blaðið - 15.08.2006, Side 22
30
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 blaðið
Grétar Örn Ómarsson
Haukur Ingi Guðnason heldur sigurgöngu
sinni áfram og hefur nú unnið þrjár keppnir
í röð. Fylkismaðurinn knái svaraði 11 af 12
spurningum rétt gegn þremur réttum svörum
Grétars Arnar Ómarssonar, leikmanns Fjaröa-
byggðar. Grétar bar þvi við að vera nývaknað-
ur og sagði það ástæðuna fyrir því að hann
heföi aldrei séð til sólar í viðureigninni. Hann
skoraöi á þjálfara sinn, kempuna Þorvald Ör-
lygsson, að mæta til leiks og er Ijóst að hann
þarf að taka á honum stóra sínum til að eiga
möguleika gegn spurningaljóninu Hauki.
Haukur Ingi Guönason, Fylki
8. íslenska landsiiðið í handknattleik dróst
í ríðil með Evrópumeisturum Frakka á HM.
Nefndu annað af liðunum tveimur sem eru
með islendingum og Frökkum í riðli?
Haukur Ingi: Úkraína og Ástralía.
Grétar öm: Ég skýt bara á Slóveníu.
9. Hvor er eldri; Jose Mourinho eða Roman
Abramovich?
Haukur Ingl: Mourinho.
Grétar ðrri; Mourinho.
Skeytin inn
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Í'T?
ms
Green til West Ham
West Ham hefur gengið frá kaupum á markverðinum Robert Green frá Norwich.
Kaupverðið nemur um tveimur milljónum punda en leikmaðurinn á þó eftir að
gangast undir læknisskoðun hjá Lundúnaliðinu. Fyrir hjá Hömrunum eru mark-
verðirnir Roy Carroll og James Walker. Green er 26 ára.
Arjen Robben:
Sigur Liverpool
þýðingarlítill
rétt svör 'BpuaiBA Zl ‘SnB|)|0!N W -H ‘OAafBJBS '01 '(MPI8
UJfUB jnuiajd) oguunow '6 ‘ejiEJisy 6o EuiBJ)|n '8 'sdiuEgosaa jaipia 'i '|B6npod
•g 'saA|OM -g 'uossgjnöis ujo qo>|Br 'V '08|og 'E ‘epuoh 'z 'peoh aöBJBOiA' l
íslendingar mæta Spánverjum í kvöld
■ Landsliðið frumsýnir nýjan búning ■ Miðar að seljast upp
íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu tekur á móti Spánverjum á
Laugardalsvelli klukkan zo í kvöld.
Leikurinn er liður í undirbúningi
fyrir undankeppni EM en ísland og
Spánn eru einmitt saman í riðli þar.
Spánverjar eru mættir með sitt sterk-
asta lið og er það nær óbreytt frá
heimsmeistaramótinu í sumar, hvar
liðið komst í fjórðungsúrslit.
Fyrirliði íslenska landsliðsins,
Eiður Smári Guðjohnsen, verður
ekki með í leiknum. Eiður hefur
verið á miklu æfingaferðalagi með
Barcelona að undanförnu og með
tilliti til verkefna hans með Evrópu-
meisturunum á næstunni ákváðu
læknar landsliðsins og þjálfari að
gefa honum frí.
Tveir nýliðar eru í íslenska hópnum,
þeir Ármann Smári Björnsson hjá
FH og Valsarinn Matthías Guð-
mundsson. Þrír aðrir heimamenn
eru í hópnum en það eru FH-ingarnir
Daði Lárusson og Sigurvin Ólafsson
og Marel Baldvinsson úr Breiðabliki.
Island mun leika í nýjum albláum
búningum frá Errea.
Miðasala á leikinn hefur gengið
vonum framar og síðdegis í gær voru
síðustu miðar í sæti að seljast upp.
Enn er þó hægt að kaupa miða í stæði.
Geir Magnússon, framkvæmdastjóri
KSÍ, segist vonast til að miðarnir selj-
ist upp en 15 þúsund manns komast
fyrir á Laugardalsvelli.
1. Hvað nefnist heimavöllur enska úrvals-
deildarliðsins Watford?
Haukur Ingl: Vicarage Road.
Grétar Ön : Hef ekki hugnynd.
10.1 hvaða evrópsku höfuðborg voru vetr-
arólympíuleikarnir haldnir árið 1984?
Haukur Ingi: Sarajevo.
Grétar ðm: Tórínó.
5. Með hvaða liði lék Ivar Ingimarsson áð-
ur en hann gekk til liðs við Reading 2003?
Haukur Ingl: Wolves.
Grétar Öm: Crystal Palace.
6. Fyrir hvaða Evrópuþjóð keppir niger-
ískættaði spretthlauparínn Francis Obik-
welu?
Haukur Ingl: Hann keppir fyrir Portúgal.
GrétarÖm: Holland.
