blaðið - 29.08.2006, Síða 22
30
ÞRIÐJUDAGUR 29 . ÁGÚST 2006 blaðió
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Davies frá í sex vikur
Kevin Davies, sóknarmaður Bolton, verður frá í alit að sex vikur vegna brákaðs
kinnbeins sem hann hlaut eftir viðskipti sin við Hermann Hreiðarsson í leik
Bolton og Charlton um helgina. Hermann fékk rautt spjald fyrir athæfið en
Davies hélt áfram leik þar til hann fékk sjálfur að líta rauða spjaidið vegna oln-
bogaskots. Hann er á leið i aðgerð í dag.
Hi'aþrautin
RÉTT SVÖR UOSJBQJBAJOct JBU|3 Zl
■puB|J3puns 'U 'L66L '01 'woy '6 '!)|09 '8 '||a/v\>|0B|a wabx L jnMSipBUB>) -g
'UJBH )S9M 'S 'isonpugia 'V 'UEHW OV ■£ 'S9|96uv SOO 'Z '90B|Bd |B)SÁJO ’l
Siguröur Jónsson forfallaðist og kom
Eysteinn í hans stað. Haukur Ingi sigrar með
11 réttum svörum gegn níu réttum svörum
Eysteins. Haukur hefur sigrað fimm keppnir
og er því fyrsti hugþrautarmeistari Blaðsins.
I næstu viku mætast Orri Freyr Hjaltalín og
Ólafur Ingi Skúlason.
1. Hvert var fyrsta enska liðið sem Her-
mann Hreiðarsson lék með, þegar hann
fór frá ÍBV1997?
H: Crystal Palace.
E: Crystal Palace.
2. Hvar voru sumarólympiuleik-
arnir haldnir árið 1984?
H: Los Angeles.
E: Los Angeles.
3. Hvaða lið vann Meistaradeild-
ina árið 2003, árið áður en
Porto varð Evrópumeist-
ari?
H: AC Milan.
E' Real Madrid.
4. Hvará land-
inu starfar
íþróttafélagið
Hvöt?
H: Blönduósi.
E: Blönduósi.
5. Með hvaða
liði lék Rio
Ferdinand
á árunum
1995-2000?
H: West Ham.
: WestHam.
Villeneuve?
H: Kanadískur.
E: Svissneskur.
7. Hvað heitir knattspyrnustjóri Leeds
United?
H: Pass.
E: Ég skýt bara á Andy Gray.
8.1 hvaða íþróttagrein keppir Ástralinn
Stuart Appleby?
H: Golfi.
E: Golfi.
9. Frá hvaða borg kemur
italska knattspyrnufélagið
Lazio?
H: Róm.
E: Róm.
6. Hvers
lenskurer
Formúlu-
ökumaður-
inn Jacques
10. Hvaða ár unnu íslend-
ingar Bermúdaskálina
bridds?
H: 1991.
E: 1991.
4:
m
12. Hvað heitir
framkvæmdastjóri
Handknattleikssam-
bands íslands?
H: Einar Þorvarð-
arson.
E Einar Þorvarð-
arson.
11. Hvaða lið
tapaði fyrstu
fjórum leikjum
sínum í ensku
1. deildinni í
knattspyrnu?
H: Sunderland.
E: Ég ætla að
skjóta á Birming-
ham.
Trezeguet til
Juventus?
Franski landsliðsmaðurinn
David Trezeguet gæti verið á leið-
inni til Manchester United. Trez-
eguet, sem er 28 ára, er sagður
vilja fara frá Juventus eftir að liðið
var dæmt niður um deild í sumar
og þær sögur fengu byr undir
báða vængi þegar hann var ekki
í byrjunarliði Tórínóliðsins gegn
Napólí í bikarnum um helgina.
Talið er að Juventus vilji fá allt
að 17 milljónir punda fyrir Trez-
eguet en talsmenn liðsins hafa þó
enn ekki viljað tjá sig um málið.
Alex Ferguson, stjóri United, leitar
enn að eftirmanni Ruud van Ni-
stelrooy sem fór til Real Madrid
í sumar og mun Frakkinn knái
vera efstur á óskalista hans, auk
Argentínumannsins Carlos Tevez
sem hefur einnig verið orðaður
við Rauðu djöflana.
Spurningaljón Haukur Ingi er í
mastersnámi i sálfrædi auk þess
aó leika knattspyrnu með Fylki.
Haukur Ingi Guðnason er fyrsti hugþrautarmeistari Blaðsins:
Hefur alltaf
verið grúskari
Fylkismaðurinn Haukur Ingi
Guðnason hefur unnið fimm hug-
þrautarkeppnir og er því orðinn
fyrsti hugþrautarmeistari Blaðsins.
Haukur lagði að velli Guðmund
Viðar Mete, Sævar Ólafsson, Grétar
Örn Ómarsson, Þorvald Örlygsson
og nú Eystein Húna Hauksson, góð-
vin sinn og fyrrum samherja. Hug-
þrautin fór af stað fyrir um hálfu ári
og hafa margir góðir menn komist
nálægt því að sigra, en það kom í
hlut Keflvíkingsins knáa að vera
fyrstur til að fara alla leið.
