blaðið - 09.08.2006, Side 6

blaðið - 09.08.2006, Side 6
6IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 blaðiö Keyrði með 16 farþega í bílnum: Rútubílstjóri sagður fullur Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Rútubílstjóri grunaður um ölvun keyrði utan i vegrið á öfugum veg- arhelmingi á Kömbunum á Hellis- heiði síðasta sunnudag. Farþegar í rútunni voru erlendir ferðamenn og höfðu ætlað að taka gullna hringinn um ísland en enduðu á öfugum vegarhelmingi. Lögreglan kom á staðinn og samkvæmt Krist- óferi Sæmundssyni, vaktstjóra hjá lögreglunni, virtist bílstjórinn tals- vert ölvaður þegar lögreglan kom á slysstað. Atvikið átti sér stað snemma á sunnudagsmorgni og var ferðinni heitið um hinn fræga gullna hring. Bílstjórinn keyrði á öfugan vegar- helming og utan í vegrið í Kömb- unum þar sem farið er niður brekk- una að Hveragerði. Lögreglan var kvödd á staðinn og tók hún eftir því að maðurinn virt- ist vera nokkuð ölvaður. 1 ljós kom samkvæmt Kristóferi að maður- inn hafði verið að drekka fyrr um nóttina og að eigin sögn var hann kallaður til með litlum fyrirvara til þess að aka bifreiðinni. Bílstjórinn taldi sjálfur að hann væri i ástandi til þess að aka rútunni. „Þeim var ansi brugðið,“ segir Kristófer Sæmundsson, vakt- stjóri lögreglunnar á Selfossi, um ástand farþega þegar lögreglan kom á slysstað. Hópurinn var blanda af Bretum og fólki af fleiri þjóðernum og voru meðal annars börn á meðal farþega. Að sögn Kristófers var bifreiðin stór- skemmd og þurfti kranabíl til þess að fjarlægja hana af heiðinni. Hlið bílsins var öll rispuð og dekkin á sömu hlið gjörónýt. Samkvæmt Kristóferi var það einskær lukka sem varð til þess að ekki fór verr en illa hefði farið ef bifreið hefði komið úr gagnstæðri átt. Maður- inn var sendur í blóðprufu vegna gruns um ölvun. „Bílstjórinn keyrir ekki fyrir okkur fyrr en niðurstaða fæst í málið,“ segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða ehf., en rútan var frá þeim. Hann segir að farþegum hafi brugðið þó nokkuð en ferðaskrifstofan bauð þeim sem vildu að fara gullna hring- inn daginn eftir. Þeir létu þó ekki staðar numið þar heldur buðu þeir öllum hópnum út að borða á Kaffi Reykjavík þar sem fólk gat rætt málin. Að sögn Þráins voru farþeg- arnir sáttir við viðbrögð ferðaskrif- stofunnar og hann vill einnig taka fram að svona lagað sé algjört eins- dæmi og hafi ekki komið fyrir áður. „Við bíðum og sjáum hvað úr verður,“ segir Þráinn um framhald málsins en niðurstaða úr blóðpruf- unni verður ekki kunn fyrr en í fyrsta lagi eftir tvær vikur. „Núna vinn ég viö aö gera það sem mér finnst skemmtilegast!" Samhliða starfi sínu sem þjónn á kaffihúsi lauk Helgi Þór Guðmundsson námi í Auglýsingatækni. í framhaldi var hann ráðinn sem sölu- og prentráðgjafi hjá Prentmet. Hann fór svo í Photoshop Expert og hefur nýverið lokið ACE prófinu og er í dag viðurkenndur Photoshop sérfræðingur. ________________________________ntv.is - Innritun og skráning í síma 544 4500 og á www.ntv.is Innritanir í framhaldsskóla: Allir fá pláss ■ Vont að gera hlé á námi ■ 1.450 vilja skipta um skóla ■ Góð staða í ár Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net Alls óska 1.450 eftir því að skipta um framhaldsskóla. í ár sóttu 6.614 nemendur