2. Fyrir hvaða lið aka þeir Rubens Barrich-
ello og Jenson Button í Formúlu 1?
Haukur Ingi: Honda.
Grétar Ön Williams.
3. Hvað nefndist lukkudýr HM í knatt-
spyrnu í sumar?
Haukur Ingl: Goleo.
Grétar ðn : Ég man það ekki.
4. Hvaða islenski landsliðsmaður i körfu-
knattleik gekk á dögunum i raðir spænska
liðsins Ciudad de Vigo Basket?
Haukur Ingl: Jakob Sigurðsson.
Grétar . Var það ekki bara Jón Arnór
Stefánsson?
11. Tiger Woods varð á dögunum yngstur
kylfinga til að sigra á 50 atvinnumótum.
Hver átti metið á undan honum?
Haukur Ingi: Var það Ballesteros?
Grétar Öm: Phil Mickelson.
12. Hvaða lið þjálfaði Rafael Benitez áður
en hann tók við Liverpool?
Haukur Ingl: Valencia.
Grétar Öm Valencia.
7. Hvað heitir þjálfari Juventus?
Haukur Ingl: Didier Deschamps.
Grétar Öm: Didier Deschamps.
ArjenRobben.leikmaðurChelsea,
segir að sigur Liverpool í leiknum
um Samfélagsskjöldinn segi ekkert
um hvernig enska úrvalsdeildin
muni spilast. Rafael Benitez, stjóri
Liverpool, sagði eftir leikinn að
sigurinn væri þýðingarmikill fyrir
komandi átök en Robben gerði lítið
úr þeim orðum.
„Þetta er einn leikur þar sem
sigurvegarinn fær verðlaun og þeir
unnu. Þetta hefur ekkert að segja
með leiktíðina sem er framundan,“
sagði Robben. „Tímabilið er ekki
einu sinni byrjað. Við vorum langt
frá því að sýna okkar rétta andlit í
leiknum á sunnudaginn."
Hann kvaðst vera hæstánægður
með frammistöðu Andriy
Shevchenko og sagði hana lofa
góðu um framhaldið. „Markið sem
hann skoraði gefur honum aukið
sjálfstraust. Það voru líka fleiri
nýir leikmenn að koma vel út í
dh
0 A
- 'fc' mi/NQ mnbile
*4 16 nv
Á góðri stundu Arjen Robben fagnar
marki ásamt liðsfélaga sínum Shaun
Wright-Phillips.
leiknum og það eru allir tilbúnir í
slaginn,“ sagði Robben.
Jens Lehmann, markvörður
Arsenal og þýska landsliðsins,
segir að hann ætli að hætta
knattspyrnu-
iðkun eftir Evr-
ópumótið 2008.
„Eg er 36 ára og
stefni að því
að vera með
á Evrópumót-
inu eftir tvö
ár. Að því loknu held ég að nóg sé
komið, bæði með þýska landslið-
inu og sem atvinnumaður," sagði
Lehmann við þýska tímaritið
Kicker. Hann á eitt ár eftir af
samningi sínum við Lundúnaliðið
en segist ekki vita hvað taki við
að því loknu. „Við þurfum að sjá
hvernig þetta tímabil fer og hvort
ég framlengi hjá Arsenal eður ei.
Mig langar ennþá að leika aftur í
Þýskalandi," sagði Lehmann.
Stjórn Aston Villa hefur sam-
þykkt 62,6 milljón punda yf-
irtökutilboð bandaríska millj-
arðamæringsins
Randy Lerner.
Lerner, sem er
44 ára, gekk frá
kaupum á 56,85
prósenta hlut í
félaginu í gær.
Doug Ellis, frá-
farandi stjórnarformaður, hefur
verið gagnrýndur af stuðnings-
mönnum liðsins fyrir lítil fjárútlát
til leikmannakaupa. Lerner kveðst
ætla að hafa annað uppi á teng-
ingnum í sinni valdatíð. „Ég ætla
mér að koma Aston Villa aftur í
fremstu röð og ég ætla félaginu að
berjast um titla jafnt á Englandi
sem í Evrópu,“ sagði Lerner.
Ramon Calderon, forseti
Real Madrid, greindi frá því
í gær að félagið myndi ekki
kaupaneinn - yry 1%
þeirra þriggja
leikmanna sem
hann lofaði að
fá til liðsins yrði
hann kjörinn
í embættið.
Leikmennirnir
sem um ræðir eru Kaka hjá AC
Milan, Cesc Fabregas hjá Arsenal
og Arjen Robben hjá Chelsea. Cal-
deron segir að þjálfarinn Fabio
Capello og Predrag Mijatovic,
yfirmaður íþróttamála hafi uppi
önnur áform. „Ég hefði viljað fá
þessa þrjá leikmenn en Capello
og Mijatovic verða að fá að ráða.
Fyrst við erum hættir við þá ætla
ég ekki að skipta mér af því hverjir
verða keyptir,“ sagði Calderon.
Bfif*