blaðið - 27.09.2006, Side 22

blaðið - 27.09.2006, Side 22
3 0 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 blaöiA / Ogn af kjarnorkuúrgangi Kjarnorkuvá í Norðurhöíum ógnar íslensku miðunum. Ásta R. Jóhannesdóttir Lausnin á varðveislu kjarnorku- úrgangs er ekki í sjónmáli. Geisla- virkan úrgang verður að vera unnt að geyma á öruggum stað í tugþús- undir ára. í síðustu viku sat ég námsstefnu umhverfis- og auðlindanefndar Norð- urlandaráðs ásamt umhverfisnefnd Eystrasaltsráðsins um stöðu og fram- tíðaráætlanir um meðhöndlun og vörslu kjarnorkuúrgangs á Eystra- saltssvæðinu. Ég á sæti í umhverfis- og auðlindanefndinni sem hefur látið þessi mál mjög til sín taka. Geislavirk mengun í Norðurhöfum í sumar kynntu nefndarmenn sér ástandið í þessum málum í Múrm- ansk og á Kólaskaga. Eftir þá ferð var ljóst að ástandið í þessum málum í Norðurhöfum er ekki eins og best verður á kosið. f höfninni í Múrm- ansk er skip fullt af geislavikum úr- gangi, sem til stóð að sökkva í íshafið. Umhverfisverndarfólki í Noregi og víðar tókst að koma í veg fyrir það fyrir nokkrum árum, - en úrgang- urinn er enn í skipinu í Múrmansk- höfn. f ferðinni var okkur sagt að Rússar hefðu í gegnum tíðina sökkt að minnsta kosti 13 skipum fullum af geislavirkum úrgangi í íshafið. Þetta er alvarlegt ef rétt er og áhyggjuefni fyrir okkur og alla sem hafa afkomu af fiskveiðum í Atlantshafinu. Víðar urðum við vör við mengun vegna geislavirks kjarnaúrgangs, meðal annars þar sem geislavirkum úr- gangi hafði verið skipað á land og komið fyrir í steypukerum sem í komu sprungur í hörkufrostum og innihaldið lak út í náttúruna. Átak er nú í gangi til að hreinsa svæðið að frumkvæði Norðmanna. Geislavirknin í Eystra- salti frá Tsjernobyi Á fundinum i síðustu viku voruþeir þrír sérfræðingar sem fjölluðu um Eystrasaltsmengunina sammála um að mestur hluti þeirrar geislavirku mengunar sem er í Eystrasaltinu sé vegna kjarnorkuslyssins í Tsjernobyl árið 1986. Næstmest er af völdum til- rauna með kjarnorkuvopn á sjötta áratug síðustu aldar, en mengun frá hreinsunarstöðvum eins og Sel- lafield sem berst frá Norðursjónum fer minnkandi. Aðeins mjög lítill hluti mengunarinnar kemur frá nú- verandi kjarnorkuverum í kringum Eystrasaltið, sem eru 9 talsins. Geymsluaðferðin ekki nógu örugg? Sérfræðingarnir voru aftur á móti langt frá því að vera sammála um framtíðaráætlanir um varðveislu kjarnorkuúrgangs. Efasemdir voru um aðferðirnar sem verið er að þróa á Norðurlöndum til að geyma geisla- virkan kjarnaúrgang sem fellur til í kjarnorkuverum þar. I fyrra fór ég og skoðaði hvað Svíar eru að gera í þessum efnum í Oskarshamn. Þar ætla þeir að koma úrganginum fyrir í koparhólkum djúpt niðri í berginu. Á fundinum í síðustu viku kom fram mjög hörð gagnrýni á þessa aðferð og efasemdir um að hún væri nógu örugg. Fyrirlesari frá Greenpeace í Finnlandi