um aðgang að framhalds- skóla og ná skólarnir að taka við öllum umsækjendum að þessu sinni. Borið hefur á því undanfarin ár að þurft hafi að vísa nemendum frá og hafa það oftast verið nemendur sem gert hafa hlé á náminu. Vandræðahópur Þeir sem koma beint úr grunn- skóla hafa forgang inn í framhalds- skólana og aðrir hópar mæta af- gangi við afgreiðslu innritana hjá menntamálaráðuneytinu. „Við vitum ekki betur en að þetta sé í höfn hjá okkur í ár. Allir nem- endur sem hafa sótt um skólavist hafa fengið tilboð frá skólunum. Hins vegar voru náttúrlega ekki allir sem fengu sæti í þeim skóla sem þeir höfðu óskað sér,” segir Karl Krist- jánsson, deildarstjóri skóladeildar menntamálaráðuneytisins. AÐSÓKNí FRAMHALDSSKÓLANÁM 4.528 nemendur beint úr grunnskóla 2.068 nemendur koma eftir hlé 28.000 skólapláss 1.450 nemendur óska eftir skiptum „Við notumst við rafrænan gagna- grunn við skráningarnar sem heldur utan um allt saman. Það er ekki hægt að útvega öllum pláss alveg eins og fólki dettur í hug, það er útilokað. Fólk ber náttúrlega ábyrgð á þessu sjálft, ef fólk ákveður að taka sér frí þá er það þeirra vandamál ef ekki er pláss þegar það sækir um næst.” Skráðir í tvo skóla Galli er á rafræna skráningarkerf- inu því erfitt er að fylgjast með því þegar nemendur færa sig milli skóla. Þetta verður til þess að nemendur fá ekki pláss í þeim skólum sem þeir óska eftir vegna þess að aðrir nem- endur sem hafa verið færðir eru enn skráðir þar. „Við höfum alltaf náð að koma öllum nemendum að sem koma beint úr grunnskóla en höfum ekki haft yfirsýn yfir þá sem hafa gert hlé á námi eða færa sig á milli skóla. Við sjáum stundum ekki hvort nemandi sé ennþá með plássið í þeim skóla sem hann færði sig úr og því getur nemandi verið skráður í tvo skóla samtímis,” bætir Karl við. Áralangt vandamál Oddný Ág. Hafberg, skólameist- ari Kvennaskólans í Reykjavík, segir skólann vera of lítinn fyrir þann fjölda sem sækir um á hverju ári. 103 hafi verið vísað frá í ár. „Við erum ánægð með þann fjölda sem sýnir okkur áhuga en getum bara ekki tekið við fleirum. Þetta hefur verið svona í mörg ár,” segir Oddný. „Víða á Norðurlöndunum þurfa nemendur sem koma til baka eftir hlé að fara á sér skólastig en hér eru allir teknir inn í sama kerfið. Vanda- málið hér er að það er bara ekki pláss fyrir alla nemendur.” Srí Lanka: Þrír fórust í sprengjutilræði Þrír létust í sprengjutilræði í Kól- ombó, höfuðborg Srí Lanka, í gær. Tilræðinu var beint gegn stjórn- málamanni, M. Sivadsen, sem er andstæðingur aðskilnaðarhreyf- ingar tamílsku tígranna. Sprengj- unni hafði verið komið fyrir framan við stúlknaskóla á fjölförnum stað. Sjö voru fluttir á sjúkrahús, þar á meðal Sivadsen, en hann er sagður hafa sloppið vel. Lögregla segir tí- grana bera ábyrgð á tilræðinu Átök á milli tamílsku tígranna og stjórnarhersins hafa farið harðn- andi að undanförnu og óttast er að vopnahléið frá árinu 2002 sé að fara út um þúfur og að borgarastríð sé yfirvofandi. Norðmenn og Islendingar eru einir eftir af þeim Norðurlandaþjóðum sem voru við friðargæslu á Sri Lanka. Mannfall í Kólombó Þrírlétust og sjö særðust í sprengjutilræði íhöfuöborg Sri Lanka í gær. Tamítsku tígrunum er kennt um árásina.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.