blaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 blaðið UTAN UR HEIMI ÁSTRALÍA Biðlar til hófsamra múslíma John Howard, forsætisráöherra Ástralíu, hefur hvatt hófsama múslíma til aö opinbera gagnrýni sína á hryöjuverk í auknum mæli. Forsætisráöherr- ann sem var að minnast hryðjuverkaárásanna á New York og Washington sagði að múslímar þyrftu undantekningarlaust að viðurkenna tilverurétt (sraelsríkis. Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð múslíma í Ástralíu. Samkomulag um þjóðstjórn Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnar- innar, sagði í gær að samkomulag hefði náðst við Ismail Haniyeh forsætisráðherra um myndun þjóðstjórnar. Von- ast er til að þjóðstjórnin bindi enda á einangrun Palest- ínumanna sem hófst þegar Hamas myndaði ríkisstjórn. Enn lækkar verðið Verð á hráolíu á heimsmörkuðum lækkaði sjötta daginn í röð í gær í krafti þess að jákvæðar fregnir berast af viðræðum fulltrúa Evrópusam- bandsins og Irana um lausn deilunnar um kjarn- orkuáætlun klerkastjórnarinnar ÍTeheran. Sjóræningjaveiðar: Vekja granna til hugsunar mbl.is Guðlaugur Þór Þórðar- son, þingmaður hefur sent þingmönnum Evrópuþingsins, Noregs og Liechtenstein sem sæti eiga í þingmannanefnd EES bréf þar sem hann vekur athygli á sjóræningjaveiðum á Norður-Atlantshafi. I bréfi Guðlaugs Þórs sem sent var í gær eru þau Evrópulönd talin upp sem veitt hafa skipum sem stunda sjóræningjaveiðar þjónustu í höfnum sínum. Þá er greint frá nýjum reglum sem settar hafa verið að frumkvæði tslendinga i Norðaustur-Atlants- hafsfiskveiðinefndinni, NEAFC, þar sem bann er lagt við því að hleypa skipum sem stunda ólög- legar veiðar til hafnar. Gabor nýju hauslvörurnar komnar. Skór og töskur. _o (D O fashion xena GLÆSIBÆ S: 553 7060 Önnur líkamsárásin á stuttum tíma í verslun: Hnífamenn gáfu sig fram ■ Gáfu sig fram eftir myndbirtingu ■ Annað sinn ráðist á mann í verslun ■ Búa í Breiðholtinu Eftir Val Grettisson valur@bladid.net „Starfsmönnum var að sjálfsögðu brugðið,“ segir verslunarstjóri Select en öryggisvörður var stunginn í síð- una og afgreiðslumaður skorinn í and- lit aðfaranótt laugardags í versluninni Select í Breiðholti. Árásarmennirnir tveir gáfu sig svo fram við lögreglu síð- degis í gær eftir að myndir birtust af þeim á Netinu. Þá höfðu myndirnar farið víða og annar þeirra verið nafn- greindur að hluta eftir að netverjar báru kennsl á hann. Piltarnir eru fæddir 1987 og 1988 og samkvæmt heimildum búa þeir í Breiðholti. „Lífið gengur sinn vanagang og við vorum búin að opna aftur daginn eftir,“ segir verslunarstjórinn en hún játar að árásin hafi tekið toll af starfs- mönnunum. Boðið var upp á áfall- hjálp en enn sem komið var hafði eng- inn nýtt sér þá þjónustu. Starfsfólkið var bratt þegar blaða- maður kom á staðinn þó þeim fyndist atburðurinn skelfilegur. Svona árás hefur ekki átt sér stað síðan Select var opnað i Breiðholtinu árið 1997 sam- kvæmt verslunarstjóranum og því um einsdæmi að ræða. Spjallsíður á Internetinu loguðu þegar myndirnar voru birtar um þrjú- íeytið og var annar drengurinn nafn- greindur að hluta þar. Einnig auglýstu afþreyingarsíður eftir piltunum því myndirnar fóru eins og eldur í sinu. Samkvæmt Bjarnþóri var ekki búið að taka ákvörðun um það hvort pilt- arnir yrðu hnepptir í gæsluvarðhald en í ljósi alvarleika brotsins þá mun það ekki vera óliklegt. Yfirheyrslur hófust í gærkvöldi. Barnakennsla Á laugardögum í vetur verður boðið upp á danskennslu fyrir krakka á aldrinum 3-6 ára. Kenndir verða ýmsir barnadansar og freestyle dansar í takt við tónlist. Tímarnir verða brotnir upp með ýmsum leikjum og fígúrum sem munu taka virkan þátt í kennslunni. Kennslan hefst 16. september og fer fram í Egilshöllinni í Grafarvogi. Kínversk stjórnvöld: Enn hert á Kínversk stjórnvöld tilkynntu um nýjar reglur um fjölmiðlun á sunnudag. Þau takmarka mjög svig- rúm á starfsemi erlendra fréttastofa í landinu. Að sögn stjórnvalda eru nýju reglurnar settar til þess að auka gæði þeirra frétta sem eru sagðar í landinu á skipulagðan hátt en þær kveða meðal annars á um að erlendar fréttastofur þurfi að sæta ritskoðun fréttastofu sem er rekin af kínverska ríkinu. Kínversk stjórnvöld hafa hert á rit- skoðun í landinu undanfarið og fyrr á þessu ári var fjölmiðlum meinað að segja frá fréttum eins og stórslysum og hamförum án þess að fá leyfi frá stjórnvöldum fyrst. Nýju reglurnar kveða á um að erlendar fréttastofur þurfi að fá sér- stakt leyfi frá Xinhua, sem er frétta- stofa ríkisins, til að miðla fréttum í ritskoðun Leiðtogar Evrópu og Asíu Þeir funduðu i Helsinki á sunnudag og mánudag. Fulltrúar Evrópusam- bandsins ræddu nýju reglurnar við fulltrúa Kína. Kína og eru þær sérstaklega varaðar við að segja frá fréttum sem kunna að „stofna hagsmunum ríkisins í hættu”. Erlendum fréttastofum er meinað að segja fréttir sem ógna þjóðarör- yggi, stofna þjóðareiningu í hættu eða halda bábiljum að alþýðu manna. Fasteignamarkaður: Mikill samdráttur á höfuðborgarsvæðinu Samdráttur á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu fyrstu vikuna í september nemur 44% frá fyrra ári samkvæmt samantekt Fasteignamats ríkisins á fjölda þinglýstra kaupsamn- inga. Alls var 121 kaupsamningi þinglýstísíðustu viku en á sama tíma í fýrra voru þeir 216. ■'bsbs Þá hefur þinglýstum kaupsamn- ingum fækkað um 1.400 á fyrstu átta mánuðum þessa árs og nemur samdrátturinn 22% miðað við fyrra ár. Alls var 5.106 kaupsamningum þinglýst frá janúarbyrjun til loka ág- ústmánaðar en á sama tíma í fyrra nam heildarfjöldi þeirra 6.523.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.