blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 25

blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 25
blaðið FIMMTUDAGUE 3. ÁGÚST 2006 25 ’ Með stóru ástinni í Iffi sínu, leikar- anum Spencer Tracy Þau gengu aldrei íhjónaband en hún sagði að hún hefði aldrei farið frá honum. leikarinn Spenver Tracy en þau léku saman í níu kvikyndum. Þau kynntust þegar þau léku saman í myndinni Woman of the Year ár- ið 1942. Samstarfið varð upphafið að einu frægasta ástarsambandi í Hollywood. Það var leikstjórinn Joseph Mankiewicz sem kynnti þau. Hepburn, sem var á háum hælum, leit á Tracy og sagði: „Ég er hrædd um að ég sé of hávaxin fyrir þig, herra Tracy.“ Mankiewicz sagði: „Þú þarft ekki að hafa áhyggj- ur, hann mun koma þér niður í sína stærð.“ Það voru orð að sönnu því Tracy var eini maðurinn sem gat ráðið við Hepburn. Þessi sjálfstæða og sjálfhverfa kona gjörbreyttist þegar hún var í samvistum við Tracy, varð blíð og auðmjúk. „Ég elskaði Spencer Tracy,“ sagði hún mörgum árum eft- ir lát hans. „Hann, áhugamál hans / og þarfir voru í fyrsta sæti. Þetta reyndist mér ekki auðvelt því ég var alveg örugglega mjög sjálfhverf Hepburn sagði að sér hefði við fyrsta fund fundist Tracy ómót- stæðilegur og lýsti árum þeirra saman sem fullkominni hamingju. Tracy var alkohólisti en Hepburn sagði að drykkja hans hefði aldrei verið vandamál á milli þeirra. „Drykkja er vandamál þess sem drekkur og sá eini sem getur gert eitthvað við henni er drykkjumað- urinn sjálfur,“ sagði hún. Þegar Tracy fór á drykkjutúra lét hann sig hverfa, Hepburn leitaði hans og ef - hún fann hann tók hún hann heim til sín og lét hann jafna sig þar. Tracy var kvæntur maður og tveggja barna faðir. Hann skildi ekki við konu sína og sambandið við Hepburn, sem stóð þar til hann lést, fór fremur leynt og aldrei var slúðrað um það í Hollywoodblöð- um. Hepburn sagðist aldrei hafa þrýst á hann að skilja við konu sína og sagði: „Það var mikilvægt fyrir eiginkonu hans að vera í hjóna- bandi en það skipti mig engu máli." Hlakkaði til að deyja Árið 1967 léku þau í síðustu mynd sinni saman, Guess Who’s Coming to Dinner. Tracy lést tveimur vik- um eftir að upptökum lauk. Hep- burn og Tracy höfðu átt í ástarsam- bandi í tuttugu og fimm ár og hann hafði verið i hjónabandi í fjörtíu og fjögur ár. Hepburn var ekki viðstödd jarð- arförina af tillitssemi við fjölskyldu Tracys. Eftir að Louise eiginkona Tracys lést, tókst mikil vinátta með Hepburn og Susie, dóttur Tracys, og þær komu fram saman í sjón- varpsþætti og ræddu um Spencer Tracy. Skömmu fyrir dauða sinn sagði Katharine Hepburn: „Satt að segja hlakka ég fremur til að deyja. Og ef það er líf eftir dauðann þá bið ég bara eftir því að sameinast Spencer/ Hún lést árið 2003,96 ára gömul. kona. En ég bar sérstakar tilfinning- get sagt er að ég hefði aldrei farið ar til Spencer Tracey. Ég hefði gert frá honum. Hann var þarna. Ég var allt fyrir hann... Það eina sem ég hans.“ Heppnir Metrómenn fá hárkollu eða herra-hliðartösku í kaupbæti! • Hermannabuxur frá kr. 2.990 • Gallabuxur frá kr. 990 • Skyrtur frá kr. 590 • Stuttermabolir frá 590 Firði Hafnarfirði I Sími 565 0073

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.