blaðið - 15.08.2006, Qupperneq 27
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006
35
Trúlofaður?
Heyrst hefur að stjörnurapparinn Kanye West hafi beðið kærustunnar sinnar og þau séu
trúlofuð. Kappinn sem sló í gegn með laginu The Goid Digger á að hafa beðið kærust-
unnar, Alexis, á ferðalagi sem fóru saman í fyrir skemmstu. Kanye vill ekkert tjá sig um
málið og orðrómur hefur verið uppi um að hann skammist sín fyrir skvísuna og þess
vegna fari þau svona hljóðlega með þetta.
Sjöunda vikan
hiá Magna
Eftir sjö vikur af djammi,
tónleikum og drama eru Rockst-
ar-keppendurnir orðnir dálítið
lúnir og eftir síðustu úrslit þar
sem Josh og Jill féllu bæði úr
keppni má segja að stressið sé
líka að nálgast hættumörk. í
þessari viku eru þau búin að
vera í brjáluðu djammi í húsinu
sem þau búa í, einhverjir fengu
sér húðflúr, aðrir lágu í leti og
fengu nudd og svo fóru þau í
velheppnaða Las Vegas-ferð
með Supernova. Það verður því
spennandi að fylgjast með raun-
veruleikaþættinum þessa vikuna
og tónleikaþátturinn verður ekki
síður skemmtilegur.
Heyrst hefur að Magni
muni taka lagið Don’t Follow
með Alice In Chains og vona flest-
ir að hann eigi eftir að standa sig
vel. Þó hafa þær raddir heyrst hér
á Fróni að einhverjir íslending-
ar séu farnir að vonast eftir því
að hann fari nú bara að falla úr
keppni svo að hin stóra Amer-
íka gleypi nú ekki alveg hann
„Magna okkar.“ Ýmsir hafa líka
rætt um móttökurnar sem hann
muni fá á Keflavíkurflugvelli þeg-
ar hann komi heim. Fyrst Silvía
Nótt fékk lúðraþyt og læti fyrir
að tapa í Eurovision hljóti nú sjálf-
ur forsetinn með fríðu föruneyti
taka á móti
Magna
okkar
þegar
hann
loksins
kemur
heim.
viti menn...
ÞacTeru ekki nema örfáir
dagar síðan Blaðið greindi frá
því að Kevin Federline
væri að klaga frú 3rifney
Spears sem er víst eitthvað
erfið við hann. [ sömu grein
var sagt frá því að Britney
myndi örugglega innan tíðar
reyna að koma með yfirlýs-
ingu um að það væri
nú allt í himnalagi
hjá þeim eða
reyna að grípa
til einhverra
annarra örþrifa-
ráða. Og viti
menn, nú hafa
þau hjóna-
kornin ákveðið
að þau ætli að
endurnýja hjú-
skaparheit sfn
í þeim tilgangi
að koma í veg
fyrir frekari kjafta-
sögur. Britney
vill ekki meina
að neitt sé að hjá
þeim og að þau hafi það voða
gott saman. Þau ætla að
hafa litla og ákaflega innilega
athöfn þar sem þau ætla að
endurnýja hjúskaparheitin,
og svo virðist sem þetta sé
eingöngu fyrir slúðurblöðin...
ekki vegna þess að þau elski
hvort annað.
„Skilnaðurinn gaf
mér nýja sýn"
Jessica Sirrtpson segir
að hún hafi aldrei verið ham-
ingjusamari því að skilnaður
hennar við Nick Lachey hafi
veitt henni nýja sýn á lífið.
Söng- og leikkonan sem er
aðeins 25 ára gömul skildi við
tónlistarmanninn Nick Lac-
hey í nóvember síðastliðnum
eftir stormasamt þriggja ára
samband þeirra sem var fest
á filmu í raunveruleikaþætt-
inum Nick & Jessica.
Hún segir að nú geti
hún fýrst einbeitt
sér að söngferlin-
um og nú muni
hún fyrst ná langt.
„Ég er frjáls eins og
fuglinn og nú
þegar ég hef
áttað mig á því
hvað ég vil í K \
lífinu og hversu \
langt ég ætla
mér get ég loks-
ins farið að lifa,“
segir Jessica.
