blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaöiö Utan vallar meö Grétari Ólafi Hjartarsyni, fótboltamanni í KR Grétar Ólafur Hjartarson er einn af betri sóknarmönnum landsins síð- astliðin ár og iðulega veríð ofarlega á lista yfir markahæstu menn. Hann hefur einu sinni hlotið gullskóinn, einu sinni silfur og tvisvar sinnum brons. Grétar Ólafur mun án efa vera f lykil- hlutverki hjá KR í undanúrslitaleiknum gegn Þrótti í VISA-bikamum 29. ágúst næstkomandi. Fæðingardagur og ár? 26. nóvember 1977 Uppáhalds bíómynd? Fight Club. Uppáhalds hljómsveit/tónlistarmaður? Bubbi Morthens. Hvað gleður þig mest? Að eyða góðri stund með konu og dóttur. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Baktal. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst barn? Atvinnumaður í fótbolta. Uppáhalds lið í enska boltanum? Manchester United. Uppáhalds íþróttamaður fyrr og síðar? Paulo di Canio. Ef þú þyrftir að skipta um íþrótt, hvað yrði fyrir valinu? Snóker. íslandsmeistaratitill eða 1. vinn- ingur í lottó? Islandsmeistari. Hvaða persónu vildirðu helst lok- ast inni í lyftu með? Bubba Morthens. Hvaða dýri finnst þér þú helst Ifkjast? Ég er mikill hundamaður. Hvert myndirðu fara ef þú ættir tfmavéi? Fara fram til ársins 2070 og sjá hvernig væri þá. Hvað myndi bíómyndin um þig heita og hver ætti að leika þig? „Skot fyrir utan teig“ með Brad Pitt. Hver er tilgangur lífsins? Að lifa lífinu. Hver viltu að lokaspurningin sé og hvernig myndirðu svara henni? Verður KR bikarmeistari? Já. •V Skeytin inn Ekki ríkir lengur óvissa um framtíð Patrick Viera hjá Juventues því í gær var staðfest að Inter Milan hefði gengið frá kaupum á leikmann- inum. Nýverið var hann orðaður við Mancester United en hann hefur ákveðið að vera áfram á Ítalíu á næstu leiktíð. Hann var keyptur til Juventus frá Arsenal á 1,9 milljarða króna en wr Inter þarf einungis aðgreiðatæpar I * 900 milljónir fyrir leikmanninn. Viera w lék 31 deildarleik fyrir Juve og skor- aði í þeim 5 mörk. F JL } ram- herji Atletico Madrid, Fernando Torres, hefur lengi verið orð- aður við Manc- hester United og nú virðist Chelsea ætla að skerast í leikinn og bjóða betur í leikmanninn. Torres stóð sig mjög vel á HM í sumar og hefur lengi verið eftirsóttur af ýmsum stórliðum. Samkvæmt enskum slúður- blöðum er Roman Abramovich að undirbúa ríflega 4 milljarða króna tilboð í leikmanninn. Franski varnarmaðurinn William Gallas fór ekki með Chelsea í æfingaferð til Bandaríkjanna fyrr í vikunni. Ástæðan er sú að hann er ekki enn kominn til liðsins eftir það frí sem leikmenn fengu eftir HM í sumar. Gallas átti að mæta til félagsins á mánudaginn en hefur ekkert látið sjá sig og ekki gefið neinar skýr- ingar á þessari hegðun. Leikmað- urinn hefur hins vegar ítrekað óskað eftir sölu frá liðinu en Jose Mourinho, knatt- spyrnustjóri, hefur hingað til , ekkitekiðþað í mál. Gallas á aðeins ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Fallbaráttan í Landsbankadeildinni: Flest