blaðið - 09.08.2006, Side 9
blaðið MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
FRÉTTIR I 9
Framsóknarmenn:
Strið og fjolmiðlar:
Reuters dregur til
baka 920 Ijósmyndir
Ljósmyndari ýkti áhrif mynda í tölvuforriti
Vandræðalegt þar sem vinnslan var ekki vönduð
Fréttastofan Reuters fjarlægði
920 myndir úr myndabanka
sínum á mánudag sökum þess
að ljósmyndari á vegum stofunar
var staðinn að því að falsa myndir
með því að ýkja áhrifþeirra í tölvu-
forriti. Ljósmyndarinn, Adnan
Hajj, er frá Líbanon og hefur tekið
myndir fyrir fréttastofuna frá því
að átök milli fsraela og Hizballah
hófust fyrir fjórum vikum í kjöl-
far þess að skæruliðar Hizballah
réðust yfir landamæri ríkjanna
og rændu tveim hermönnum.
Um helgina fór að bera á ásök-
unum á ýmsum spjallsíðum á
Netinu um að ljósmyndir Hajj frá
Beirút væru falsaðar. Yfirmenn
Reuters-fréttastofunar brugðust
strax við með því að fyrirskipa
rannsókn á öllum þeim myndum
sem keyptar voru af Hajj frá því
að átökin hófust og hefur komist
að þeirri niðurstöðu að átt hefði
verið við tvær myndir í tölvu.
Önnur ýkir reyk og skemmdir
á byggingum í Beirút í kjölfar
loftárásar ísraelska hersins en á
hinni myndinni hafði verið bætt
við mun fleiri blossum frá ísra-
elskri orrustuþotu þannig að svo
virðist sem hún sé að skjóta fleiri
sprengjum en ella. Talsmenn Reut-
ers segja þó að ekki sé víst að Hajj
hafi átt við fleiri myndir og mik-
ill meirihluti þeirra mynda sem
hafa verið skoðaðar væri í lagi.
Málið þykir ákaflega vandræða-
legt fyrir fréttastofuna, ekki síst
vegna þess að tölvuvinnsla mynd-
anna þykir ekki vera mjög fag-
mannleg. Reuters hefur brugðist
við með því að auka gæðaeftirlit
með myndvinnslu á ljósmyndum
frá Líbanon. Adnan Hajj hefur
unnið fyrir Reuters gegnum tíð-
ina en helstu viðfangsefni hans
hafa verið íþróttaviðburðir.
Hizballah hluti af
stjórnmálakerfi landsins
Samkvæmt tillögum stjórnvalda í
Beirút munu líbanskir hermenn fara
til suðurhlutans á næstu sjö dögum.
Tillagan felur ennfremur í sér að
fangaskipti muni fara fram á milli
Líbanon og ísraels og að Hizballah
verði enn hluti af lögmætu stjórn-
málakerfi landsins þrátt fyrir að ríkis-
valdið megi eitt beita vopnum og afli.
Þrátt fyrir að stjórnmálamenn
helstu ríkja heims hafi fagnað útspili
stjórnvalda í Beirút er talið ólíklegt
að breyting verði gerð á ályktun
Bandaríkjamanna og Frakka og að
hún muni ekki kveða á um brott-
hvarf Israelshers. Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, sagði í gær að
Samherjar slást um
forystunlutverkin
hann vonaðist til að ályktunin yrði
samþykkt óbreytt í dag en bætti því
við að samþykki hennar opnaði leið
fyrir aðra ályktun sem myndi kveða
á um það.
Á sama tíma og sáttaumleitanir
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
stóðu yfir héldu bardagar á milli ísra-
elsmanna og skæruliða Hizballah
áfram i gær. Að minnsta kosti 13
féllu í loftárásum ísraelsmanna og
Hizballah gerðu á annað hundrað
eldflaugaárásir á ísrael. Fátt bendir
til að það muni breytast á meðan
deilt er um hvernig eigi að standa
að framkvæmd vopnahlésins. Hátt í
þúsund manns hafa fallið í Líbanon
og um hundrað í ísrael frá því að bar-
dagar hófust fyrir um fjórum vikum.
Það yrðu vonbrigði að ná ekki
kjöri sem varaformaður Framsókn-
arflokksins segir Guðni Ágústsson,
landbúnaðarráðherra. Nú eru að-
eins rétt tæpar þrjár vikur þangað
til flokksþing Framsóknarflokks-
ins verður haldið en auk Guðna
hefur Jónína Bjartmarz lýst yfir
framboði til varaformanns flokks-
ins. Hjálmar Árnason, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
segist búast við því að kosninga-
baráttan fari á fullt skrið eftir
verslunarmannahelgi.
