blaðið - 03.08.2006, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaAÍÖ
deiglan
deiglan@biadid.net
Siglt úr höfn
Þennan dag, árið 1492, er talið að landkönnuðurinn frækni
Kristófer Kólumbus hafi lagt úr höfn frá Palos á Spáni og
haldið í sinn fyrsta leiðangur um ókannaðar slóðir.
Flest höfum við væntanlega
öll einhvern tímann óskað
þess að geta stokkið nokkra
áratugi aftur í tímann og
virt fyrir okkur mannlífið í Reykja-
vík á fyrri hluta tuttugustu aldar-
innar. Ljósmyndasafn Reykjavíkur
gerir nú um stundir sitt til þess að
færa okkur aftur til fortíðar. Starfs-
menn safnsins hafa glatt borgarbúa
í sumar með ljósmyndasýningunni
.Miðbær i myndum". Sýningin var
sett upp í tilefni af 25 ára afmæli
safnsins og er markmiðið með
henni að færa ljósmyndir safnsins
nær íbúum og gestum borgarinnar.
Gestir og gangandi geta upplifað
þessa staði sem við öll þekkjum svo
vel, á framandi hátt í gegnum þær
gömlu og heillandi myndir sem Ljós-
myndasafnið hefur sett upp. í kvöld
gefst gestm kostur á því að njóta
leiðsagnar um sýninguna „Miðbær
i myndum".
Ást á skautum
Harpa Björnsdóttir, myndlist-
armaður, og Kristín Hauksdóttir,
ljósmyndari og myndlistarmaður,
munu í kvöld leiða gesti um mið-
borgina og segja skemmtilegar
sögur úr fortíðinni með hliðsjón af
ljósmyndasýningunni. „Sýningin á
að sýna þessa þrjá staði, Austurvöll,
Lækjartorg og Fógetagarð, í 100 ár.
Við munum ganga um sýninguna
og fara aðeins dýpra í þá sögu sem
myndirnar segja. Við einbeitum
okkur sérstaklega að nokkrum
sögulegum atburðum. Við munum
m.a. segja frá skautasvellinu sem
búið var til á Austurvelli um 1914
en þar var oft mikið líf og fjör þegar
borgarbúar á öllum aldri söfnuðust
þar saman til þess að skemmta sér
á skautum. Á sýningunni okkar í
fyrra vorum við einmitt líka með
eina mynd frá skautasvellinu og
í eina gönguna okkar mætti eldri
kona sem hafði margar skemmti-
legar sögur að segja af svellinu. Hún
hafði m.a. kynnst eiginmanni sínum
þar.“ Kristín segir að þær stöllur
muni einnig beina sérstaklega at-
hygli gesta að miðbæjarbrunanum
árið 1915. „Þetta var stórbruni. Það
kviknaði í Hótel Reykjavík og eldur-
inn breiddist hratt úr Austurstræti
og út í Hafnarstræti. Margar bygg-
ingar urðu eldinum að bráð, m.a.
hús Landsbankans, og götumyndin
breyttist mjög í kjölfarið. Eftir þetta
var aukin áhersla lögð á að byggja
hús úr steinsteypu."
Ráðvilltur fénaður og stórbruni
Margir hafa eflaust nú þegar lagt
leið sína á Austurvöll og kíkt á ljós-
myndirnar. Mynd af nokkrum ráð-
villtum kindum á Austurvelli hefur
kannski vakið athygli einhverra.
Kristín ætlar að leiða gesti í allan
sannleikann um veru fénaðarins.
.Kindurnar eru nú bara að bíða eftir
að verða fluttar úr landi. Nokkrar
tegundir kinda voru fluttar inn í
upphafi fjórða áratugsins sem áttu
að bæta íslenskan landbúnað. Það
hlaust ekki góð reynsla af þessu
tilraunaverkefni því ýmsir búfjár-
sjúkdómar komu til landsins með
þessum skepnum. Því var hætt
snarlega við þennan innflutning
og íslenska sauðféð fékk 'að lifa hér
óáreitt." Harpa og Kristín munu
segja skemmtilega frá flugsveit Italo
Balbo sem gisti á Hótel Borg og setti
mikinn svip á bæinn og einnig mun
hinn frægi karl á kassanum koma
við sögu.
