blaðið - 03.08.2006, Qupperneq 26
26
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaðið
heilsa
Sjúkdóma
tulegri en
sálarinnar eru fleiri og hæt-
þeir sem herja á líkamann
Marcus Tullius Cicero, rómverskur heimspekingur
heilsa@bladid.net
Engifer er góður
við sjóveiki
Fátt er óþægilegra í siglingum en
að finna sjóveiki hellast yfir sig. Til
að forðast þetta nota margir sjó-
veikitöflur en mörgum þeirra fylgja
sljóvgandi aukaverkanir. Úr heimi
jurtanna má hins vegar finna virka
hjálp við þessum þrautum og þá
hjálp er að
sem fór fram á
stóru ítölsku skemmtiferðaskipi
var gerður samanburður á engifer
í hylkjum og dimenhydrinat sem er
virka efnið í mörgum ferðaveikipill-
um. 60 farþegar á skipinu tóku þátt
í þessari rannsókn sem stóð yfir (
tvo daga og töluverður veltingur
var á skipinu. í Ijós kom að efnin
voru jafngóð til þess að losna við
einkenni sjóveikinnar en munur var
á aukaverkunum.
Aðeins 13% þeirra sem tóku engi-
fer fengu aukaverkanir á borð við
höfuðverk og sljóleika, en 40%
þeirra sem fengu venjulegar sjó-
veikipillur kvörtuðu undan slíkum
kvillum.
Ekki láta áfengið
yfirbuga líkamann
Gera má sitt lítið af hverju til að
bæta fyrir skaðann af áfengisdryk-
kju, eða til að reyna að fyrirbyggja
hann.
Mikil áfengisneysla veldur undan-
tekningarlítið skorti
á B-vítamínum. Til
að koma í veg fyrir
að taugakerfi líkam-
ans verði fyrir of
miklu álagi við
áfengisneyslu
er upplagt að
taka bætiefni
með öllum B-
vítamínunum
en stafsfólk
apóteka og
heilsuvöru-
verslanagetur
leiðbeint fólki
í þeim efnum.
GOTT SINK
Sink er nauðsynlegt í barátt-
unni við að brjóta niður áfengi en
neysla áfengis, einkum ofneysla,
gengur mjög á sinkforða líkamans.
Sinkskortur leiðir svo aftur til lélegri
efnaskipta áfengis og annarra trufl-
ana í starfsemi líkamans. (tilraun
sem gerð var á rottum jók inntaka
sinks stórlega afeitrun vegna áfeng-
is og um leið lífslíkur dýranna. Sér
í lagi þegar það var tekið inn með
C-vítamíni.
OFSJÓNIR OG ÖLÆÐi
Magnesíumskortur er algengur
hjá fólki sem neytir áfengis í óhófi.
Ástæðurnar geta meðal annars ver-
ið þær að við mikla áfengisneyslu
tapar líkaminn þessu steinefni.
Rannsóknir sýna að allt að 60%
alkóhólista skortir magnesíum og
jafnframt eru vísbendingar um að
skortur á magnesíum tengist því
þegar „delerium tremens" rennur á
fólk, m.ö.o. ölæði sem lýsir sér í því
að einstaklingurinn sér ofsjónir og
missir algera stjórn á sjálfum sér.
Jafnframt er magnesíumskortur
talinn vera ein af helstu ástæðum
fyrir hjarta- og æðasjúkdómum hjá
áfengissjúklingum.
Mataræðið þarf ekki að fara út um þúfur um verslunarmannahelgina:
Allt er gott í hófi
að kannast margir við
að missa dampinn í
heilsuátakinu þegar farið
er í útilegu eða frí. Þú
ert kannski búin að vera
mjög dugleg að æfa í margar vikur en
rankar svo skyndilega við þér, sitjandi
inni í einhverri vegasjoppu með ham-
borgara í greipinni og fulla lúku af
frönskum, og það sem verra er - þetta
er kannski fjórði borgarinn á þremur
dögum.
Til að koma í veg fyrir að allt fari í
rugl meðan þessi þriggja daga helgiat-
höfn sældarhyggjunnar stendur yfir,
er um að gera að undirbúa gott nesti.
Það þarf ekki að vera mjög flókið og
gott er að hafa í huga að allt er best í
hófi, hvort sem um er að ræða áfengi
eða aðrar nautnir.
„Það sem ég myndi mæla með er að
stilla bara mataræðinu í hóf,“ segir Ól-
afur Jóhannesson, íþróttakennari og
yfirþjálfari í World Class. „Grillmatur
er til dæmis góður en það má ekki
borða sig pakksaddan. Það eru nefni-
lega færri hitaeiningar á einum diski
en tveimur eða þremur. Svo má ekki
gleyma að drekka vatn og borða ávexti
á milli mála. Öfgarnar eyðileggja alltaf,
hvort sem fólk er að borða of mikið eða
of lítið. Sem dæmi um það má nefna
þessa kúra þar sem kolvetnin eru
tekin að mestu út. Ef fitufrumurnar
fá ekki kolvetni þá taka þær tvöfalt í
sig af fitu þegar hún kemur aftur í lík-
amann. Líkaminn fær ákveðið áfall af
þessum megrunarkúrum sem verið er
að halda að fólki. Það er allt í lagi að
borða svolítið af sælgæti stundum en
þá þarf að hreyfa sig. Hvort sem það
er að skreppa i göngutúr eða fara í
ræktina.“
Áfengi er yfirfullt af hitaeiningum
„Nú um helgina verður töluvert
mikið af áfengi haft um hönd en í því
er að finna efni sem heitir ethanól og
það er eitt erfiðasta efnið fyrir líkam-
ann að brenna. Ef fólk drekkur mikið
þá verður mjög erfitt fyrir likamann
að vinna úr þessu ethanóli þar sem
það er ekkert nema kolvetni. Ef ein-
staklingur hefur til dæmis staðið sig
vel í ræktinni og lagt mikið á sig til að
ná árangri þar, en drekkur svo mikið
um verslunarmannahelgina, þá er
hægt að fullyrða að viku til tíu dögum
af þeirri vinnu sé kastað á glæ.“
Drekka létta gosdrykki
í stað sykraðra
Ólafur á góð ráð fyrir útilegufara
sem vilja passa upp á heilsuna.
