blaðið - 09.08.2006, Síða 10
10 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 blaöió
Bílaleigur:
Ferðamenn
sektaðir
Lögreglan á Selfossi stöðvaði
þrjá bílaleigubíla sem vantaði
númeraplötur framan á um helg-
ina. Slíkt er ólöglegt en mun
vera nokkuð algengt samkvæmt
lögreglunni. Sektin hljóðar upp
á ío þúsund krónur og þurfa
ferðamenn sem eru með bílana
að borga brúsann. Lögreglan
gagnrýnir bílaleigur fyrir að
huga ekki betur að bílunum
því þessu fylgja mikil óþægindi
fyrir ferðamenn.
Dýraeigandi:
Máttu taka
tígrisdýrið
Antoine Yates, gæludýraeig-
andi í New York borg, hefur
tapað skaðabótamáli sínu gegn
lögregluyfirvöldum borgarinnar
en hann sakar lögregluna um að
hafa farið inn í íbúð sína án leit-
arheimildar
og fjarlægt
tígrisdýr,
krókódíl,
kanínu og
stolið verð-
mætum.
Dómarinn
í málinu
sagði mála-
tilbúnað
Yeats bíræfinn miðað við for-
sögu málsins. Fyrir nokkru lagði
Yates sig inn á bráðamóttöku
vegna alvarlegra bitsára. Yates
sagðist hafa verið bitinn af hundi
nágranna síns en læknarnir
töldu slíkt ekki koma heim og
saman og gerðu lögreglu viðvart.
I ljós kom að Yates hélt 200 kílóa
tígrisdýr, sem heitir Ming, í íbúð
sinni. Lögreglan greip til aðgerða,
réðst inn í íbúðina og fangaði
dýrið. Lögreglu til mikillar furðu
var tígrisdýrið ekki eina dýrið
sem Yates hélt. Þar var tveggja
metra krókódíll.
Dómarinn í málinu kvað upp
þann úrskurð að lögreglunni
hafi verið heimilt að bregðast
við án þess að hafa leitarheim-
ild undir höndum vegna þeirrar
hættu sem stafaði af dýrunum.
Dómarinn sagði að líklega gæti
vera krókódílsins í íbúðinni
skýrt örlög kanínunnar og vís-
aði jafnframt ásökunum Yates
um þjófnað á verðmætum á bug.
Gæludýr Yeats búa nú á griða-
svæði í Ohio-ríki.
Mótmælin við Kárahnjúka:
Deila um aðgerðirnar
Lögregia neitar að beita víkingasveitinni Friðsöm mótmæli Ekki leitað í bílum
Arni Finnson:
Stjórnvöld ættu heldur
að hvetja til mótmæla
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtakaíslands, segir
lögreglu ekki hafa sýnt mótmæl-
endum á Kárahnjúkasvæðinu
nægilega virðingu. Hann segir að
íslensk stjórnvöld ættu fremur að
hvetja til mótmæla í stað þess að
bregðast við þeim með valdi.
„Mér sýnist að mótmælin hafi
að öllu leyti farið friðsamlega
fram og þá verður lögreglan að
sýna mótmælendum virðingu og
kurteisi en það virðist ekki hafa
verið tilfellið," segir Árni. „Þegar
við bætist að ferðamenn hafi
verið áreittir og að lögreglan hafi
verið að hnýsast í farangur þeirra
þá teljum við að gengið hafi verið
of langt.“ Árni segir mikilvægt
að hafa í huga að Kárahnjúka-
virkjun feli í sér gríðarlega
mikla eyðileggingu á
náttúru Islands. „Það
er sannarlega ástæða
til þess að andæfa
þessari framkvæmd
þó að flest bendi til að
af henni verði.“ Þess
vegna beri lög-
reglu að koma
mjög varlega
fram við mót-
mælendur og
ferðamenn
að sögn Árna.
„Það var þetta
sem við vildum
árétta með yfirlýsingunni. Okkur
grunar að ein ástæða þess að lög-
regla hefur gengið fram af meiri
hörku en ella, er að sumir þessara
mótmælenda eru útlendingar.
Þá þyki mönnum réttara að sína
hörku til þess einhvernveginn að
fæla fólk frá því að koma hingað
til að mótmæla."
