blaðið - 15.08.2006, Qupperneq 10
10 I FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÖST 2006 blaðift
Flugmálastjóri:
Ætlar að svara
Flugmálastjóri mun svara
bréfi flugumferðarstjóra á
næstu dögum að sögn Hjördísar
Guðmundsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa Flugmálastjórnar.
„Bréfinu verður svarað á næstum
dögum en ekki í gegnum fjöl-
miðla. Við viljum svara svona
bréfum innanhúss
Flugumferðarstjórar sendu
flugmálastjóra bréf í síðustu
viku þar sem óskað var eftir
afstöðu hans til þeirra vinnu-
bragða Flugmálastjórnar að
skylda veikan mann til að mæta
í vinnu.
Utanríkisráðherra:
Fundað með
Norðmönnum
Valgerður Sverrisdóttir, utan-
ríkisráðherra, fundaði í gær með
norska starfsbróður sínum, Jonas
Gahr Store, en hann er nú í op-
inberri heimsókn hér á landi. Á
fundinum var rætt um samstarf
þjóðanna og sameiginleg hags-
munamál sem og þróun mála
á norðurslóðum, sjóræningja-
veiðar og stöðuna í síldarmálum
svo fátt eitt sé nefnt. Þá var farið
yfir stöðuna i varnarviðræðum
Islands og Bandaríkjanna og
framboð lslands til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Rafrænt greiðslukerfi Strætó er enn í vinnslu:
Tvö hundruð milljóna
króna tilraunum að Ijúka
■ Hefur tekið hálft ár í undirbúningi ■ Miklir erfiðleikar segja vagnstjórar
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Stórum hluta viðskiptavina Strætó
bs. verður boðið að nýta sér rafrænt
greiðslukerfi sem unnið hefur verið
að um nokkra hríð. Heimildarmenn
Blaðsins á meðal vagnstjóra segja
að kerfið sé meingallað en aðstoð-
arframkvæmdastjóri fyrirtækisins
segir að byrjunarörðugleikar séu að
baki.
„Þetta er stórt verkefni sem er í
ákveðnum farvegi," segir Hörður
Gunnarsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá Strætó bs.
„Nú er að ljúka ákveðnu til-
raunatímabili sem hefur ein-
angrað ákveðna erfiðleika
og nú má segja að kerfið
sé orðið starfhæft í lang-
flestum bílum.“ Hörður
segir að framundan sé að
setja kerfið í gang fyrir
almenning að hluta til.
„Það verða gefin út kort til
almennra viðskiptavina á
næstunni." Tilraunatíma-
bilið hefur staðið yfir fyrri
hluta ársins og kerfið er komið í alla
bíla á vegum Strætó. „Þetta verður
ákaflega gott og skemmtilegt kerfi
sem býður upp á mikla möguleika."
Vagnstjórar hjá Strætó bs. sem
Blaðið ræddi við segja að illa hafi
gengið að koma kerfinu í gagnið.
Þeir segja að langur vegur sé frá því
að það virki sem skyldi og gagnrýna
þeir einnig kostnaðinn sem þeir
segjast hafa heyrt að sé í kringum
200 millj-
ónir króna. Hörður segist ekki vilja
taka svo djúpt í árinni að segja að
illa hafi gengið að koma kerfinu
í gagnið. „Vissulega er þetta stórt
verkefni sem hefur tekið tíma, en
þetta er í ákveðnum farvegi. Það
verður spennandi að s j á
hvernig gengur í haust
þegar nokkuð stór hluti okkar við-
skiptavina getur farið að nota kerfið.“
Hann segir rétt að um nokkra byrj-
unarörðugleika hafi verið að ræða.
,Þeir voru þónokkrir en kerfið hefur
að miklu leyti komist yfir þá í dag.
Ég held að gangurinn í þessu sé
ekkert öðruvísi en í svipuðum verk-
efnum annars staðar.“ Að
sögn Harðar er kerfinu
fyrst og fremst ætlað að
innheimta fargjöld og
halda utan um notk-
unina á vögnunum.
„Þetta býðurlíka upp
á mikla valkosti í til-
boðum til viðskipta-
vina okkar.“
Aðspurður um kostnað-
innviðverkefniðsegistHörður
ekki vilja nefna eina tölu í þeim
efnum. „Auðvitað kostar þetta heil-
mikla peninga.“ Hann bendir á að um
sé að ræða víðtækt hugbúnaðarkerfi
sem smíðað sé af innlendum aðilum.
„Það er að því stefnt að þetta geti orðið
víðtækt þjónustukerfi hjá borginni.
Auðvitað er upphafskostnaður nokkur
en það er stefnt að því að hann skili sér
í framtíðinni.“
HJÁ ORMSSON
- í FIMM VERSLUNUM OG UMBOÐSMÖNNUM
BJÓÐUM STÓRKOSTLEGT ÚRVAL HEIMILISTÆKJA, VEGGSJÓNVARPA,
HLJÓMTÆKJA O.M.FL. MEÐ 15-40% AFSLÆTTI MEÐAN BIRGÐIR ENDAST!
