blaðið - 03.08.2006, Qupperneq 6
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaöió
6 I FRÉTTIR
Skatturinn:
Einfaldar
bréfasendingar
Nokkuð hefur borið á því að
fólki í sambúð eða hjónabandi
hafi brugðið þegar það fékk
álagningarseðla frá skattinum í
byrjun vikunnar. Eru seðlarnir
aðeins stílaðir á annan aðilann
þrátt fyrir að innihald þeirra
eigi erindi til beggja.
Samkvæmt upplýsingum
frá ríkisskattstjóra er hér um
einföldun að ræða er viðkemur
samsköttun einstaklinga i
hjónabandi eða skráðri sambúð.
f þeim tilvikum eru álagningar-
seðlarnir stílaðir á eldri aðilann.
Hefur þessi háttur verið hafður
á í nokkur ár en þar á undan var
reglan að stíla seðilinn á karl-
manninn eingöngu.
British Airways:
Fjölga ódýrari
fargjöldum
„British Airways hefur stór-
aukið hlutfall lágra fargjalda
fyrir flug aðra leiðina frá
Evrópulöndum til Gatwick-flug-
vallar við London og einnig
frá Gatwick. Frá Keflavík til
London kostar farseðill aðra
leiðina nú aðeins frá 6.045
krónur með sköttum og
gjöldum inniföldum," segir í
frétt frá flugfélaginu.
Þar kemur enn fremur fram
að þessi breyting á verði hafi í
för með sér enn frekari lækkun
á verði fargjalda til London, auk
þess sem farseðlaverð til baka
aftur til fslands verði svipað og
frá Keflavík.
Beggi og Sigrún reyna
að komast af Næturnar i
tjaldinu geta verið kaldar en
þau halda hvort öðru hita
Var hent út úr íbúð í Vesturbænum og hýrast nú í tjaldi í Öskjuhlíð:
Þeim er kalt á nóttunni
■ Rifust og fylltu mælinn ■ Hent út ■ Mikill hávaði á morgnana ■ Ljúfmenni í pylsuvagni
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Parið Beggi og Sigrún hafa búið
í tjaldi í Öskjuhlíðinni í tæpan
mánuð. Þar áður voru þau í Laug-
ardalnum en þangað fóru þau eftir
að þau misstu húsnæði sitt í Vest-
urbænum. Þau fengu örfáa daga til
þess að tæma íbúðina sína þegar
þeim var vísað út úr henni vegna
óláta. Þau áttu í engin hús að venda
og því brugðu þau á það ráð að búa
í tjaldi.
Þau voru með íbúð hjá Félagsbú-
stöðum í Vesturbænum en var vísað
á brott eftir að þau rifust eitt kvöldið
heiftarlega.
Henti borði út um glugga
„Ég henti borði út um gluggann,“
segir Beggi og veit upp á sig sökina.
Hann segir að þau hafi fengið við-
vörun eftir að það gerðist og áréttar
að þau hafi hagað sér skikkanlega
eftir það. Engu að síður barst þeim til-
kynning að mæta fyrir Héraðsdóm
þar sem útburðinn var staðfestur að
lokum.
„Næturnar geta verið mjögkaldar en
í dag vöknuðum við í svitakófr,“ segir
Sigrún og kvartar undan hitanum í
blíðunni á þriðjudaginn. Himinninn
vantar á tjaldið og því eru þau algjör-
lega óvarin fyrir síbreytilegu veðri
eins og f sland er þekkt fyrir. Þau hafa
brugðið á það ráð að setja plastpoka
yfir gat sem er á miðju tjaldinu en það
hrekkur skammt þegar það rignir.
„Maður vaknar stundum í polli á
botninum,“ segir Beggi en þau segja
að félagsskapurinn sé góður og það
haldi að þeim hita að vera saman.
„Ég er búin að drekka síðan ég var
fjórtán ára gömul,“ segir Sigrún sem
er á þrítugsaldrinum. Henni var sett
það skilyrði af Félagsbústöðum að
hún yrði að fara í meðferð til þess að
fá aðra íbúð.
„Hvað gerist ef ég fell? Verður mér
þá hent út?“ spyr Sigrún afar ósátt
við skilyrðin sem henni eru sett. Hún
segist hafa reynt að fara í meðferð
fyrir mörgum árum en féll að lokum.
Beggi tekur utan um hana og hún
segir að það sé hægara sagt en gert
að brjótast út úr því mynstri sem hún
lifir í og bætir við að hún vilji ekki
svíkja góða vini.
Slæm aðstaða
„Við komumst ekki í sturtu í tíu
daga,“ segir Beggi aðspurður um
klósett og baðaðstöðu. Hann sýnir
blaðamanni kassa með gömlum
skóm og segir að lyktin af skónum
sé verri en orð fá lýst. Þau komust í
sturtu hjá kunningja sínum en til
þess að borða fara þau til Samhjálpar
áHverfisgötunni.
„Stundum bjarga þau manni á pylsu-
vagninum,“ segir Sigrún og vill taka
sérstaklega fram að fólkið á Pylsu-
vagninum séu einstök ljúfmenni.
Mikill hávaði berst frá flugvellinum
fyrir neðan en þyrla Landhelgisgæsl-
unnar lendir í miðjum samræðum
blaðamanns og parsins.
„Þú getur rétt ímyndað þér hvernig
þetta er um sjö leytið á morgnana
þegar allar flugvélarnar taka á loft,“
segir Beggi og þarf næstum að hrópa
í gegnum lætin.
Enginn veit af þeim í Öskjuhlíð-
inni en það er ekki leyfilegt að tjalda
þar. Beggi segir að þau hafi eitt sinn
vaknað og séð að annað tjald hafi
verið komið við hlið þeirra einn morg-
uninn. Þau hafi þá verið eldsnögg að
pakka saman og forða sér. Síðar um
daginn var tjaldið horfið.
„Þetta hafa sennilega verið túristar
sem vissu ekki betur,“ segir Beggi og
hlær.
Ekki er fyrirséð hvað þau gera fyrir
veturinn en Beggi segist vera að leita
að einhverju húsnæði og vinnu. Ekk-
ert hefur gengið hingað til en þau von-
ast til þess að komast einhvers staðar
inn fyrir kaldan veturinn.