blaðið - 09.08.2006, Qupperneq 29
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
37
Maður er ekki orðinn
gamall fyrr en maður
er farinn að sakna í
stað þess að þrá.
John Barrymore
Afmælisborn dagsms
PHILIP LARKIN SKÁLD, 1922
WHITNEY HOUSTON SÖNGKONA, 1963
JOHN DRYDEN SKÁLD, 1631
Haffi sefur Mynd eftir Hildi
Margrétardóttur
Ljósmyndasýn-
Gleðimaðurinn, Ijóð-
skáldið og klerkurinn
ing í Skotinu
Hildur Margrétardóttir, myndlist-
armaður, hefur opnað sýningu á
Ijósmyndum í Skotinu, Ljósmynda-
safni Reykjavíkur, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15, 6. hæð. Mynda-
röðinni er varpað úr skjávarpa á
vegg og myndar hún lifandi flæði
og frásögn.
Hildur Margrétardóttir útskrifaðist
frá Listaháskóla íslands árið 1999
og tók meistaragráðu í myndlist
árið 2005 frá The Slade School
of Fine Art, Englandi. Hún hefur
haldið um tug einkasýninga og
tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum á síðustu tíu árum. Auk
Ijósmyndaverka hefur hún gert
bókverk, innsetningar, kvikmyndir
og gjörninga.
Hekiuvikur á vegg Eftir Rögnu
Róbertsdóttur
Samsýning
í Safni
[ Safni, Laugavegi 37, stendur yfir
sýningin Crystal Grey, samsýning
listamannanna Rögnu Róberts-
dóttur, Alans Johnston frá
Skotlandi og Seans Shanahan frá
íriandi. Sýning þessi var sett upp
fyrr á þessu ári í samttmalistamið-
stöðinni Peacock Visual Arts í
Aberdeen, Skotlandi.
Sýningin stendurtii 10. sept-
ember 2006.
Popparar í
ævisögum
Marianne Falthful er að vinna að
ævisögu sinni. Hún hefur áður
sent frá sér bók þar sem hún fjall-
aði meðal annars um samband
sitt við Mick Jagger en í nýju
bókinni mun hún fjalla um líf sitt
síðustu árin og rifja upp kynni af
frægum vinum.
Fyrrverandi eiginkona George
Harrsons, Pattie Boyd, vinnur
einnig að endurminningum
sínum. Þar mun Harrison ekki
einungis koma við sögu heldur
einnig annar fyrrverandi eigin-
maður, Eric Clapton en níu ára
hjónaband þeirra Pattie var gríð-
arlega stormasamt. Clapton er í
samkeppni við fyrrum eiginkonu
sína því hann er einnig að skrá
ævisögu sína. Báðar bækurnar,
og bók Marianne Faithful, koma
út á næsta ári.
t er komin ævisaga
ljóðskáldsins ogklerks-
ins John Donne (1572
- 1631). Donne var ann-
álaður mælskumaður
en 160 predikanir hans hafa varð-
veist og verið gefnar út. Donne
nýtur mikillar virðingar og
vinsælda fyrir íhugul og
myndræn ljóð sín. Hann
orti sonnettur, ástar-
ljóð og trúarleg ljóð.
Donne var myndar-
legur, sagður kven-
samur og vanmat
ekki lystisemdir
lífsins. Hann
líkti til dæmis
eftirlætiskrá
sinni við must-
eri.
Nýja ævi-
sagan nefnist
John Donne:
The Reformed
Soul. Höfundur-
inn John Stubbs
er einungis 29
ára en þykir hafa
leyst verk sitt frá-
bærlega vel. Bók
hans er sögð glæsileg,
greindarleg og afar að-
gengileg. Gagnrýnandi
Sunday Times segir hana
loga af hugmyndum og eld-
móði - sem er alveg í takt við
bestu predikanir John Donne.
Eldar helvítis
Donne fæddist kaþólikki og í
móðurætt var hann afkomandi Sir
Thomas More, kanslara Hinriks 8
sem varð píslarvottur þegar hann
var hálshöggvinn vegna andstöðu
sinnar við hjónaband konungs og
Önnu Boleyn. Móðir Donne var
meðlimur í kaþólskri andspyrnu-
hreyfingu sem veitti ofsóttum prest-
um húsaskjól. Bróðir Donne var
handtekinn fyrir að veita pestum
skjól og lést í fangelsi. Donne þá
ákvörðun að fylgja rílcistrúnni, mót-
mælendatrúnni, en á þann eina hátt
gat hann tryggt starfsöryggi sitt.