Undir miklum þrýstingi
„Ég finn góða strauma í minn
garð. Ég finn að menn líta á mig
sem sterkan aðila í þeim Fram-
sóknarflokki sem þeir vilja. Ég
held að það yrðu mikil tíðindi
ef ég yrði felldur sem varafor-
maður og ég trúi ekki að það
muni gerast,“ segir Guðni Ág-
ústsson landbúnaðarráðherra.
Hann segir þá ákvörðun um að
bjóða sig ekki fram til formanns
hafi valdið stuðningsmönnum
sínum vissum vonbrigðum.
„Ég taldi það leið sátta að tak-
ast ekki á um formennskuna
og tel að flokkurinn þurfi á
einingu að halda. Ég var undir
miklum þrýstingi frá stuðnings-
mönnum að bjóða mig fram til
formanns og margir urðu fyrir
vonbrigðum. En þetta er mín
ákvörðun og þeir virða hana og
skilja.“
Flokksþing Framsóknar-
flokksins verður haldið dagana
18. og 19. ágúst næstkomandi
en 878 fulltrúar munu sækja
þingið. Nú þegar hafa tvö fram-
boð til formanns litið dagsins
ljós. Annars vegar er það Jón
Sigurðsson, nýskipaður iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, og hins
vegar Haukur Haraldsson, sem
vakti fyrst athygli sem eigandi
Guðni, Jón og Jónína Þau verða íeldlínunni hjá Framsóknarflokknum
þegar ný forysta verður kjörin.
Pan-hópsins á 9. ára-
tugnum. Þá hefur
Haukur Logi Karls-
son, fyrrverandi for-
maður Sambands
ungra framsókn-
armanna, lýst yfir
framboði til ritara
flokksins en því emb-
ætti hefur Siv Friðleifs-
dóttir heilbrigðisráðherra
gegnt. Nafn Sivjar hefur verið
nefnt í tengslum við formanns-
embættið en hingað til hefur hún
ekki viljað gefa út neinar yfirlýs-
ingar hvort hún hyggist sækjast
eftir því embætti eða ekki. Þá
hefur Birkir Jón Jónsson þing-
maður einnig verið nefndur sem
mögulegur frambjóðandi til rit-
ara flokksins.
Guðni segist hafa verið í góðu
sambandi við stuðningsmenn
sína og vera tilbúinn í slaginn.
„Ég hef heyrt í mínum stuðnings-
mönnum. Þeir vaka yfir þvi að
þeir vilja sjá mig í forystusveit
flokksins. Jónína hefur fullt
frelsi til að bjóða sig fram í það
embætti sem hún vill. Hún kýs
að takast á við mig en ég held
hins vegar að það yrðu vonbrigði
ef ég næði ekki kjöri. Ekki síst
í flokknum. Það mundi valda
sundrungu þó ég
segi sjálfur frá. En
ég leiði ekkert hug-
ann að því.“
Ekki slæm áhrif
áflokkinn
Hjálmar Árna-
son, formaður þing-
flokks Framsóknar-
flokksins, segist búast
við því að kosningaslagurinn
fari á fullt skrið eftir verslunar-
mannahelgina. „Júlímánuður er
nýliðinn og fólk er út og suður
og minnst að hugsa urn pólitík.
En flokksmenn ræða þetta sín
á milli þegar þeir hittast. Það
fer nú hver að verða síðastur að
lýsa yfir framboði og ég hugsa
að það komi kraftur í þetta strax
eftir verslunarmannahelgi.“
Hjálmar hefur nú þegar lýst
yfír stuðningi við framboð Jóns
Sigurðssonar til formanns en
hann telur að yfiryofandi kosn-
ingabaráttumuni ekki hafa slæm
áhrif á flokkinn. „Ef mönnum
finnst óeðlilegt að tekist sé á
um svona þá er hægt að sleppa
því hafa kosningar. Þá er betra
að taka upp rússneskar aðferðir
og láta fámennar klíkur skipa í
embætti. Það hugnast fáum.“
■bhhb
SUMARTILBOD
Á SAMSUNG SÍMUM
Síminrí
r 0
SAMSUNG D820
37.980 kr.
Glæsileg hönnun. Örþunnur,
með stórum TFT hágæða
litaskjá og 1,3 MP myndavél
sem hægt er að snúa 180
gráður. Hægt er að tengjast
tölvu, handfrjálsum búnaði
og blátannarsímum í
gegnum blátannarbúnað.
SAMSUNG X650
__
tui
Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans.
—
1
—
14.980 kr.
Gullfallegur samlokusími,
sem býður upp á alla helstu
möguleikana. Meðal búnaðar
má nefna VGA myndavél og
hægt að taka upp hreyfimyndir,
FM-útvarp, 3MB minni, 6 klukku
stunda taltíma á rafhlöðu og
margt fleira.
11.......................
■
* Elngöngu innan kerfis Símans