blaðið - 09.08.2006, Side 17
blaöiö MIDVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
25
brúðkaup
brudkaup@bladid.net
Ást er meira en tilfinning, ást er hugarástand."
Lisa Grude
Ástarjátningar í
geimnum
Japönsk hjón geta sent heiti
sín út í geim og látið geyma
þau þar frá og með næsta ári.
Hins vegar er þetta einungis
mögulegt ef hjónakornin kaupa
giftingarhringa úr hvítagulli.
Hjón sem kaupa giftingar-
hringa úr hvítagulli í Japan frá
ágúst til desember á þessu ári
geta skrifað heit sín á heima-
síðu. Skilaboðin verða vistuð á
diski ásamt mynd af ástfangna
parinu. Diskarnir verða svo
sendir út í geim í Soyus geim-
skutlu í mars 2007. Verkefnið er
hluti af herferð sem á að auka
veg hringja úr hvítagulli. „Fólk
tengir hvítagull ekki við gift-
ingahringi, ekki eins og áður
var gert,“ segir starfsmaður sem
vinnur við gerð hvítagulls. Fyrir
nokkrum árum voru hringir
úr hvítagulli mjög vinsælir þar
sem hvítagull er verðmætara
en gull. Vinsældir hvítagulls
hafa þó dalað undanfarið og var
þvi gripið til þessarar sérstöku
herferðar.
Hvernig kynnt-
umst við?
í stórri brúðkaupsveislu er
ekki víst að allir viti hvernig
brúðhjónin kynntust. Gamlar
frænkur og aðrir ættingjar hafa
aldrei heyrt söguna eða hafa
jafnvel gleymt henni fyrir langa
löngu. Allir hinir hafa án efa
gaman af því að rifja söguna
upp enda er sagan upphafið
á þessu öllu saman. Það er
sniðugt að skrifa söguna af því
hvernig hjónakornin kynntust
á nokkur spjöld. Hvert spjald,
sem segir sinn hluta af sögunni,
fer á ákveðið borð. Á sama tíma
og gestirnir rölta á milli borða
til að lesa söguna í heild sinni
fá þeir tækifæri til að ræða við
aðra gesti. Þetta eykur fjörið í
veislunni auk þess sem allir fá
tækifæri til að kynnast.
Fallegt vorbrúðkaup
Hrönn Margrét Magnúsdóttir
og Jónas Guðmundsson gengu í
hjónaband 7. maí 2005 á fallegum
sumardegi. Síðustu vikurnar fyrir
brúðkaupið voru ekki stressandi
að sögn Hrannar enda voru hjóna-
kornin bæði upptekin í próflestri.
Hrönn segir að þrátt fyrir það hafi
allt smollið saman og dagurinn var
nær fullkominn. „Dagurinn var
æðislegur og veðrið ekki síðra. Ein-
hvern veginn gekk allt upp og við
skemmtum okkur ótrúlega vel sem
mér finnst skipta miklu máli. Upp-
haflega ætluðum við að gifta okkur
í ágúst en svo varð ég ófrísk örlítið
á undan áætlun og við ákváðum að
flýta brúðkaupinu.“
Veislustjórinn skiptir miklu máli
Jónas og Hrönn hafa verið saman
í fjögur ár en Jónas bað Hrannar
tæpu ári fyrir brúðkaupið. „Jónas
fór á hnén 8. ágúst 2004 og bað mín.
Við höfðum nýverið keypt okkur
íbúð og hann bað mín fyrstu nótt-
ina í nýju íbúðinni. Þetta var frekar
óvænt,“ segir Hrönn sem var samt
sem áður ekki í neinum vafa hverju
hún ætti að svara. „Það komu um
150 manns í veisluna sem var hald-
in í flottum sal í Hafnarfirði. Mér
fannst fjöldinn ótrúlega passlegur
enda gat ég boðið öllum sem mig
langaði að bjóða. Við vorum svo
heppin að vera með frábæran veislu-
stjóra, Hjört Hjartarson, en veislu-
stjórinn skiptir ótrúlega miklu máli.
