blaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 09.09.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 blaöið VEORIÐ I OAG Skúrir Suövestan fimm til tíu metrar á sekúndu og víða skúrir um landið, en bjartviðrí á Austurlandi. Hiti átta til fimmtán stig, hlýjast á Austurlandi. ÁMORGUN Víða léttskýjað Á sunnudag og mánudag verður súld eða dálítil rigning vestantil áfandinu. Hiti áttatil sautján stig. VÍÐA UWl HEIM £ Algarve 29 Glasgow 17 New York 20 Amsterdam 18 Hambórg 17 ' Orlando 24 Barcelona 27 Helsinki 15 Osló 20 Berlín 19 Kaupmannahötn 20 Palma 29 Chicago 16 London 19 París 21 Dublin 16 Madrid 28 Stokkhólmur 16 Frankfurt 20 Montreal 11 Þórshöfn 13 Sjálfsmorðsárás: Þrjátíu féllu Að minnsta kosti sextáaféllu og tuttugu og níu særðust í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær þegar sjálfsmorðsspréngju- maður ók bíl sínum á bandaríska bílalest. Árásinvar sú mannskæð- asta í landinu frá því að veldi talibana féll árið 2001. Tilræðið átti sér stað rétt við bandaríska sendiráðið í borginni og meðal þeirra sem féllu voru tveir bandarískir hermenn. Tvítug stúlka laug að löggu Tæplega tvítug stúlka var dæmd í Héraðsdómi Reykjávíkur fyrir umferðarlagabrot og að hafa gefið upp vitlaust nafnog kennitölu þegar hún var stððvuð. Hún kom sökinni á aðra stúlku með þeim afleiðingum að ríkislögreglustjóri sendí bTéf til hennar og sakaði hana um umferðarlagabrotið og bauð.-, - henni að ljúka málinu með sekt- argreiðslu. Stúlkan er dæmd í 30 daga fangelsi skjlorðsbundið til tveggja ára. m falskan búnað. „Fyrir það fyrsta hefur þekkst um árabil erlendis að óprúttnir náungar hafa reynt að stela segulröndum af kortum sem og PIN-númerum með ýmsum aðferðum," segir Logi. „Það er ómögulegt að ætlast til þess að við- skiptavinurinn átti sig á svindlinu enda ber hann aldrei fjárhagslegan skaða í svona málum,“ segir Logi en afar erfitt er að átta sig á því hvort slíkur búnaður sé á sjálfsölum. Aðspurður hvort auðvelt sé að nálgast þessi tæki eða búa þau til segir hann að þjófarnir þurfi alltaf ákveðna þekkingu til að útbúa af- ritunarbúnaðinn en íhutina megi nálgast bæði í gegnum Netið og með öðrum aðferðum. Svindl af þessu tagi byrjuðu fyrir alvöru árið 1999. Á næstu fjórum árum tvöfölduðust slík svindl í Bretlandi, óa|( Bandaríkjunum er talið að banl^rinir verðiaf rúmlega 50 milljónum dollara eða tæplega 3,5 milljörðum íslenskra króna ár- lega. Af einhverjum ástæðum hafa svik af þessari tegund ekki náð til íslands en í janúar var útlendingur handtekinn þegar hann reyndi að smygla kortaskima með Norrænu. Málið er í rannsókn en ekki er talið að þjófarnir hafi komist ýfir neinar fjárhæðir. Lögreglan vill ekki gefa upp á hvaða bensínstöð atvikið átti sér stað vegna rannsóknarhagsmuna en Egó-bensínstöðin hefur sent út tilkynningu þar sem hún sver at- vikið af séf^Einnig taka talsmenn hennar fram að það sé afar slæmt að öll bensínfyrirtæki liggi undir grun landsmanna um að vera ekki örugg á einhvern hátt. Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Kortalesari fannst á sjálfsala á bens- ínstöð í Reykjavlk í ágúst. Það er í fyrsta skipti sem slíkt gerist á ís- landi. Tækið gat lesið upplýsingar af kortum sem sett voru inn í rauf- ina, en lögreglan gefur ekki upp um hverskonar tæki var að ræða. Yfirleitt þegar um bensínsjálfsala er að ræða notast þjófarnir við svo- kallaðankortaskima. Tækið afritar upplýsingar af kortinu á rafrænt form. Því næst eru upplýsingarnar yfirfærðar á annað kort. Oftast þarf einnig litla örmyndavél sem tekur upp fórnarlambið þegar það slær inn leyniorð. Samkvæmt Herði Jóhannessyni, yfirlögregluþjóni í Reykjavík, eru til tvennskonar tæki. Annað tækið er lítið og hægt er að hengja það yfir kortaraufina en hitt tækið er í raun fölsk framhlið þár sem kortið er sett inn. „Það er mjög auðvelt að stela upp- lýsingunum séu réttu tækin til staðar," segir Michael St. Neitzel sem vinnur hjá Friðriki Skúlasyni ehf. og sér um vírusvarnir. Áður vann hann hjá Interpol við að rannsaka tölvuglæpi. Hann segir að þjófurinn þurfi ekki einu sinni að vera á staðnum. Hann geti setið inni í bíl rétt hjá og fengið allar upp- lýsingarnar beint í tölvuna hjá sér á meðan fórnarlambið reynir að nota sjálfsalann. Logi Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Fjölgreiðslumiðlunar hf., hélt á fimmtudaginn námstefnu þar sem starfsmönnum ýmissa fyr- irtækja var kennt að greina svona Venjulegur hraðbanki? Gríðarlega erfitt er að sjá hvort hraðbankinn hafi falska framhlið. Nefnilega ekki! Kortaskiminn erafar Eitthvað varhugavert við handhægur og hægt er að fá upplýs- myndina? Svo virðist sem ekkert ingarnar beint i fartölvuna út i bfl og gruggugt sé við þessa mynd, bara þjófurinn situr áhyggjulaus i örygginu. venjulegur hraðbanki. Njósna um leyniorð Myndavél er nauðsynleg til að komast yfir leyniorð. Inni i myndavélinni er t nig þráðlaus nettenging Opíð virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavílc Mörkin 4, s: 533 3500 ■ * & Gæða sængur og heilsukoddar Sextán ára gamall piltur kynntist ungum manni á Netinu: Vildi verða mannsbani Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Pilturinn sem var handtekinn fyrir að stinga 26 ára gamlan mann í bakið á mánudaginn sagði við yfir- heyrslur að hann vildi myrða mann. Hann segist hafa kynnst mann- inum í gegnum Netið með það að markmiði að drepa hann. Þeir hitt- ust þrisvar sinnum í kjölfarið. Drengurinn segir að hann hafi viljað myrða hann fyrr en ekki fengið tækifæri til þess. I þriðja skiptið sem þeir hittust tók piltur- inn með sér hníf. Þeir lögðu bílnum við skautahöllina i Laugardalnum og fórnarlambið fór út til þess að pissa. Að sögn fórnarlambsins fann hann högg á bakið þegar hann var að pissa. Hann leit við og sá pilt- inn hlaupa í burtu. Hann þréifaði á bakinu og fann þá að hnífur stóð út úr því. Honum tókst að íjarlægja hnífinn og aka upp á spítala. Hníf- urinn var tæplega tíu sentimetra langur. Engu að síður fór betur en á horfðist. Við yfirheyrslur segir pilturinn að sig hafi alltaf langað tii þess að drepa mann og fórnarlambið hafi verið sá fyrsti sem hann fann til þess. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem maður gefur upp þessa ástæðu en i apríl árið 1976 myrti átján ára piltur mann á Ákueyri að ástæðulausu. Sextán ára pilt dreymdi um að drepa mann PUturinn stakk mann í bakið með hníf og ætlaði sér að drepa hann. Hann skaut manninn í andlitið og svaraði því til þegar hann var inntur eftir ástæðum að hann vildi bara prófa að drepa mann. Pilturinn sem um ræðir verður í gæsluvarðhaldi til loka mánaðarins og hefur Hæstiréttur staðfest þann úrskurð. Hann sætir geðrannsókn.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.