blaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 19
Tónlistarskólinn Tón-
salir hefur skapaö sér
yissa sérstöðu í tónlista
kennslu þar sem kennt
eftir forskrift ryþmiskrai
tónlistar.
Minisota reyrsófi vorð áður kr. 75.500 nú kr. 56.900 sófaborð verð óður ki. 18.900 nú kr. 11.340
Minisota reyrstóll verð iður kr. 38.500 nú kr. 28.900 hornborð verð áður kr. 13.900 nú kr. 8.340
Kennsla fyrir eldri borgara
Ár er síðan skólinn var stofnaður
og segir Ólafur að viðtökurnar hafi
farið fram úr björtustu vonum. Það
varð strax fullt á fyrstu önn og allt
er að fyllast núna. Nemendur eru
fyrst og fremst krakkar úr hverfinu
en einnig hefur verið boðið upp á
sérstök námskeið sem höfða til sér-
stakra hópa. „Þar fyrir utan höfum
við verið að bjóða upp á píanó- og gít-
arkennslu fyrir eldri borgara. Það er
alltaf svolítið vandamál fyrir tónlist-
arskóla að þeir geta ekki hafið starf-
semi sína fyrr en eftir tvö á daginn
þegar grunnskólarnir eru búnir. Það
fannst mér alveg ótækt og því vildi
ég athuga hvort eldri borgarar væru
ekki til í að koma hingað," segir Ólaf-
ur og bætir við að það segi sína sögu
að þeir sem hafi mætt hafi flestir
skráð sig á framhaldsnámskeið.
Margir telja að þeir séu með öllu
hæfileikalausir á tónlistarsviðinu
og geti ekki með neinu móti lært
að leika á hljóðfæri. Ólafur telur að
langflestir geti lært eitthvað á hljóð-
færi. „Ég held að það geti það allir
sem vilja. Það er spurning hvort það
sé til nokkuð sem heitir laglaus mað-
ur. Ætli það sé ekki frekar spurning
um æfingu,“ segir Ólafur Kristjáns-
son að lokum.
LÍIMAIM
H Ú S G Ö G N
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 7100* www.linan.is
Óhefðbundið tónlistarnám
Ólafur Kristjánsson for-
Tónlistarskólinn Tónsalir í Kópa-
vogi hefur farið svolítið aðrar leiðir
í tónlistarkennslu en hefðbundnir
tónlistarskólar hér á landi. Þar er
megináherslan lögð á ryþmíska tón-
list svo sem rokk, djass og blús en
ekki klassíska eins og víðast hvar
annars staðar. „Þetta er ekki háaka-
demískt nám heldur er tilgangurinn
með þessu fyrst og síðast sá að fólk
hafi gaman af þessu. Það er til dæm-
is meiri áhersla lögð á að spila eftir
eyranu en í öðru námi,“ segir Ólafur
Kristjánsson, forstöðumaður skól-
ans. Ólafur segir að fyrirmyndir að
skólanum megi meðal annars finna
á Norðurlöndunum þar sem þessi
stefna hefur rutt sér til rúms á und-
anförnum árum.
Hætt við að krakkar
flosni upp frá námi
„Annars var ég aðallega með sjálf-
an mig í huga þegar ég stofnaði skól-
ann. Þegar ég var sjálfur að læra á
hljóðfæri heillaði klassísk tónlist
mig ekki, fyrirmyndirnar voru aðr-
ar og maður vildi bara herma eftir
þeim,“ segir Ólafur og bætir við að í
staðinn hafi hann verið settur i klass-
ískt gítarnám sem sé allt annað.
„Það er hætt við að krakkar flosni
upp frá tónlistarnámi og tölur sýna
að það eru ekki margir sem halda
áfram úr byrjendanámi yfir í mið-
nám. Mér finnst eðlilegt að krökk-
'um sé kennd sú músík sem höfðar
til þeirra,“ segir Ólafur og bætir við
að með þessu sé hann ekki að kasta
rýrð á aðra tónlistarskóla. „Það hafa
ekki allir áhuga á að fara í klass-
ískt tónlistarnám. Þetta er fyrst og
fremst annar valkostur.“
Margir telja að þeir séu með öllu hæfileikalausir á tónlistarsviðinu og geti ekki
með neinu móti lært að leika á hljóðfæri. Ólafur telur að langflestir geti lært eitt-
hvað á hljóðfæri. „Ég held að það geti það allir sem vilja. Það er spurning hvort
það sé til nokkuð sem heitir laglaus maður. Ætli það sé ekki frekar spurning um
æfingu," segir Ólafur Kristjánsson að lokum.“
á voldum vönum
Aucland sófasett 3+2, Litir: Hvítt - Brúnt
verð áður kr. 146.900 nú kf. 99.900
Aucland bogasófi. Litir: Hvítt - Brúnt verð áður kr. 192.100 nú kr. 129.900
Reverence dýna Full XL (135x203) verð áður kr. 69.eoo nú kr. 59.900
Innifalið í verði dýnur með undirstöðum.