Stoppaður af
löggunni
Kvikmyndastjarnan
var stoppaður af
lögreglunni síðasta laugardag
við flugvöllinn í Los Angeles
eftir að kappinn fór yfir á
rauðu ljósi. Leikarinn var
tekinn fyrir umferðarlagabrot
og honum var sleppt með
áminningu samkvæmt TMZ.
com en hann var á leið í burtu
frá Los Angeles. Það
er gríðarlega mikill
öryggisviðbúnaður
á flugvellinum eftir
hryðjuverkahótun-
inaá Heathrow
um daginn og
má segja að ör-
yggisverðirnir
hafi verið með
hjartað í buxun-
um þegar þeir
gripu leikarann
glóðvolgan.
('■*r ■**
Svalir
„skeitarar"
Fátt er svalara fyrir unga töffara þessa dagana en að leika
sér á hjólabretti í bænum. Þessir hjólabrettatöffarar voru
orðnir svangir og þreyttir eftir að hafa leikið listir sínar fyrir
gesti og gangandi en þá er líka tilvalið að setjast niður með
pizzu, snakk og gos og gæða sér á skyndibitanum sem
er ákaflega móðins hjá svona „skeiturum“. Það myndi
algjörlega skemma ímyndina að draga upp nestisbox sem
innihéldi rúgbrauð með kæfu eða eitthvað álíka þjóðlegt,
það væri algjörlega „out“.
Léttur í loftinu
Hjólabrettagæinn hreinlega svífur yfir brettinu og það lítur
út fyrir að þetta sé enginn vandi. Það veit hins vegar hver
sá sem fæti hefur stigið á hjólabretti að svona loftfimleikar
krefjast þrotlausra æfinga og að þessi ungi herramaður er
ekki að stíga á brettið í fyrsta skipti.
Mnnm
Boy Georae
sopar
Platan er búin til af DJ Gyngy vyt-
us og á henni eru lög á borð við
No Sizzuruprises, Flamboastin’
Android og Talk Show Hoes.
Þetta eru tvær nýjustu plöturn-
ar í langri röð platna sem kemur
út til heiðurs köppunum í Radio-
head en plöturnar hafa verið eins
misjafnar og þær hafa verið marg-
ar, allt frá klassískum útgáfum af
rokklögum bandsins og út í rafút-
gáfur sem eru langt frá uppruna-
legu tónlistinni.
Skeet Spirit, A Crunk Tribute
to Radiohead er hægt að nálgast
á netslóðinni Zoomzip.kil.la/ske-
etspirit/, en Rockabye Baby! Lulla-
by Renditions of Radiohead verð-
ur gefin út af Baby Rock Records
þann 29. ágúst næstkomandi.
George O'Down, betur
þekktur sem Boy George,
hóf störf fyrir
hreinsunardeild
New York-borgar
í Bandaríkjunum í
gær.
Popparinn var dæmdur á dög-
unum í fimm daga þegnskyldu-
vinnu eftir að hann við-
urkenndi að hafa
logið að lögreglu
um innbrot í
íbúð sína í
borginni.Mun
hann taka út
refsingu sína
með því að
hreinsa göt-
uríManhatt-
an með sóp
að vopni.
Rockabye Baby! Lullaby Rend-
itions of Radiohead er önnur af
tveimur plötum sem á að gefa út
til heiðurs rokkurunum í Radio-
head, en plötunni er ætlað að
kynna börnum nútímans eitt af
þekktustu rokkböndum sögunn-
ar. Platan inniheldur lög á borð
við Paranoid Android, Knives
Out og There There og er spiluð
á hljóðfæri eins og klukkuspil
og víbrafón. Lögin eru í rólegum
útgáfum og segja útgefendur að
hún henti einkar vel fyrir rokkar-
abörn sem dá og dýrka töffarana
frá Oxford.
Hin platan, sem er nú þegar
komin út á Netinu og hægt er að
hlaða niður ókeypis, er Skeet Spi-
rit, A Crunk Tribute to Radiohead.