsmorgun frá Keflavík tafð-
ist um 5-6 tíma,“ segir Björgvin. „Þá
var ljóst að erfitt yrði fyrir okkur að
ná tengifluginu frá Arlanda flugvelli
til Kiruna. Starfsmenn alþjóðasviðs
Alþingis sem voru með okkur í för
spurðust því fyrir um hvernig færi
með þau mál og þeim var sagt að hafa
engar áhyggjur af því. Þetta yrði allt
klappað og klárt þegar við kæmum
út.“ Þegar þeir félagar lentu á Ar-
landa var orðið ljóst að þeir myndu
missa af vélinni til Kiruna. „Þá kom
í ljós að enginn frá Flugleiðum hafði
gert neitt í málinu og enginn vissi
um vandræði okkar í Stokkhólmi.
Við spyrjumst fyrir um hvernig fari
þá með framhaídið og þar er okkur
enn sagt að hafa engar áhyggjur,
þessu verði reddað. Við ákváðum þá
að fara á hótel og gerðum ráð fyrir
því að eiga pantað sæti í næstu vél
til Kiruna. Um kvöldið, eiginlega af
rælni, gáum við að því hvort ekki
sé allt klappað og klárt með flugið
næsta morgun. Þá kemur í ljós að
enginn kannaðist við að við ættum
NÝtt VALHOSTUK Á
FLUTNINGAMARKAÐIVIJM
transport fh
toll- og flutningsmiðlun ehf Jmv
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
Stokkhólmur Þingmenn
þurftu að drepa tímann í
Stokkhólmi
sæti í vélinni enda hefði enginn gert
neitt í því af hálfu Flugleiða að greiða
úr málinu.“ Björgvin segir að þá hafi
þeir látið bóka sæti í vél til Kiruna
sem var þvi sem næst full.
^ „ivíálið er að þeir
segjast ætla að
sjá um þetta
mál og svo ger-
ist ekkert. “
Guðrún Jónsdóttir
hjá Stigamótum
Lofað upp í ermina á sér
Björgvin er afar ósáttur með að-
komu Flugleiða. „Málið er að þeir
segjast ætla að sjá um þetta mál og
svo gerist ekkert. Maður spyr sig því
hvernig hefði farið hjá minna ferða-
vönu fólki sem myndi lenda í svip-
uðum málum. Þetta var dæmalaust
rugl allt saman.“ Björgvin segir að
þeir hafi loks komist á áfangastað en
þá hafi þeir verið búnir að
missa af stórum hluta
ráðstefnunnar. „Efvið
hefðum ekki verið að
djöflast í þessu sjálfir
þarna um kvöldið þá
hefðum við sennilega
bara verið enn
á Arlanda og
farið sv~
heim með Flugleiðavélinni til baka.
Þetta var algjörlega fyrir neðan allar
hellu, sérstaklega þegar tekið er tillit
til þess að Alþingi er mjög stór kúnni
og hefur verið það til fjölda ára.“
Björgvin segir það sjálfsagt að
málið verði tekið fyrir í þinginu.
Hann segist ekki vera að mæla með
því að rokið verði til og samningum
við flugfélagið sagt upp, heldur að
málið verði rætt og klárað. „Mér
finnst það gefa auga leið. Þetta gekk
svo langt, þarna voru fimm menn á
ferð og það má segja að hálf vinnu-
vika hafi farið í þetta rugl,“ segir
Björgvin G. Sigurðsson, alþingis-
maður, staddur í Kiruna eftir að hafa
verið strand í Stokkhólmi á annan
sólahring.
Jon Kristjansson
og Sigurður Kári
Kristjánsson.