lið í fallhættu VALUR ■ Lúkas: Þeir hafa verið að spila fínan bolta og ég held að þeir verði sterkir á seinni hluta mótsins. Mér finnst þeir hafa spilað fínan sóknarbolta I sumar og spái ég þeim ofarlega í töflunni í lok móts. ■ Hermann: Valsmenn eiga ekki eftir að vera í fallslagnum og það býr mikið í þessu liði. Ungir uppaldir leikmenn eru að spila stórt hlutverk 1' liðinu og ég spái þeim baráttunni um annað sætið. Kí KEFLAVÍK ■ Lúkas: Hérna er það baráttan aftur sem mun hugsanlega skila þeim í öruggu sæti og á góðum degi geta þeir spilað fína knattspyrnu. ■ Hermann: Ég er mjög hrifinn af Kefl- víkingum og þar ríkir mikil hefð. Kjarn- inn hefur ávallt verið ungir heimamenn í bland við reynslu og í sumar hafa þeir spilað einna skemmtilegasta fótbolt- ann. Þeir skora mikið af mörkum og ég spái þeim í harðri baráttu við Val um annaö sætið. FYLKIR ■ Lúkas: Þeir standa alltaf fyrir sínu og hafa verið með betri liðunum í sumar. Þeir hafa verið áberandi í öðru sætinu í sumar en hafa ekki náð góðum úrslitum í síðustu leikjum. ■ Hermann: Ég hugsa að þeir séu í sárum eftir leikinn gegn KR því mann- skapurinn er fyrir hendi. Það hefur vantað herslumuninn hjá þeim undan- farin ár en vandinn þeirra er að hefðina skortir algjörlega. Fylkismenn verða um miðjadeild. BREIÐABLIK ■ Lúkas: Þeir hafa verið að blómstra undir stjórn Óla og eru með fínan hóp. Það er spurning hvort þeir nái að halda þetta út og ná góðum úrslitum. ■ Hermann: Mikil stemn- ing hefur komið með Óla Krist- jánssyni og hann er að gera fína hluti þarna. Það er svo gríðarlega mikilvægt að fá Arnar Grétarsson heim því hann er náttúrlega uppalinn Bliki og sem ungu leikmennirnir líta upp til. KR ■ Lúkas: Þeír eru búnir að bæta við sig sterkum leikmönnum fyrir lokaum-1 ferðirnar og ég er viss um að þeir verði ekki í fallbaráttunni. ■ Hermann: KR-ingar náðu dýrmæt stig gegn Fylki en þeir hafa alls ekki verið sannfærandi í sumar. Teitur Þórðarson er hins vegar að gefa ungum leikmönnum tækifæri og við skulum því bíða í nokkur ár. Fótbolta- lega séð verða þeir ekki í toppbarátt- unni og vonandi hafa þeir þolinmæði í uppbygginguna framundan. LÚKAS KOSTIC, ÞJÁLFARI U-21 LANDSLIÐS KARLA Stutt á milli hláturs og gráturs Lúkas hefur fylgst mikið með leikjum sumarsins og telur hana hafa verið skemmtilega í ár. Hann segir liðin hafa boðið upp á skemmti- lega knattspyrnu og marga efnilega leikmenn sé að finna hér á landi. „Þetta er mjög þéttur pakki og í raun eru allir í fallhættu. Það er erfitt að segja til um hvernig þetta endar og mig grunar að það sem muni skipta máli eru meiösli leikmanna. Til dæmis eru Eyjamenn með þunnskip- aðan hóp og gætu lent í vandræðum vegna þess á lokasprettinum. Önnur lið hafa verið að spila fína knatt- spyrnu en verið óheppin með úrslit, t.d. Vikingar. Ég treysti mér varla til þess að segja til um hverjir falla því þetta er svo jöfn deild í ár og stutt á milli hláturs og gráturs í fótbolt- anum,“ segir Lúkas. VÍKINGAR ■ Lúkas: Víkingar