SAMSUNG
LE32M51BX
32" háskerpu
LCD sjónvarp
SAMSUNG
DVD-1 25
DVD upptökutæki
og spilari
Verð áður: 264.900 kr.
TILBOÐSVERÐ: 219.900 kr.
Þú sparar: 45.000 kr
UPPÞVOTTAVÉL
MEÐ ÍSLENSKU STJÓRNBORÐ!
STÁL: 89.000 kr.
HVÍT: 79.000 kr.
1700W Turbo ryksuga
Verð áður: 10.990 kr.
TILBOÐSVERÐ: 7.990 kr.
Þú sparar: 3.000.- kr
Pottar
og pönnur
25-40%
afsláttur
Strjáujárn
20%
afsláttur
SHARR
26” LCD Sjónvarp
Verð áður: 1 49.900 kr.
TILBOÐSVERÐ: 1 29.900 kr.
Þú sparar: 20.000 kr.
Éibrabantia
sotld company
Strauborð,
ruslafötur
og margt fleira.
Hönnun
á heims-
mælikvarða.
'2Ö%'
vafslátturJ
Frábært úrval af DVD
hljómleikadískum -
20% afsláttur
tölvuleikir frá 590 kr. stk.
ÞU GERIR EKKI §
BETRI NÉ VANDAÐRI
KAUP
AEG þvottavél
1600 snúninga, 6 kg.,
Islenskt stjórnborð.
AEG þurrkari
mjög hljóðlátur,
fjöldi prógramma,
(slenskt stjórnborð. ' .ýffiðw Lavamat76S2o
Lavatherm 57820
TILBOÐ: KR. 175.000 PARIÐ (Fullt verð: KR. 213.900)
íimi\S(¥lVASTA
PAll LVNpSlNS
KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUP!
ORMSSON
i
1. LÁGMÚLA 8 • Simi 530 2800 2. SÍÐUMÚLA 9 ■ Sími 530 2800 3. SMARALIND • Simi 530 2900 4. AKUREYRI • Simi 461 5000 5. KEFLAVÍK • Sími 421 1535
Vopnahlé í Líbanon:
Báðar fylkingar
lýsa yfir sigri
Líbanskir borgarar sem hafa
þurft að yfirgefa heimili sín vegna
átakanna á milli Israelshers og
skæruliða Hizbollah í landinu
undanfarinn mánuð tóku að snúa
til síns heima í gær í kjölfar þess
að vopnahlé tók gildi. Þrátt fyrir
vopnahléið gerðu Israelar árásir
á nokkra skæruliða Hizbollah í
suðurhluta landsins stuttu eftir að
það tók gildi. ísraelsk stjórnvöld
hafa áskilið sér rétt til þess að
gera árásir á Hizbollah
telji þau sér ógnað. I
fyrsta skipti í mánuð
gerðu skæruliðar Hiz-
bollah ekki eldflauga-
árásir á ísrael, en þrátt
fyrir það hafa stjórnvöld
óskað eftir þvi að íbúar í norður-
hluta landsins bíði með að halda til
síns heima.
Fulltrúar ísraelskra og líb-
anskra stjórnvalda funduðu með
fulltrúum Sameinuðu þjóðanna á
landamærum ríkjanna í gær um
framkvæmd vopnahlésins. Var
fundurinn fyrsta skrefið í átt að
því að líbanskir hermenn taki við
öryggisgæslu í samstarfi við fjöl-
þjóðlegt herlið, sem hefur umboð
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna,
í suðurhluta landsins. Önnur lykil-
atriði vopnahlésins er að Hizbollah
láti af árásum á Israel og að ísraelar
dragi herlið sitt frá Líbanon þegar
fjölþjóðlegt herlið kemur á svæðið.
Bæði fulltrúar Hizbollah og
ísraelskra stjórnvalda lýstu yfir
sigri í átökunum í kjölfar þess að
vopnahléið tók gildi. I flugriti frá
Hizbollah sem dreift var í gær var
Líbönum óskað til hamingju með
hinn „mikla sigur” á ísraelum.
Mark Regev, utanríkisráðherra
ísraels, sagði í gær að hernaðarað-
gerðirnar hefðu meðal annnars
gert það að verkum að
Hizbollah væri ekki
lengur „ríki í ríkinu”
í suðurhluta Líban-
ons og að geta skæru-
liða þeirra til að gera
eldflaugaárásir á ísraela
væri úr sögunni.
Stjórnmálaskýrendur telja
vopnahléið standa veikum fótum
og að auðveldlega geti slegið í
brýnu á ný milli Hizbollah og
ísraela. Skiptar skoðanir eru um
hvenær raunhæft sé að senda fjöl-
þjóðaher til suðurhluta Líbanons.
Breska ríkisútvarpið hefur eftir
háttsettum embættismanni Sam-
einuðu þjóðanna að það geti tekið
hátt í mánuð en Javier Solana, utan-
ríkismálastjóri Evrópusambands-
ins, er bjartsýnni og segir fyrstu
sveitirnar geta verið komnar til
landsins í næstu viku.