„Það er til dæmis mjög gott að passa
upp á gosdrykkina. Drekka frekar
sódavatn og létta gosdrykki í stað sykr-
aðra. Vatnið er samt alltaf besti drykk-
urinn en það er óþarfi að þamba
það. Betra er að drekka það í litlum
skömmtum reglulega yfir daginn. Og
ef það er heitt í veðri þarf að drekka
meira til að líkaminn þorni ekki. Fólk
tekur gjarna með sér sælgæti í útilegur
en í sælgæti og gosdrykkjum eru ein-
föld kolvetni sem er erfitt fyrir líkam-
ann að vinna úr og þau setjast þannig
frekar í fituvefina. í pasta og brauði
eru hins vegar flókin kolvetni sem lík-
aminn getur nýtt sér betur og unnið
næringarefnin úr. Þannig er hollara
að minnka við sig sælgætið og fá
sér frekar eitthvað annað sem gefur
orku og kraft. En þrátt fyrir þetta
á maður auðvitað að njóta þess að
vera til og muna bara að allt er gott í
hófi,“ segir Ólafur að lokum.
Hugmyndir fyrir kæliboxið:
Soðið grófkorna pasta í léttri
ítalskri tómatsósu.
Ávextir: Bananar, epli, appelsínur,
jarðarber, ananas, melóna. Ávextina
er mjög gott að skera niður og setja
í plastbox. Svo má hella yfir þetta
skyrdrykk, t.d. vanilluskyri og þá er
kominn ljómandi góður eftirréttur
eða miðdegisréttur á góðum degi.
■ Magurt kjöt á grillið.
* Bökunarkartöflur.
■ Léttar sósur.
■ Salat.
* Samlokur úr grófu brauöi
t.d. meö eggi og tómötum,
mögrum osti, léttu áleggi.
Líkamsæfingar geta losað um bakverki
Það kannast flestir við að hafa
fengið bakverk. Margir eru með
stöðuga verki í bakinu og eiga erf-
itt með að losna við þá en það er
margt sem getur valdið því að fólki
verkjar í þennan líkamshluta. Til
dæmis geta mislangir fætur valdið
bakverkjum, rangar líkamsstöður,
langar setur, lélegar dýnur, of mikil
líkamsþyngd o.s.frv. Allt getur
þetta spilað saman eða eitt og sér
orðið til þess að langvarandi bak-
verkur tekur sig upp.
Það er hægt að beita ýmsum að-
ferðum og svo er bara að vona að
þær beri æskilegan árangur. Lík-
amsrækt er til dæmis mjög góð
fyrir heilsuna en þó ber að hafa
aðgát þegar hún er valin. Til dæmis
er nauðsynlegt að byrja rólega og
vinna sig svo upp. Það er ekki vit-
urlegt að hegða sér eins og þaul-
þjálfaður íþróttamaður á fyrstu
æfingunni.
Holl ráð
Góð vísa er aldrei of oft kveðin
og það er þess vegna sem heilsu-
frömuðir þreytast seint á því að
minna fólk á að drekka vatn. Vatn
á að drekka fyrir og eftir æfingar
og á meðan að á þeim stendur. Það
er líka mikilvægt að byrja bæði og
enda á léttum æfingum auk góðra
teygjuæfinga. Góðir skór og þægi-
legur fatnaður koma sér
líka vel en þó á
enginn að láta það
stöðva sig að eiga
ekki það nýjasta frá Nike. Á líkams-
ræktarstöðvar kemur alls konar fólk
og fæstir velta því fyrir sér hvaða
fötum konan eða maðurinn á næsta
bretti klæðist. Síðast, en ekki síst,
er mikilvægt að njóta sín við hreyf-
inguna. Heilsurækt á aldrei að vera
kvöð heldur eitthvað sem fólk gerir
fyrir sjálft sig til að bæta líf sitt og
byggja það upp.
Það sem ber
að forðast
• Ef líkamsræktin sem þú
hefur valið þér veldur því
að bakverkirnir versna á að
hætta henni samstundis og
skoða aðra valkosti.
• Aldrei borða stóra máltíð fyrir
æfingu
• Ekki gera loftháðar (airobic)
æfingar á steinsteyptu eða
mjög hörðu gólfi.
• Ekki æfa ef þér líður illa.
• Ekki gera æfingar sem leggja
þyngd á, eða reyna of mikið
á hryggjarliði, liðamót eða
vöðva sem eru ekki í góðu
formi