eiga hrós skilið fyrir frammi- stöðuna í sumar en þeir hafa verið óheppnir með úrslitin. Margir leikir hjá þeim hafa tapast 1-0 og oft á lokamínútunum. Ég vona að þeir nái hagstæðari úrslitum út úr komandi leikjum. ■ Hermann: Þeir hafa ekki komið mér neitt á óvart í sumar því ég vissi að þeir myndu standa sig vel, hópurinn þeirra er það góður. Ég spái Víkingum um miðja deild og að þeir nái að festa sig aðeins í sessi í deildinni. grindavIk ■ Lúkas: Þeir berjast og berjast fyrir sínu. Við megum ekki gleyma því að þeir eru eina liðið sem hefur ekki fallið úr úrvalsdeildinni. ■ Hermann: Því miður þá held ég að Grindvíkingar séu í vondum málum. Það sama á við og um ÍBV að hópurinn hefur breyst mikið frá í fyrra og því gæti hinn færi þjálfari Sigurður Jónsson þurft tíma til að búa til sterkt lið. Síðan misstu þeir náttúrlega leiðtogann úr hópnum þegar Kekic fór frá þeim. ■ Lúkas: Mér finnst þeir hafa spilað fínan fótbolta í sumar og verið pínulítið óheppnir. Þetta er fínn klúbbur og Óli Þórðar hefur unnið gott starf undan- farin ár. Arnar og Bjarki koma svo með léttleika i þetta og ég held að þeir verði ekki í neðstu tveimur sætunum á end- anum. Hefðin er það sterk hjá þeim. HERMANN gunnarsson, FJÖLMIÐLAMAÐUR Úskar engu liði falli Hermann er nokkurs konar sendi- herra Landsbankadeildarinnar og stýrir öllum móttökum henni tengdri. Hann lýsir mikilli ánægju með stuöning Landsbankans við deildina og segir umgjörð hennar alveg til fyrirmyndar. „Mótið er búið að vera svolítið öðruvísi en ég bjóst við, ég hélt að þrjú til fjögur lið myndu berjast um titilinn. Með fullri virðingu fyrir góðu liði FH þá finnst mér þeir ekki hafa leikið eins vel og undanfarin ár. Hins vegar virðast hin liðin vera meira í því að taka stig af hverju öðru heldur en að ógna forskoti þeirra. Á loka- sprettinum mun and- lega hliðin skipta mestu og að menn hafi trú á því aö þeir geti þetta,“ segir I t Hermann. 1 STAÐAN1 LANDSBANKADEILDINNI Lið L U J T M S FH 12 9 2 1 21:7 29 Valur 12 5 4 3 20:13 19 Keflavík 12 5 3 4 23:12 18 Fylkir 12 5 2 5 15:15 17 Breiðablik 12 5 2 5 19:23 17 KR 12 5 1 6 12:23 16 Víkingur 12 4 3 5 14:11 15 Grindavík 12 3 5 4 16:15 14 lA 12 4 0 8 15:21 12 IBV 12 3 2 7 11:26 11 ■ Hermann: Skagamenn hafa valdið mér miklum vonbrigðum til að byrja með og vonandi ná þeir að bíta frá sér núna. Ég held að næsti leikur gegn Valsmönnum skipti sköpum fyrir þá og ef þeir ná góðum úrslitum úr þeim leik þá muni þeir bjarga sér. ÍBV ■ Lúkas: Ég hef smá áhyggjur af Eyjamönnum vegna leik- mannahópsins, til dæmis hefur Andri Ólafur verið mikið frá og hópurinn þeirra er þunnur. Þeir eru nátturlega þekktir fyrir að standa saman þegar á móti • blæs og gætu bjargað sér hetjulega. ■ Hermann: Vestmannaeyingar eru lík- legir til að lenda í neðstu sætunum að minu mati. Það er ágætis mannskapur þarna en á milli ára eru of miklar breytingar á hópnum. Fyrir vikiö vantar þennan sannafélagsanda.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.