blaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 21
Helga Guðmundsdóttir, 23 ára
Helga er sjálfboðaliði i Kópavogsdeild Rauða kross íslands, svokalLaður
heimsóknarvinur. í vetur heimsótti Helga eldri konu vikulega og langveik
börn í Rjóðrinu i Kópavogi í sumar. Helga er að læra hjúkrunarfræði og fyrir
tveimur árum var hún sjálfboðaliði á barnaspítala í Höfðaborg í Suður-Afriku.
Hún stefnir að því aó vinna við hjálparstörf í framtíðinni. Helga ætlar aó
ganga til góðs með vinkonu sinni í dag.
Chikumbutso Stafford, 5
Chikumbutso missti pabba sinn úr alnæmi en býr með mömmu
sinni og systkinum. Hann langar að verða Lögreglumaður þegar
hann verður stór.
Rose M'manga, 23 ára
Rose gekk í Rauða krossinn fyrir 4 árum og er umsjónarkona með
heimahlynningu i þorpinu NkaLo þar sem hún heldur utan um hóp
sjálfboðaliða. Faðir Rose lést úr alnæmi fyrir nokkrum árum og hún
býr með systur sinni. Rose þurfti að hætta i skóla en er ákveðin í að
byrja aftur núna þegar hún hefur efni á að borga skólagjöld.
Jean Macheso, 45 ára
+ %
ara
Hólmfríður Árnadóttir, 67 ára
Hólmfríður vann Lengst af sem framkvæmdastjóri stéttarfélaga en settist
nýverið á skóLabekk og nemur nú sagnfræði við Háskóla íslands. HóLmfríður
hefur alLa tíð haft brennandi áhuga á öllu sem viðkemur mannréttindum og
umhverfisvernd og verið virk í margvíslegu félagsstarfi því tengdu. Hún ætlar
að ganga tiL góðs i dag ásamt nokkrum afkomenda sinna.
Hallgrímur Kjartansson, 7 ára
Hallgrimi finnst skemmtilegast að leika sér í frímínútunum í
skóLanum, en Lika í heimilisfræði og töLvum. Hann ætlar að verða
hnífagerðarmaður í Sviss eða Afríku þegar hann verður stór.
Hallgrímur gengur tiL góðs meó fjöLskyldu sinni í dag.
Jean býr í þorpinu NkaLo og er formaður sjálfshjálparhóps Rauða
krossins fyrir alnæmissmitaða. Hún missti eiginmann sinn úr
alnæmi árió 2003 og stuttu síðar greindist hún sjáLf jákvæð. Jean
hefur unnið að þvi að eyða fordómum i garð aLnæmissmitaðra og að
sem fLestir fari i alnæmispróf til að fá aðgang að lyfjum ef þeir
þurfa.
0
Landssöfnun Rauða kross íslands 9. september 2006
SDFNUNARSfMINN í dag stendur Rauði kross íslands fyrir Landssöfnun undir kjörorðunum „Göngum til góðs". Fjöldi sjálfboðaliða munu ganga í öll hús á landinu og safna framlögum. Söfnunin er tileinkuð börnum í sunnanverðri Afriku, sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis. Söfnunarféð verður nýtt óskert til að bæta líf þeirra.
QÍ17 911911 Rauði krossinn biður um aðstoð þína í dag. Þátttaka þín getur verið með þrennum hætti:
□U / lUlU m Gakktu til góðs Húsin á landinu eru mörg - því þarf marga sjálfboðaliða, til að ganga í hús i einn eða tvo klukkutíma. Verum viðbúin heimsókn 03 j Öll framlög eru vel þegin.
m
Hringdu í 907 2020
Ef þú verður ekki heima í dag, eða hefur ekki handbært fé þegar sjálfboðaliði heimsækir þig,
getur þú hringtí Söfnunarsímann 907 2020. Þá færist 1.200 kr. framlag á næsta símareikning.
Rauði kross íslands
www.redcross.is