blaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 11
biaöið
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 11
háhýsanna þannig að hægt væri að at-
hafna sig úti við. lbúarnir voru mikið
úti við til þess að reyna að binda bíla
við staura og það kom oft fyrir að ég
fauk sjálfur í bókstaflegri merkingu.”
ísland er stað-
sett á einu aí
vindasömustu
svæðum
norðurhvels.
Magnús Jónsson
veðurstofustjóri
Eitt vindasamasta
svæði norðurhvels
Magnús Jónsson, veðurstofustjóri
finnst st sú stefna að reisa háhýsi víða
vera umhugsunarverð. „Vindur vex
umtalsvert með hæð og því skapar
þetta mikinn vanda,” segir hann.
„ísland er staðsett á einu af
vindasömustu svæðum norðurhvels.
Frá Nýfundnalandi til Islands
myndi ég segja annað tveggja
vindasömustu svæðanna,” segir
Magnús. „Hér eru svæði, t.d. við
Stórhöfða í Vestmannaeyjum, þar
sem hvassviðrisdagar eru ríflega tvö
hundruð talsins árlega.
Magnús segir mjög erfitt að
reikna út hvernig vindur hegðar sér í
kringum hús og yfirleitt sé reynt að
herma eftir slíku ástandi til að gefa
einhverja mynd.
„Hæð húsanna er lykilatriði í þessu
sambandi en það sem skiptir einnig
máli er lögunin sjálf. Ein versta lögun
á húsi til að draga úr vindi er að hafa
þau kassalaga. Nánast öll nýleg háhýsi
eru kassalaga og mín skoðun er sú að
huga þurfi meira að lögun húsa til að
brjóta upp norðanáttina. Sama hug-
myndafræði er notuð við varnargarða
snjóflóða, erfitt er að stoppa flóðið en
frekar hægt að breyta stefnu þess og
hraða,” segir Magnús.
íslenskir
vindar eru
ekki ööruvísi
en í öðrum
löndum.
Hrafn Gunnlaugsson
rithöfundur
(slenskur heimóttarskapur
Hrafn Gunnlaugsson rithöfundur
hefur ítrekað barist fyrir því að byggt
sé á hæðina og þannig skapist meira
rými fyrir fólk í miðborginni. Hann
hefur ekki áhyggjur af þvi að sérstök
hætta sér hér á landi umhverfis há-
hýsi. „Borgir í Japan og Kanada eru
svipað í sveit settar og Reykjavík og
fullar af „háhýsum” án þess það sé til
vandræða - þvert á móti. Ég veit ekki
til þess að íslenskir vindar séu öðru-
vísi en í öðrum löndum. Þjóðsagan
af Hornafjarðarmánanum er trúlega
enn að gerast. Það er byggðin sem er
verið að byggja hér hátt upp á heið-
unum í kringum Reykjavík, meira
en íoo metra yfir sjávarmáli, sem
verður og er þjökuð af vindstrókum
og veðravíti. Byggð á hæðina hér
niðri i bæ mun öðru fremur veita
skjól,” segir Hrafn. „Við erum svo ný-
flutt út úr torfkofum að menn virðast
ekki búnir að átta sig á því að búið er
að finna upp lyftuna, - er þetta ekki
bara klassískur íslenskur heimóttar-
skapur? Þar að auki eru þessi hús sem
við köllum háhýsi engin háhýsi í sam-
anburði við erlendis.”
Herráð NATO í Afganistan:
Vantar 2000 hermenn
Yfirmenn herafla Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) telja að þeir
þurfi að minnsta kosti tveggja
þúsunda manna liðsstyrk til þess
að takast á við uppreisn talibana
í landinu. Herráð NATO fundaði
gær og í dag í Varsjá í Póllandi um
ástandið í Afganistan.
Að sögn Bretts Boudreau, tals-
manns bandalagsins, er ekki víst
hvort beiðnin um liðsstyrk verður
afgreidd á fundinum þar sem her-
foringjarnir þurfa að fá pólitískan
stuðning við slíka aukningu í
heimalöndum sínum.