Að sögn Árna er samstaða um
það meðal íslendinga að Bretar
hætti rekstri Sellafield-endur-
vinnsluversins fyrir kjarnorku-
úrgang. „Okkur þætti það mjög
hart ef breska lögreglan kæmi
fram af meiri hörku við íslenska
mótmælendur en við breska sem
vilja andæfa þeirri ógn. Það er
okkar skoðun að við þurfum á
þessum mótmælendum að halda,
hvort heldur þeir eru Islend-
ingar eða útlendingar vegna
þess að það er svo margt í um-
hverfinu sem þarf að vernda.
íslensk stjórnvöld ættu því
frekar að hvetja fólk til að mót-
mæla umhverfiseyðileggingu
og náttúruvá í stað
þess að vera með
svona hörku í
garð þeirra
sem láta sig
svona mál
varða.“
Óskar Bjartmarz:
Höfum sýnt mótmæl-
endum fulla virðingu
Oskar Bjartmarz, yfirlögreglu-
þjónn á Seyðisfirði, þvertekur
fyrir að leitað hafi verið í bílum
ferðamanna. Hann segir kostnað
löggæslunnar hlaupa á tugum
milljóna og segir enga sérsveitar-
menn hafi komið að gæslunni.
„Við höfum ekki verið með að-
gerðir gagnvart öðru ferðafólki á
hálendinu. Við tökum undir að
fólki er velkomið að mótmæla
með friðsömum hætti. Það hefur
enginn gert athugasemdir við
slíkt.“ Óskar segir ennfremur að
lögreglan hafi komið fram við
mótmælendur með fullri virð-
ingu, „hvort sem þeir hafa verið í
friðsömum mótmælum eða með
einhverjar aðgerðir sem hafa
verið að valda töfum og tjóni.“ í
yfirlýsingu Náttúruvernadsam-
takanna er því haldið fram að
lögreglan hafi ítrekað stoppað
ferðafólk og leitað í bílum þess.
Þetta segir Óskar rangt, lög-
reglan hafi ekki stoppað bíla og
leitað í farangri ferðafólks. Þegar
Blaðið ræddi við Óskar var allt
fólk farið úr Lindum.
Aðspurður hverskonar reglur
væru í gildi um hvar megi tjalda
segir Óskar lögregluna líta svo á
að á þessu svæði eigi enginn að
vera. „Við höfum gert mótmæl-
endum það ljóst, að þeir eiga ekki
að vera á vinnusvæðinu. Þeir
eiga ekki afturkvæmt þangað til
þess að koma upp tjaldbúðum
eða öðru slíku. Það er hins
vegar fullt af fólki, til dæmis
uppi í Kringilsárrana og á fleiri
stöðum, og þar hafa engin vanda-
mál komið upp.“
Óskar segir að kostnaðurinn
við aðgerðir lögreglunnar hlaupi
á tugum milljóna. „Þetta hefur
valdið þjóðfélaginu kostnaði sem
sennilega er farinn að hlaupa
á tugum milljóna.“ Aðspurður
hvort sá liðsauki sem lögregl-
unni hefur borist frá öðrum um-
dæmum lögreglunnar hafi nægt
segir Óskar að það hafi sloppið
fyrir horn. Hann þvertekur
hins vegar fyrir að liðsmenn
sérsveitar ríkislögreglustjóra
hafi verið sendir á staðinn eins
og frá hefur verið
„Það hafa engir
sérsveitar-
menn verið
hér. Þetta er
enn ein rang-
færslan sem
haldið hefur
verið fram í
fjölmiðlum.'
greint.
Náttúruverndarsamtök Islands hafa mótmælt framgangi lögreglunnar við Kárahnjúka. Lögregla segir rangan fréttaflutning hafa verið af aðgerðunum.
Ekki giata minningum!
Settu bestu Ijósmyndirnar þínar á Ijósmyndapappír, til varöveislu um aldur og ævi. Þaö hefur aldrei verið auöveldara!
Hvort sem myndir eru á CD, minniskorti, minnislykli eöa í blátannar síma. Þú skoðar og velur á snertiskjá og færö
myndirnar á Fujifiim Crystal Archive endingarbesta ijósmyndapappír í heimi. Verö aðeins frá 29.- kr. myndin!
Skipholti 31, sími 568-0450 Ijosmyndavorur.is
BtTMi
MYNDfRl
FUJIFILM
OFFICIAL IfnFIGinG SPOnSOR