blaðið - 09.08.2006, Side 12
12 ! FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 blaðið
Horft til leiðtogans Skortur er á flestu ÍN-Kóreu.
Norður-Kórea:
Hetjudáðir vegna
persónudýrkunar
Fjöldi Norður-Kóreumanna
hætti lífi sínu við það að bjarga
ljósmyndum af leiðtoga landsins,
Kim Jong-Il, af heimilum sínum
þegar gríðarmikil flóð gengu yfir
í síðasta mánuði.
Ríkisfjölmiðlar landsins sögðu
frá mörgum hetjudáðum sem
verkamenn drýgðu þegar þeir
voru að bjarga myndum af Kim-
Jong-Il úr húsum sem voru í þann
mund að hrynja niður og fara í kaf
vegna vatnavaxtanna. Sérstaklega
var sagt frá embættismanni við
trjáræktarstofnun og námuverka-
manni sem létust við að bjarga
myndunum frá því að verða flóð-
inu að bráð.
Myndir af leiðtoganum hanga
upp á öllum heimilum landsins en
persónudýrkun á honum er snar
þáttur í valdstjórn landsins. Rík-
isfjölmiðlar segja að um hundrað
manns hafi farist í flóðunum en
fjölmiðlar í Suður-Kóreu segja að
hátt í tíu þúsund hafi farist í flóð-
unum og að þau hafi verið hin
verstu í heila öld.
Reykjavíkurborg:
Vinnubrögðin
ólýðræðisleg
Minnihlutinn í borgarstjórn
Reykjavíkur sakar meirihluta
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
um ólýðræðisleg og ófagleg vinnu-
brögð i tengslum við umræðuna
um menntaráð. Þetta kemur fram
í yfirlýsingu sem send var út í gær.
í síðustu viku var ákveðið
að aðskilja yfirstjórn leikskóla
frá grunnskólum með stofnun
sérstaks leikskólaráðs. Því hefur
minnihlutinn mótmælt harðlega
og bent á að slíkt hamli samstarfi
og samræmingu skólastiganna.
1 yfirlýsingunni kemur fram
að kröfum minnihlutans um
faglega umræðu hafi verið hafnað
og fyrirspurnum ekki svarað. Þá
segir að meirihlutinn hafi neytt
aflsmunar í málinu á kostnað
lýðræðislegrar umræðu. Er lýst
yfir áhyggjum vegna þessara
vinnubragða og þeim harðlega
mótmælt.
Lögreglan:
Brotist inn
á sex heimili
Búið var að tilkynna um
fjórtán innbrot í gær en það eru
nákvæmlega jafn mörg og um
verslunarmannahelgina í fyrra.
Af þessum innbrotum
voru sex innbrot
í heimahús og
talsvert var brotist
inn í bíla. Ekki er
fyrirséð hversu
mörg innbrot voru
framin um helgina en
nokkuð margt fólki var enn að
skila sér í gær eftir helgina.
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Mikið vantar upp á að eigendur hjól-
hýsa og tjaldvagna fylgi öllum örygg-
isreglum á vegum úti að sögn lög-
reglunnar á Selfossi. Verkefnastjóri
Umferðarstofu segir alltof algengt
að bifreiðar með eftirvögnum séu
ekki með lögbundna framlengingu
á speglum og í sumum tilvikum eru
alltof léttir bílar að draga of þunga
eftirvagna. Þá eru dæmi um það að
breidd eftirvagna valdi vandræðum
á þjóðvegum landsins.
Algengt vandamál
„Það liggur alveg fyrir að sum af
þessum hjólhýsum og eftirvögnum
eru breiðari en bílarnir og undir
þeim kringumstæðum er skylt að
vera með framlengingu á speglum,”
getur valdið því að vagninn taki
nánast öll völd með skelfilegum
afleiðingum.“
Hjólhýsum og tjaldvögnum hefur
fjölgað töluvert hér á landi á und-
anförnum árum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Umferðarstofu voru
nýskráð 338 hjólhýsi á síðasta ári
og 697 tjaldvagnar. Árið 2004 voru
hins vegar nýskráð 113 hjólhýsi og
592 tjaldvagnar.
Ökumenn stöðvaðir
Að sögn lögreglunnar á Selfossi er
áberandi skortur á því að bílar með
hjólhýsi eða tjaldvagn i eftirdragi
fylgi öllum öryggisreglum. Er sér-
staklega bent á notkun framlengdra
spegla. Hefur lögreglan stöðvað
þó nokkra ökumenn vegna þessa
í sumar en ekki er vitað til þess að
þetta hafi valdið alvarlegu slysi
hingað til. Þá eru dæmi um að eig-
endur hjólhýsa og tjaldvagna geri
sér ekki alltaf grein fyrir breidd
þeirra þegar þeir aka á þjóðvegum
landins. Hafa vöruflutningabíl-
stjórar bent á að hætta geti skapast
vegna plássleysis þegar bíll með
breiðum eftirvagni mætir stórum
vöruflutningabíl.