James Jones, yfirhershöfðingi
Atlantshafsbandalagsins, hafði
fyrr í vikunni sagt að nauðsynlegt
væri að fjölga í liði NATO í Afgan-
istan. Á fundi með blaðamönnum
í höfuðstöðvum NATO í Mons í
Belgíu á fimmtudag sagði Jones að
mótspyrna talibana í suðurhluta
Afganistans hefði komið mönnum
nokkuð á óvart og á sumum
stöðum sé styrkur þeirra slíkur að
þeir noti ekki hefðbundar skæru-
liðaárásir heldur berjist á hefðbund-
inn hátt. Hins vegar spáir hann því
að NATO nái að hafa yfirhöndina
í baráttunni gegn talibönum og
öðrum vígamönnum á svæðinu
áður en vetur skellur á.
NATO tók við stjórn alþjóðlegs
herliðs í Afganistan þann 30. júlí og
hefur meðal annars haft það hlut-
verk að koma böndum á lögleysuna
sem ríkir í suðurhlutalandsins. Þar
ráða talibanar, eiturlyfjabarónar
og stríðsherrar lögum og lofum og
hafa hermenn NATO lent í hörðum
bardögum á svæðinu. En þrátt
fyrir harða andspyrnu er Jones yf-
irhershöfðingi sannfærður um að
NATO muni ráða niðurlögum víga-
Ótraust landamæri Talibanar
ÍAfganistan fá stuðning sinn
frá íslamistum í Pakistan í skjóli
ótraustra landamæra.
manna á svæðinu. Umfangsmestu
hernaðaraðgerðir NATO hófust
um síðustu helgi.
Við bjóðum fjölbreytta tíma í sal, margvísleg námskeið, tækjasal og leiðsögn
Innritun hafin á öll námskeið
ísíma 5813730:
• TT1 Vertu í góðum málum!
Átaksnámskeiðin sívinsælu fyrir konur á öllum aldri
Lokuð 9 vikna námskeið, 3 x í viku
• TT 2 Vertu í góðum málum!
Lokuð 9 vikna framhaldsnámskeið eftir TT1
• TT 3 og 4 Taktu þér tak!
Lokuð 6 vikna átaksnámskeið 3 x í viku
fyrir stelpur16-20 og 21-30 ára
• Rope Yoga
Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi
Lokuð 6 vikna námskeið 2 x í viku
• 6o +
Líkamsrækt fyrir konur 60 ára og eldri
Lokuð 6 vikna námskeið 2 x f viku
• Mömmumorgnar
Lokuð 6 vikna námskeið 2 x í viku
• Meðgönguleikfimi
Lokuð 6 vikna námskeið 2 x í viku
Vertu velkomin í okkar hóp!
Þinn tími er kominn!
Opna kerfið
1. Almenn þjáifun, þol, styrkurog liðleiki
2. Púltími, hressileg upphitun, ýmist á palli eða gólfi, styrktar- og liðleikaþjálfun
3. Pallatími, samsettspor, mikil brennsla
4. Lóðatími, upphitun ýmist á palli eða á gólfi, unnið með þyngd og mótstöðu,
lóð, stangir, teygjur
5. Liðleikaþjálfun, upphitun, styrktar- og slökunarteygjur
6. Yoga
7. Bræðingur, líkamsrækt með dansívafi, salsa, mambo, samba, jazz, funk og stuð.
8. Sprengitími, 30 mínútna hádegispúl
9. Stöðvaþjálfun, fjölbreyttir vaxtamótunartímar
Barnagæsla - Leikland JSB NÝTT
Glæsilegur nýr tækjasalur!
DflNSRfEKT
JS'IJ
leggur línumar
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 5813730 • Bréfasími 5813732 • www.jsb.is
sngtl / HNOTSKÓGUR grttllk hAr