blaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 5

blaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 5
EXIST/V Almennt hlutafjarutboð stendur til kl.17:00 á morgun - skráning á www.kbbanki.is Almennt útboð á hlutum í Exista hófst mánudaginn 11. september og stendurtil kl. 17:00 miðvikudaginn 13. september næstkomandi. 65.000.000 hlutir eru boðnir almenningi á genginu 21,5 krónur fyrir hvern hlut, samtals að andvirði 1.397,5 milljóna króna. Lágmarksáskrift er 5.500 hlutir að andvirði 118.250 króna og Hámarksáskrift er 2.000.000 hlutir að andvirði 43 milljóna króna. Ráðgjöf KB banka veitir upplýsingar vegna hlutafjárútboðsins í síma 444 7000 og tölvupósti existautbod@kbbanki.is. Exista er á meðal öflugustu fyrirtækja landsins og nema heildareignir þess yfir 300 milljörðum króna. Félagið starfar á sviði fjármála- þjónustu, einkum trygginga og eignaleigu, m.a. undir merkjum VÍS og Lýsingar. Exista er jafnframt kjölfestufjárfestir í nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins, þar á meðal Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Símanum. Markmið Exista er að nýta fjárhags- legan styrk sinn til frekari uppbyggingar hér á landi og erlendis. Þann i5. september erfyrirhugað að skrá hluti félagsins í Kauphöll íslands. Útgefandi Exista hf., kt. 610601-2350 Seljandi í hlutafjárútboði Kaupþing banki hf., kt. 560882-0419 Umsjónaraðili útboðs og skráningar Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf., kt. 560882-0419 Útboðs- og skráningarlýsing Útboðs- og skráningarlýsing er gefin út á ensku undir heitinu Prospectus. Lýsingin er gefin út rafrænt á heimasíðu útgefanda, www.exista.com. Lýsinguna má einnig nálgast á heimasíðu umsjónaraðila og seljanda, www.kbbanki.is eða www.kaupthing.net. Lýsingin er jafnframt birt í fréttakerfi Kauphallar, news.icex.is. Innbundin eintök liggja frammi hjá Exista að Ármúla 3 i Reykjavík og hjá Kaupþingi banka, Borgartúni 19 í Reykjavík. Skráning áskriftar Áskriftum í almenna útboðinu skal skila rafrænt á sérstöku formi á vef KB banka, www.kbbanki.is. Áður en kemur til áskriftar þarf fjárfestir að gera grein fyrir sér með eftirfarandi aðgangsauðkennum á áskriftar- forminu; A með notandanafni og lykilorði fyrir KB Netbanka, eða B með kennitölu og lykilorði í starfsmannaútboði, eða C með kennitölu og lykilorði sem fjárfestir pantar við upphaf áskriftar og fær sent um hæl með tölvupósti. Rafræn staðfesting er skilyrði fyrir gildri áskrift. Staðfestingin er birt í lok áskriftar og hana má prenta út. Eftir að áskrift hefur verið gerð og fram til 31. október 2006 er einnig hægt að nálgast rafræna staðfestingu á vefsíðunni með því að nota sömu aðgangsauðkenni og við skráningu áskriftar. Einnig má nálgast staðfestinguna í KB Netbanka. Áskrift í útboðinu er bindandi fyrir áskrifanda. Seljanda er heimilt að krefjast tryggingar frá fjárfestum sem skrá áskrift yfir 5 milljónum króna. Áskrift í almenna útboðinu er opin einstaklingum með íslenska kennitölu og lögaðilum sem hafa islenska kennitölu, að því gefnu að þeim sé ekki meinuð þátttaka samkvæmt lögum. Úthlutun Komi til þess að áskriftir verði umfram þá 65.000.000 hluti sem boðnir eru í almenna útboðinu, þá verður seldum hlutum úthlutað til áskrifenda með eftirfarandi hætti; A Hlutfallslegur niðurskurður mun nema allt að 50% af hverri áskriftarfjárhæð, og B ef samanlagðar áskriftir eru enn umfram 65.000.000 hluti eftir 50% hlutfallslegan niðurskurð, þá verður til viðbótar flötum niðurskurði beitt á áskriftimar þannig að hámark úthlutaðrar áskriftar verður lækkað uns samanlagðar áskriftir nema 65.000.000 hlutum. Útgáfa og afhending hluta Hlutir sem seldir er í útboðinu eru gefnir út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu (slands. Gert er ráð fyrir að hlutir verði afhentir hverjum kaupanda einum viðskiptadegi eftir að greiðsla berst. Greiðsla Frá og með 14. september 2006 má nálgast tilkynningu um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum á vefsíðu KB banka með því að nota sömu aðgangsauðkenni og við skráningu áskriftar. Frá 14. september getur jafnframt hver og einn áskrifandi nálgast greiðsluseðil vegna úthlutaðra hluta í sínum netbanka. Greiðslufyrirmæli verða í formi greiðsluseðils sem greiða má í íslenskum banka, sparisjóði eða netbanka. Greiðsluseðlar verða ekki sendir áskrifendum með pósti. Gjalddagi er 14. september en greiðslu skal inna af hendi eigi síðar en 20. september 2006 f samræmi við ofangreind greiðslufyrirmæli. Greiðslukvittun verður send til áskrifanda eftir að greiðsla hefur borist með réttum hætti. Niöurstaða útboðs og skráning í Kauphöll Stjórn Kauphallar íslands hefur samþykkt að skrá alla útgefna hluti Exista í Kauphöll (slands. Kauphöllin hefur veitt tímabundna undanþágu frá skilyrði um lágmarksfjölda hluthafa en í kjölfar útboðs er gert ráð fyrir að því skilyrði verði fullnægt. Óskað hefur verið eftir því að EXISTA verði auðkenni félagsins og hluta.þess hjá Kauphöllinni. Viðskiptalota bréfanna verður 5.000 hlutir. Viðskiptavakt verður með hluti félagsins frá skráningardegi. Niðurstaða útboðsins verður tilkynnt Kauphöll (slands og fjölmiðlum 13. september 2006 eftir klukkan 17:00 og birt í fréttakerfi Kauphallarinnar 14. september 2006. Skráning í Kauphöll (slands er fyrirhuguð 15. september 2006, en endanleg dagsetning verður tilkynnt með dags fyrirvara í fréttakerfi Kauphallarinnar. Œ KB BANKI www.kbbanki.is *Sími 444 7000 Reykjavík, 12. september 2006

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.