Það voru víst einhver smáatriði sem
klikkuðu í veislunni en ég hafði
ekki hugmynd um það því Hjörtur
reddaði öllu. Það var líka mjög létt
yfir veislunni og ekki of mikið af
ræðum. Hljómsveitin Pass lék fyrir
dansi og þeir voru í einu orði sagt
frábærir. Þeir rifu upp stemninguna
og fyrr en varði voru allir komnir út
á dansgólfið."
Kjóllinn hefði ekki pass-
að viku seinna
Hrönn skreytti veislusalinn sjálf
ásamt ættingjum sínum enda vildi
hún hafa puttana í skreytingun-
um. „Við fengum salinn afhentan
tveimur dögum áður en brúðkaup-
ið fór fram þannig að ég gat dúllað
mér aðeins í skreytingunum. Ég
var með appelsínugular og bleikar
skreytingar. Upphaflega ætlaði ég
að hafa bleikar og svartar skreyting-
ar en gardínurnar í salnum voru ap-
pelsínugular. Ég ákvað því að hafa
skreytingarnar bleikar og appelsínu-
gular og það kom mjög vel út, ótrú-
lega sumarlegt." Eins og svo margar
brúðir í dag ákvað Hrönn að skella
sér til Boston að skoða brúðarkjóla.
„Mér fannst frekar dýrt að leigja kjól
hér heima og við mæðgurnar skrupp-
um því til Boston. Þar var dýrara að
kaupa kjól en ég á hann aftur á móti
alla ævi. Mér fannst það alveg þess
virði. Ég keypti mér kjól frá Veru
Wangogþað var
ekkert miklu dýrara heldur en að
leigja kjól. Upphaflega var kjóllinn
eflaust mjög dýr en ég keypti sýning-
arkjól í svona „discount" búð. Það
sást ekki á kjólnum og hann var
æðislegur. Það var reyndar pínulítið
stress hvort ég myndi passa áfram
í hann því ég var með barni. En
sem betur fer smellpassaði hann. Ef
ég hefði aftur á móti gift mig viku
seinna hefði hann sennilega ekki
passað,“segir Hrönn og hlær. „Ég
var alltaf að máta hann til að athuga
hvort hann passaði ekki alveg örugg-
lega ennþá.“
Sætamerkingar á blöðrum
Hrönn hvetur verðandi brúðhjón
að missa sig ekki í einhverjum smá-
atriðum og njóta dagsins. „Ég held
að það skipti langmestu máli að vera
ekki að stressa sig yfir einhverjum
smáatriðum. Samt sem áður er mik-
ilvægt að leyfa sér að gera það sem
maður vill gera. Ég var til dæmis al-
Töfrandi kvöld
Hjörtur Hjartarson veislustjóri var með töfrabrögð í veislunni þar sem hann
klippti bindið at einum veislugestinum. Töfrarnir hrukku hins vegar skammt
þegar setja átti bindið saman aftur.___________________________________
veg ákveðin í því að hafa gasblöðrur
í brúðkaupinu. Ég ætlaði að merkja
sætin með gasblöðru og hafa eina
við hvern stól. Þetta fannst öllum
fyndið en ég var ákveðin í að gera
þetta. Enda kom á daginn að þetta
var flottasta skreytingin og kom
rosalega vel út. Blöðrurnar voru
talsvert fyrir ofan stólana og þegar
maður gekk inn í salinn var eins og
maður gengi inn í tjald. Þegar allir
voru sestir þá var blöðrunum sleppt
og þær fylltu loftið sem var rosalega
flott.“ Eins segir Hrönn að allir ættu
að reyna að fara í brúðkaupsferð.
„Við fórum í brúðkaupsferð nokkr-
um dögum eftir brúðkaupið og það
var rosalega gaman. Það var æðis-
legt að geta verið tvö ein. Við fórum
í vikuferð í golf til Flórída. Við vor-
um líka í viku á skemmtiferðaskipi
í Karíbahafinu og það var frábært.
Við stoppuðum meðal annars á Cay-
man-eyjunum, Haítí og Jamaíka."
svanhvit@bladid.net
Nýstárleg sætamerking
Flottasta skreytingin voru gas
blöörurnar sem voru notaðar
sem sætamerkirwiar.
BORÐ FYRIR T\rO
Ný og stærri verslun - Skemmuvegi 6 (blá gata)- Sími 568-2221