„Ein myndin á sýningunni sýnir
karlinn á kassanum. Það voru
nokkrir menn sem stóðu reglulega
á Lækjartorgi og þrumuðu yfir veg-
farendum. Við Harpa ætlum að taka
með okkur kassann í kvöld svo að
fólk getur stigið á stokk og látið í sér
heyra ef því liggur eitthvað á hjarta.“
Kristín segir borgarbúa hafa tekið
gönguferðunum ákaflega vel. „Það
fer auðvitað eftir veðri og vindum
hversu margir koma með okkur en
mætingin hefur alltaf verið mjög góð
og fólk er áhugasamt um það sem
við höfum fram að færa. Það er líka
gaman að sjá að það er fólk á öllum
aldri sem kemur með okkur. Við
Kristín Hauksdóttir
og Kolbrún Björnsdóttir
Leiða gesti um miðborgina
í kvöld.
erum með gott hljóðkerfi þannig að
það ættu allir að geta notið dagskrár-
innar.“ Gangan hefst kl. 20 í kvöld.
Lagt verður af stað frá Ljósmynda-
safninu, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
gengið þaðan að Fógetagarði, siðan á
Austurvöll og endað á Lækjartorgi.
Fullelduðu kjúklingabitarnirfrá Matfugli á grillið, í ofninn eða á pönnuna.
Með hverjum bakka fylgir Léttsósa frá Salathúsinu..
- Á grillið í örfáar minútur og maturinn er till
Bogomil Font stígur á stokk
m :*
' 'V
Bogomil Font og Flís . v
Munu skemmta gestum I dag í verslun Smekkleysu.
Bogomil Font er sprækur sem
aldrei fyrr. Hann stendur í ströngu
þessa dagana en hann mun halda
tvenna tónleika í dag með góðu
fólki. Tónleikarnir hefjast kl. 17
í nýjum húsakynnum plötuversl-
unar Smekkleysu að Klapparstíg
27 þar sem fataverslunin Spútnik
var áður til húsa. Þar má búast við
miklu fjöri enda þeir félagar í fínu
formi eftir útgáfu plötunnar Ban-
anaveldið sem leit dagsins ljós á
dögunum.
Platan inniheldur fjórtán calypso
smelli frá fyrri hluta síðustu aldar
sem kapparnir hafa dustað rykið af
og útsett á sinn einstaka hátt, auk
þess að gera við þá skemmtilega, ís-
lenska texta. Flís tríóið skipa þeir
Davíð Þór Jónsson, Helgi Svavar
Helgason og Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson. Piltarnir hafa unnið
hug og hjörtu fjölmargra með
þekktum og gamalgrónum lögum
í frumlegum jassútsetningum. Á
síðasta ári gáfu þeir út plötuna
Vottur en þar fluttu þeir þekktustu
lög Hauks Morthens á nýstárlegan
máta.
Bananaveldið er fyrsta plata Bog-
omils Fonts í ellefu ár. Auk tríósins
Flís koma fram á plötunni trompet-
leikarinn Eiríkur Orri Ólafsson og
gítarleikarinn Róbert Reynisson.
Einnig kemur fram samkór Aðal-
víkur undir stjórn séra Kolbeins.
Calypso tónlistin ætti að fá flesta
til að dilla sér en hún er ættuð frá
Vestur Indíum, nánar tiltekið Trin-
idad og Tobago og var afar vinsæl á
Vesturlöndum um miðbik síðustu
aldar.
Öll lögin á diskinum nema tvö
eru eftir mann að nafni Rafael de
Leon en hann gekk undir nafninu
Roaring Lion og samdi flest lag-
anna á árabilinu 1935-1942.
í kvöld mun Mammút, ein efni-
legasta hljómsveit landsins, svo
slást I hóp með þeim félögum
Bogomil og Flís. Þar mun söng-
konan Katrína Mogensen þenja
raddböndin og má búast við heljar-
innar skemmtun. Þau munu halda
tónleika á Café Amsterdam kl. 21.