blaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 15
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006
FRÉTTIR I 15
Egyptaland:
Grófust undir
byggingunni
Að minnsta kosti þrír lét-
ust og þrír slösuðust þegar
bygging hrundi til grunna
í Qaliubiya-héraði í Egypta-
landi í fyrrinótt. í Hadeiq
al-Kubba-hverfinu í Kairó
hrundi önnur bygging til
grunna og eru að minnsta
kosti þrír alvarlega slasaðir
eftir hrunið. Ekki hefur tekist
að bjarga öllum úr húsarúst-
unum. Ekki er vitað hvað olli
hruninu en ekki er óalgengt
að byggingar hrynji í Egypta-
landi þar sem margar eru
byggðar án þess að tilskildum
reglum sem gilda um hús-
byggingar í landinu sé fylgt.
Lögreglan:
Háreysti í
Hafnarfirði
Lögreglan þurfti að hafa all-
nokkur afskipti af samkvæmum
í heimahúsum í Hafnarfirði á
laugardagskvöld vegna hávaða.
1 flestum tilvikanna lækkaði
fólk í hljómflutningsgræjunum
þegar lögreglan hafði samband
og leystust málin í kjölfarið.
Hafnarfjöröur:
Fjórir með
fíkniefni
Meint fíkniefni fundust í
fjórum bílum í Hafnarfirði um
helgina þegar lögreglan stöðvaði
þá. Um smáræði var að ræða
og var öllum sleppt að skýrslu-
tökum loknum.
Þá voru sjö umferðaróhöpp til-
kynnt en þau voru öll slysalaus.
Einnig voru fimm teknir fyrir of
hraðan akstur.
Danmörk:
Varð fyrir eld-
ingu og lést
mbl.is 17 ára gamall knattspyrnu-
maður lést í Kaupmannahöfn í
Danmörku á sunnudag eftir að
hafa orðið fyrir eldingu. Atvikið
átti sér stað í leik liðanna Ulf-
borg og Mábjerg á laugardag en
drengurinn lést í morgun. Tíu
mínútur voru eftir af leiknum
þegar eldingunni laust niður og
segja sjónarvottar að heiðskírt
hafi verið fyrir utan eitt svart
ský á himni.
Drengurinn var fluttur á
sjúkrahús með alvarleg brun-
asár, en læknum tókst ekki að
bjarga lífi hans.
Blóðbaðið í írak heldur áfram:
Tugir féllu í hörðum bardögum
Ekki færri en fimmtíu manns
féllu í átökum og árásum í írak í
gær. Ekkert lát virðist á óöldinni
þar því í fyrradag féllu tæplega
fimmtíu manns fyrir
hendi vígamanna.
Mest var mann-
fallið í Diwaniya í
suðurhluta íraks.
Hermenn stjórn-
valda höfðu ráðist gegn
vígamönnum sem hafa klofið sig
frá Mehdi-hernum sem fylgir klerk-
inum Moqtada Sadr að málum.
Bardagar brutust út um nóttina og
lágu í það minnsta 34 í valnum eftir
bardagana. Flestir hinna látnu voru
stjórnarhermenn, 25 þeirra létust í
bardögunum en aðeins er vitað um
tvo vígamenn sem féllu í bardög-
unum. Sjö óbreyttir borgarar létu
lífið þegar þeir urðu á milli stríð-
andi fylkinga í bardögunum.
Fjórtán manns létust svo þegar
sprengjuárás var gerð nærri innan-
ríkisráðuneytinu í Bagdad, höfuð-
borg íraks. Daginn áður höfðu níu
látið lífið þegar sprengja sprakk í
strætisvagni.
Útför lögreglumanns
Aðstandendur írasks lögreglumanns
sjást hér bera lík hans til grafar.
Cuðrún Ólafía Tómasdóttlr, Innhelmtustjórl DHL ó íslandl ehf.
í Dale Carnegie þjálfuninni lærði ég að þekkja markmið reglulega og blása í mig eldmóði til að
styrkleika mlna. Sjálfstraustíð og hugrekkið jókst ná þeim.
og ég tíleinkaði mér nýjar aðferðir við að sigrast á Ég tók miklum framförum í tjáningu/framsögn og
óþarfa áhyggjum og brjótast I gegnum hindranirl fmnst mér nú að ég getí tjáð mig á skýrari og
Ég þjálfaði uþp áhrifaríkar leiðir tíl að setja mér hn'itmiðaðri hátt fýrir framan hóp af fólki.
I'* Dale Carnegie0
Þjálfun
Sími 555 7080