Sigurður segir mikilvægt að menn
séu meðvitaðir um breidd eftivagns-
ins. „Það er mikilvægt að menn séu
meðvitaðir um það hversu breiður
eftirvagninn er og sýni eðlilega til-
litssemi. En stundum gleyma menn
því einfaldlega að þeir séu með
eftirvagn."
Öryggisreglur virtar að vettugi
Skortur er á því að eigendur hjól-
hýsa og tjaldvagna fylgi settum
öryggisreglum.
Stígamót:
Beiðni snúið
upp í gagnrýni
Mikilvægt er að þjónusta fyrir þol-
endur kynferðisafbrota sé vel kynnt
á útihátíðum að mati Guðrúnar Jóns-
dóttur, talsmanns Stígamóta. Hún
segir misskilning í fréttaflutningi
hafa valdið því að beiðni Stígamóta
um frekari kynningu hafi snúist
upp í gagnrýni á mótshaldara. Nú
þegar er vitað um fjögur tilvik kyn-
ferðisafbrota um helgina en Guðrún
segir oft langan tíma líða áður en
fórnarlömb tilkynni um brot.
„Við vitum ekki betur en að þjón-
usta fyrir þolendur kynferðisafbrota
hafi verið í góðu lagi alls staðar,"
segir Guðrún Jónsdóttir. Hún segir
misskilning í fréttaflutningi hafa
valdið því að bréf Stígamóta til móts-
haldara þar sem óskað var eftir öfl-
ugri kynningu á þessari þjónustu
hafi verið snúið upp í gagnrýni.
„Við vildum bara bæta um betur og
tryggja að fólk vissi af þessari þjón-
ustu. Til að árétta þetta sendum
við bréf til mótshaldara þar sem
.Þjónusta fyrir
þolendur
kynferðisbrota
í góðu lagi.."
Guðrún Jónsdóttir
hjá Stigamótum
við buðum jafnframt fram aðstoð
okkar. Það var þó ekki meginatriðið
heldur að þjónustan væri í lagi.“
Þrjár stúíkur leituðu til Afls, syst-
ursamtaka Stígamóta á Akureyri,
vegna nauðgana og þá var tilkynnt
um eina nauðgunartilraun á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum.
Að sögn Guðrúnar getur oft langur
tími liðið frá kynferðisbroti þangað
til fórnarlambið leitar aðstoðar.
Því sé erfitt að áætla nákvæmlega
hversu mörg brot hafi verið framin
um síðustu helgi. „Sá hópur sem við
virðumst fanga eru þær stúlkur sem
leita sér hjálpar löngu eftir að atburð-
urinn á sér stað.
segir Sigurður Helgason, verkefna-
stjóri hjá Umferðarstofu. „Það er
gert til þess að menn geti fylgst með
því hvað sé að gerast fyrir aftan bíl-
inn.“ Hann segir því miður algengt
að eigendur hjólhýsa og tjaldvagna
fylgi ekki öllum öryggisreglum á
vegum úti. „Það vantar mikið upp
á að menn noti þessa framlengdu
spegla. Svo er einnig algengt að
menn séu á alltof léttum bílum
að draga þunga eftirvagna. Það
„Það vantar
mikió upp á
að menn noti
framlengda
spegla.”
Sigurður Helgason
Villtist af leið:
Flugvél lenti í
vitlausri borg
mbl.is Flugvél frá spænska flug-
félaginu Spanair, sem er í eigu
norræna félagsins SAS, flaug ný-
lega í allt aðra átt en farþegarnir
höfðu reiknað með. Mistökin
uppgötvuðust fyrst þegar farþeg-
arnir, sem voru á leið til Santi-
ago í norðausturhluta Spánar,
stigu út úr vélinni í Sevilla, sem
er í suðausturhluta Spánar.
Spanair hafði leigt flugvélina
og áhöfn frá sænska flugfélag-
inu Nordic Airways. Sænsku
flugmennirnir rugluðu saman
kóðunum fyrir flughafnirnar í
Sevilla og Santiago og slógu inn
SVQ í staðinn fyrir SCQ og því
fór sem fór.
Hjólhýsi og tjaldvagnar:
Oryggisreglur
virtar að vettugi
■ Valda vandræðum á vegum ■ Léttir bíiar draga of þunga vagna
líSSSSRí* I t
J-U'.-íV
★ WWWJlBVARAHklJTm IS ★
EIGUM ÁVALLT Á LAGER VARAHLUTI í FLESTAR GERÐIR BÍLA
VIÐ ERUM YKKAR BONUS!
/ip tfflotiut irrrtf ÖODDÝHLUIIR ■ GRINDUR - UOS - SPEGUR - SUTHLUtlR - VA1NSKASSAR OG f LtlHA
Bildshöfda 18 - Sími: 567 6020 - ab@abvarahlutir.is - www.abvarahlutir.is OPIÐ FRA: 8.00 - 18.00
BODDYHIUTIR ■ GRINDUR - UOb • SPEGLAR - SLITHLUIIR ■ VA1MSKASSAR OG ELEIIIA