Árið 1596, 24 ára gamall, var
Donne í hópi hermanna sem fylgdu
Essex lávarði í herleiðangur til Spán-
ar. Þar varð Donne vitni að því þeg-
ar áhöfn spánsks skips reyndi að
flýja logandi skipið en drukknaði í
sjón-
um mnan
um
eldlogana. Donne hafði þessa sýn
seinna í huga þegar hann talaði og
skrifaði um elda helvítis.
Allt fyrir ástina
Þegar hann sneri heim gerðist
hann einkaritari Thomas Egerton
sem var áhrifamaður innan hirðar-
innar. Donne setti síðan starfsferil
sinn í stórhættu þegar hann varð
ástfanginn af frænku Egertons,
Anne More, og giftist henni á laun
árið 1601. Þegar faðir Önnu komst
að giftingunni lét hann fangelsa
tengdason sinn tímabundið. Eger-
ton rak síðan Donne úr starfi.
Hjónin eignuðust tólf börn en
einungis sjö komust til fullorðins-
ára. Ekkert er skjalfest um eigin-
konu Donne og engin mynd er til af
henni. Ævisagnahöfundurinn John
Stubbs fer þá leið að rýna í ástarljóð
Donne og dregur þannig upp mynd
af konunni sem Donne var reiðu-
búinn að fórna starfsframa sínum
fyrir. Stubbs kemst að þeirri niður-
stöðu að hjónabandið hafi verið
ástríkt og samheldið þrátt fyrir
mikla fjárhagserfiðleika sem
stöfuðu af því Donne gekk
illa að fá vinnu. Hagurinn
batnaði þó og Donne sat
tvisvar á þingi og tók
loks við prestsembætti
árið 1615. Þá kom í ljós
að hann var fæddur
mælskumaður. Eig-
inkona hans lést árið
1617 og eftir það varð
dauðinn æ meira
áberandi í Ijóðum
hans. Árið 1621 var
I hann gerður að pró-
fasti við St. Paul kirkj-
una. Það var einungis
heilsubrestur sem kom
í veg fyrir að hann yrði
kjörinn biskup ári fyrir
andlát sitt, 1631.
Enginn er eyland
Enginn maöur er eyland,
einhlítur sjálfum sér. Sérhver
maður er brot af meginlandinu,
hluti veraldar. Ef sjávarbylgjur
skola moldarhnefa til hafs,
minnkar Evrópa, ekki síöur en
eitt annes værí, engu síöur en
óðal vina þinna eða sjálfs þíns
værí. Dauði sérhvers manns
smækkar mig afþvíég er
íslunginn mannkyninu. Spyr
þú því aldrei, hverjum klukkan
glymur. Hún glymur þér.
John Donne. Þýðing Stefán Bjarman
Hemingway í smiðju Donne
Þegar Ernest Hemingway var
langt kominn með skáldsögu
sem gerist í spænsku borgara-
styrjöldinni fór hann að huga að
titli. Hann hafði sett á blað hug-
myndir að 26 titlum og var ánægð-
astur með titilinn The Undisco-
vered Country sem honum fannst
þó ekki fanga þá tilfinningu sem
hann vildi komatil skila. ftvo
daga blaðaði hann í Biblíunni og
verkum Shaklesoaertes í leit að
nýjum titli en tók svo upp The
Oxford Book of English Prose.
Þar rak hann augun í textabrot
eftir John Donne um tengsl og
samábyrgð mannkyns. Kaflanum
lauk á orðunum: „Dauði sérhvers
manns smækkar mig af því ég er
íslunginn mannkyninu. Spyr þú
því aldrei hverjum klukkan glymur.
Hún glymur þér“.
Hemingway gaf skáldsögu sinni
titilinn Hverjum klukkan glymur.
Hún er eitt þekktasta verk hans.
Ernest Hemingway Fékk hug-
mynd að titli einnar frægustu bókar
sinnar frá Donne
menningarmolinn
Owens vinnur
fjórða gulliö
Á þessum degi árið 1936 vann
blökkumaðurinn Jesse Owens fjórðu
gullverðlaun sín á Ólympíuleikunum
í Berlín í 4x100 metra boðhlaupi. Lið
hans setti nýtt heimsmet í hlaupinu
sem var ekki slegið fyrr en tuttugu
árum síðar. Árangur Ówens var áfall
fyrir nasistaforingjann Adolf Hitler
sem hafði ætlað að nota Ólympíu-
leikanna sem sérstaka sýningu á yf-
irburðum Aríans. Owens varð hetja
Ólympíuleikanna og þýskir áhorf-
endur fögnuðu afrekum hans. Hann
dró sig í hlé frá íþróttum einungis 23
ára gamall en var þá þegar á góðri
leið með að verða goðsögn. Hann
sinnti störfum fyrir íþróttahreyfing-
ar barna og stofnaði eigið almanna-
tengslafyrirtæki. Ævisaga hans kom
út árið 1970. Hann lést árið 1980.