blaðið - 29.08.2006, Qupperneq 11
FRÉTTIR I 11
-
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006
Ekvador:
Elsta kona
heims látin
Elsta kona heims andaðist um
helgina, n6 ára að aldri. Maria
Esther de Capovilla fæddist í
Ekvador árið 1889 og var þar til
hún andaðist talin elsta núlif-
andi manneskja í heimi.
Maria fæddist inn í efnaða fjöl-
skyldu og giftist austurrískum
sjómanni árið 1917. Hann lést
árið 1949 og var hún því ekkja
í tæp sextíu ár. Þau eignuðust
fimm börn, ellefu barnabörn og
tuttugu barnabarnabörn.
Þrátt fyrir að Maria væri
komin vel við aldur áttu ætt-
ingjar hennar von á því að hún
yrði enn eldri og voru sumir
hverjir farnir að hlakka til 117
ára afmælis hennar.
Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ:
Grípa til einhliða
aðgerða gegn fran
mbl.is John Bolton, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
ítrekaði í gær fyrri yfirlýsingar Banda-
ríkjamanna um að Bandaríkin muni
líklega beita írana einhliða refsiað-
gerðum vegna kjarnorkudeilunnar,
geri Sameinuðu þjóðirnar það ekki.
„Spurningin um það hvað við gerum
varðandi íran er ekki bundin við
öryggisráðið. Maður getur ímyndað
sér að refsiaðgerðum verði beitt utan
öryggisráðsins,” sagði hann. „Aðrar
ríkisstjórnir geta slíkt hið sama.” Þrír
dagar eru þar til frestur sem öryggis-
ráðið gaf Irönum til að hætta auðgun
úrans rennur út en fullvíst er talið að
íranar muni ekki verða við kröfunni.
Þá er talið ólíklegt að refsiaðgerðir
gegn írönum verði samþykktar innan
ráðsins í bráð.
Bolton sagði í viðtali við blaðið Los
Angeles Times í síðustu viku að örygg-
isráðið hefði verið samtaka í málinu
hingað til en að Bandaríkin séu þegar
farin að búa sig undir það að Rússar
og Kínverjar styðji ekki ályktun þar
Ríkisstjórn Ítalíu samþykkti
á fundi í dag að senda 2.500
manna herlið til friðargæslu
í Suður-Líbanon. ítölsku her-
mennirnir verða þar hluti af
friðargæsluliði Sameinuðu þjóð-
anna. Forsætisráðherra landsins,
Romano Prodi, hefur lagt
mikið af mörkum til þess að fá
Evrópusambandsþjóðir til þess
að senda herlið til Líbanons.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Kofi Annan, hefur
beðið Itali um að stýra herliðinu
frá og með febrúar á næsta ári.
Umferöarslys:
Fólksbíll skall
á ruslabíl
mbl.is Alvarlegt umferðarslys
varð á Eiðavegi skammt utan
Seyðisfjarðarafleggjara um
klukkan 16:45 í gær. Að sögn lög-
reglunnar á Seyðisfirði skullu
fólksbíll og sorpbíll saman
og var ökumaður fólksbifreið-
arinnar fluttur á sjúkrahús á
Egilsstöðum eftir slysið. Hann
mun vera alvarlega slasaður en
frekari upplýsingar um málið
liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Vegna slyssins var Eiðavegur
lokaður við bæinn Fossgerði.
sem kveðið sé á um refsiaðgerðir gegn
írönum.
Sergei Ivanov, varnarmálaráðherra
Rússlands, sagði í dag að ótímabært
væri að ræða hugsanlegar refsiað-
gerðir fari íranar ekki að kröfu
öryggisráðsins. „Hvað sem verður
munu Rússar halda áfram að hvetja
til þess að pólitísk lausn verði fundin
Hermenn hand-
taka mann Óöldin
geisar enn í írak en
John Bolton segir aö
þaö komi ekki i veg
fyrir einhliöa aögerö-
ir gegn Irönum.
með samningaviðræðum og að samn-
ingnum um takmörkun kjarnorku-
vopna verði framfylgt að fullu og af
hörku,” sagði hann.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
(IAEA) mun birta nýja skýrslu sína
um íran á fimmtudag eftir að ljóst
verður hvort íranar fallist á kröfu
ráðsins.
Friðargæsla:
ítalskir dátar
til Líbanons
i
MIIMMMMMMMMI3
„SOKRATES, PERIKLES,
ARISTÓTELES,
SÓFÓKLES...
ENDAR ALLTÁ LES."
ÞANN 15. SEPTEMBER NK.
VERÐA DREÚNIR ÚT10 HEPPNIR
KB NÁMSMENN SEM FÁ
20.000 KR. BÓKASTYRK HVER.
SÆKTU UM A
WWW.KBNAMSMENN.IS
IMJMMMMMMIMMM
úáM'- ■
■
, *v
■ ■ r' :
wi, . .. ^
. . - —
■' ‘SSk:. ‘'U -'Í ■