„Þetta er mjög skemmtilegt. Ég fer
náttúrlega ekki í neina keppni til
að tapa,“ segir Haukur en vill ekki
gera mikið úr afreki sínu. „Spurn-
ingarnar eru auðveldar ef maður
veit svarið við þeim og ég var hepp-
inn að lenda á spurningum sem ég
vissi svörin við. En það munaði nú
tvisvar litlu að ég dytti út.“
Vafasamt Gettu betur
Eysteinn sagði Hauk búa yfir
gríðarlegri snilligáfu þegar kemur
að íþróttafræðum en Haukur tekur
þeim stóryrðum fálega. „Ég veit nú
ekki með snilligáfu, en ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á íþróttum og
fylgst vel með. Ég hef gaman af
því að sanka að mér alls kyns mis-
hagnýtum upplýsingum og það má
kannski segja að ég hafi alltaf verið
grúskari," segir Haukur. Hann tók á
sínum tíma þátt í spurningakeppni
framhaldsskólanna, Gettu betur,
fyrir hönd Fjölbrautaskóla Suður-
nesja en segir farir sínar í keppn-
inni þó ekki alveg sléttar.
„Það var svo skemmtilegt við FS-
liðið að það gat aldrei neitt. Eitt
skiptið ákváðum við þó að reyna að
hóa saman í almennilegt lið og gera
eitthvað en FS hafði aldrei komist í
sjónvarpið. Við náðum að vinna í
fyrstu umferð og komumst í aðra
umferð ásamt 13 öðrum liðum en
MR fór beint í sjónvarpið minnir
mig. Við unnum okkar viðureign í
annarri umferð en hin sex liðin sem
unnu komust áfram, ásamt stiga-
hæsta tapliðinu úr fyrstu umferð og
við komumst ekki áfram, þrátt fyrir
að hafa unnið,“ segir Haukur, en
kveðst aldrei hafa fengið skýringu
á málinu.
Haukur leggur stund á masters-
nám í sálfræði og stefnir á doktors-
nám í lífeðlisfræði í framhaldi af
því. „Hugmyndin er að reyna að
tvinna þetta saman. Sálfræðilegi
þátturinn my ndi kannski felast í því
að skoða árangur og hvernig best sé
að ná árangri og lífeðlisfræðilegi
þátturinn væri t.a.m. að vinna með
offituvandamál og annað. Þetta er
þó ekki alveg fullmótað ennþá.“
Nauðsyn að Qölga í efstu deild
Eftir fína frammistöðu framan
af sumri hafa Fylkismenn verið að
missa flugið í Landsbankadeildinni
undanfarið og aðeins fengið þrjú
stig úr síðustu fimm leikjum.
Haukur segist fáar skýringar hafa
á því. „Við erum búnir að vera frekar
daprir undanfarið og hreinlega hálf-
meðvitundarlausir á köflum. Það
vantar að við séum á tánum því eins
og staðan er núna erum við langt
frá því að vera sloppnir við fall. Þó
að við séum núna í því sæti sem
þjálfarar og fyrirliðar spáðu okkur
í fyrir mót finnst mér að við eigum
að vera hærra á töflunni. Við erum
reyndar búnir að missa nokkra leik-
menn í meiðsli og það munar um
það. En þegar við spilum á fullri
getu og allir leikmenn eru heilir
er þetta lið sem á hæglega að geta
blandað sér í toppbaráttuna,“ segir
Haukur.
Hann hefur sjálfur átt við erfið
meiðsli að stríða undanfarin ár og
viðureign Fylkis og Skagamanna
á dögunum var fyrsti heili leikur
hans í þrjú ár. „Þetta er orðinn
ansi langur tími og búið að vera
mjög pirrandi. Ég hefði reyndar
aldrei enst þennan leik gegn Skaga-
mönnum nema af því að Fjalar rot-
aðist og Christian meiddist. Ég er
ekki orðinn eins góður og ég myndi
vilja en verð það vonandi á næsta
tímabili. Það er bara svo hrikalega
leiðinlegt hvað tímabilið er stutt og
undirbúningstímabilið langt,“ segir
Haukur og kveðst vera mikill tals-
maður þess að fjölgað verði í efstu
deild.
„Það er engin spurning að það á
að fjölga í deildinni og þá á líka að
reyna að koma á föstum leikdögum.
Maður veit oft ekkert hvenær næsti
leikur verður og hvað þá stuðnings-
mennirnir. Það er sagt að það sé
ekki verið að leika marga leiki á
kvöldi svo að fólk geti farið á fleiri
en einn leik I hverri umferð, en fólk
er einfaldlega ekkert að borga sig
inn á nokkra leiki. Það eru bara þeir
sem eru með frímiða sem gera það.
Ég er algjörlega á því að það eigi að
fjölga og það fljótt," segir Haukur.