blaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 22
”30 ÞRIÐJDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 blaöiö A förnum vegi HEYRST HEFUR... Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrw Vinstri grænna ÍReykjavik m f ÍÍSWÍM, . ■ Ástriðan min SU DOKU talnaþraut 4 3 9 5 6 8 2 5 6 8 1 9 4 2 8 9 3 7 1 7 8 9 1 2 7 2 8 6 6 4 5 7 6 8 5 9 1 3 7 2 4 3 4 9 2 7 5 1 6 8 7 1 2 4 6 8 3 5 9 5 7 3 6 8 4 9 1 2 2 6 1 7 3 9 8 4 5 8 9 4 5 2 1 6 3 7 9 3 8 1 5 2 4 7 6 1 5 6 8 4 7 2 9 3 4 2 7 3 9 6 5 8 1 Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig að hvertala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: Leikkonan þokkafulla, Bryn- hildur Guðjónsdóttir, sem reglulega heillar leikhúsáhorfendur upp úr skónum með I einlægri framkomu og fagurri söng- rödd, kom á óvart um helgina. Hún sást dilla sér á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll þar sem þungarokks- sveitin Entombed fór mikinn. Stúlkan ljúfa leynir greinilega á sér en hún gaf hinum sveittu þungarokksaðdáendum ekkert eftir í fagnaðarlátunum. Tónleik- arnir höfðu verið auglýstir fyrir 18 ára og eldri en á daginn kom að aldurstakmarkið var 20 ár eftir allt saman. Brynja Björk Garðarsdóttir, sem eitt sinn gegndi stöðu- heitinu hnakkamella, skrifar „frétt“ í nýjasta tölublað tímarits- ins Séð og heyrt um að Björk Guðmundsdóttir söngkona sé að reisa sér sumarbústað við Þingvallavatn og myndir birtar af honum. Sagt er að Björk sé náttúrubarn og að arkitektúr- inn sé sérstakur. Ekkert skal sagt um frumleika bústaðarins eða hversu vel hann fellur að náttúrunni; en ef undan er skilin sú staðreynd, að bústaðurinn á myndunum er : við Þingvallavatn, stendur varla 1 steinn yfir steini í „fréttinni“. Björk er ekki að byggja neinn bústað við Þingvallavatn og umræddur bústaður kemur henni ekkert við. Jafnvel aldur söngkonunnar - sem stendur á fertugu og er ekkert leyndar- mál - er ekki rétt eftir hafður. En mikið hlýtur fólkið, sem er að byggja þennan bústað að hafa orðið hissa þegar það las um að Björk stjórnaði öllu í sam- bandi við bygginguna eins og hústökumaður dauðans... Er þetta ekki kjóllinn sem þú varst í í brúðkaupsferðinni okkar? fólk foik@bladid.net Hvað ertu að gera í Smáralind? Brynjar Guðjónsson, nemi Ég er aö skoða gleraugu. HVAÐ FINNST ÞÉR? Er allur vindur úr þér í bar áttunni fyrir háhýsum? „Ég læt þessa gagnrýni sem vind um eyru þjóta." Vil halda áfram baráttunni „Ég er mjög ástríðufull að eðlisfari og það sem ég tek mér fyrir hendur geri ég oftast af mikilli ákefð,“ segir Sóley Tómasdóttir, nýkjörinn vara- borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík. Sóley er þekkt fyrir baráttu sína í þágu kynjajafnréttis en hún hefur verið virk í starfi Femínistafélags- ins og sinnt þar ýmsum trúnaðar- störfum auk þess sem hún hefur komið reglulega fram í fjölmiðlum og haldið dyggilega uppi merkjum femínismans. „Ástæðan fyrir því að ég fór út í pól- itík var einkum sú að mig langaði til þess að rétta hlut kvenna í þjóðfélag- inu og koma femínískum áherslum á framfæri. Ég var alin upp á mjög fem- ínískan hátt og varð snemma með- vituð um ójafna stöðu kynjanna. Ég held ég hafi verið ellefu ára þegar ég skrifaði fyrsta bréfið mitt til jafnrétt- isnefndar. Mér finnst auðvitað frá- bært að vera nú komin í þá stöðu að geta haft raunveruleg áhrif og breytt því til batnaðar sem ekki er í lagi.“ Sóley hefur nú þegar látið að sér kveða innan borgarmálanna en hún vakti máls á nýjum nektardans- stöðum í Reykjavík og kom því til leiðar að stofnaður yrði starfshópur sem mun vinna áfram að því að koma nektardansstöðum alfarið burt úr Reykjavík. „Þetta er starfsemi sem við viljum ekki að þrífist í borginni og það er þverpólitísk sátt um það í horgar- stjórn. Ég tók þetta mál upp og er stolt af því að hafa gert það. Þó ég sé í minnihluta þýðir það ekki það að ég geti ekki haft áhrif, það þarf að taka á þessum málum og það eru allir sammála um það.“ Nú hefur jafnréttisnefnd verið lögð niður á vegum borgarinnar og er mannrétt- indanefnd ætlað að sinna því hlut- verki sem hún gerði áður. Sóley er ákveðin í því að gæta þess að hin nýja nefnd missi ekki marks og að áfram verði ríkuleg áhersla lögð á kynjajafnréttismál þó vissulega fagni hún aukinni áherslu á aðra minnihlutahópa. HERMAN „Reykjavíkurborg hefur verið mjög framsækið afl í kvenfrelsismálum og ég vona að svo verði áfram þó svo nýr meirihluti hafi tekið við. Borgin hefur tekið mörg mjög stór skref sem önnur sveitarfélög hafa ekki þorað að taka og við getum verið stolt af því,“ segir Sóley. „Bar- áttan mjakast þó alltof hægt og fyrir því eru ákveðnar ástæður. Samfélagið er búið til af körlum; þeir settu saman lög og reglur og allt samfélagið er mótað af þeirra hugmyndum. Til þess að fullt jafn- rétti náist þarf að breyta öllu samfé- laginu og það er hægara sagt en gert. Ég vildi óska þess að ég ætti eftir að lifa það að sjá samfélag þar sem jafn- rétti kynjanna ríkti en ég er aðeins raunsærri en það. Ég mun gera það sem ég get til þess að komandi kyn- slóðir þurfi ekki að búa við þetta ástand og halda áfram baráttu for- mæðra minna eftir því sem ég best get.“ hilma@bladid.net eftir Jim Unger 11-5 Daníel Örn Jóhannesson, sölumaður Ég er í vinnunni. Kjartan Þór Kjartansson, sjómaður Ég er bara að drepa tímann. Valgeir Sigurðsson Eg fór með konunni minni og hún keypti sér gleraugu. © Jlm Unger/dlst. by Unlted Medla, 2001 Sara Smáradóttir, gína Ég er að vinna.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.