gagnrýndi þessa aðferð harðlega. Hann taldi hana ekki ör- ugga geymsluaðferð til þess langa tíma sem þarf til. Hún væri ógn við komandi kynslóðir. Eystrasaltsríkin ræða nú sín á milli hvort byggja eigi nýtt kjarnorkuver. Það er ekki sist vegna óreglulegrar af- hendingar á gasi frá Rússlandi að um- ræða um aðra valkosti kemur upp - og í þessu tilfelli er kjarnorka einn af valkostunum. Örugg geymsluaðferð kjarnaúrgangs er vandi sem þau ríki sem nýta sér kjarnorkuna standa nú frammi fyrir. Höfundur erþingmaður Samfylk- ingarinnar í Reykjavík og á sæti í umhverfisnefnd Alþingis og um- hverfis- og auðlindanefnd Norður- landaráðs fyrir íslands hönd. Ihaldið tekið á ippon í matarverðsmálinu Árni Mathiesen fjármálaráðherra kom skotfæralaus til fundar við formann Samfylkingarinnar í Kast- ljósi í kvöld í umræðu um lækkun matarverðs. Meðan Samfylkingin hefur lagt fram tillögUr sem þýða 200 þúsund króna lækkun á matarkostnaði venju- legs heimilis varð Árni að viðurkenna að ekkert samkomulag er í ríkisstjórn- inni um leiðir. Þar er allt upp í loft, og skipulagðir lekar á báða bóga. Árni neyddist til að bera til baka staðhæfingu formanns Framsóknar- flokksins á fundi í Norðvesturkjör- dæminu þar sem Jón Sigurðsson gaf til kynna að Framsóknarflokkurinn hefði unnið sigur í viðureign við íhaldið. Ekki yrði hróflað við tollum á innfluttum landbúnaðarvörum - einungis farið í að lækka virðisauka- skattinn. Einungis viku áður hafði þó Geir H. Haarde lýst miklum efasemdum um lækkun virðisauka- skatts sem hann taldi kaupmenn stinga að mestu í eigin vasa. VEGNA GÓÐRAR SÖLU, HÖFUM VIÐ PIÁSS FYRIR NOKKRA NÝLEGA BÍLA A SVÆÐIOG í SAL M.BENZ E500T 4MATIC ELEGANCE (W211) Arg.04 k.113þ.km. Mnaður Leðursæti m/minni og rafm. Topplúga 18" AMG Álf. + aukadekk, loftpúðafjöðrun, Xenon Ijós, hiti í fram og aftursætum, leiðsögukerfi Cruisecontrol ARS & ESP, spólvörn og stöðuleikakerfi, Airbags, litaðgler, CD-Magasín, dimatecontrol miðstöð, PDCfjarlægðarskynjarar o.fl o.fl ^ílfzmanÁaxlcciúui Stttiíljcwcqi 46 S • 'fcófuiwxji M.BENZ SPRINTER 316 CD114 MANNA HÁÞEKJA Árg.OS Ek.1 þ.km SJÁLFSKIPTUR. VEL BÚINN TOY. LAND CR.90 VX 33" 7 manna Árg.97 Ek.293 þ.km (Langkeyrsla) Nýdekk&Felgur MMC GALANT ES 2,4 LINE 1,6 5 dyra V.650.- Nvskoðaður ARIS 1,0 TERRA 04/04 7-180 SK0DA FELICIA GLX 05/00 Ek. 56 þ. .biiam hvern dag í fjölmiðlum að nú verði Framsókn snúin niður og tollar og vörugjöld lækkuð. Muna menn yfirlýsingu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í spjallþætti með Katrínu Júlíusdó ttur fyrir nákvæm- lega tveimur vikum? Þar lýsti Guð- laugur því yfir að þessar leiðir yrðu farnar af ríkisstjórninni í upphafi þings. Muna menn yfirlýsingu hans í Blaðinu um að það væri Fram- sóknarflolckurinn sem stæði gegn matarverðslækkun? Ætlar Geir að láta uppalning sinn standa eftir sem ómerking þegar Framsókn hefur beygt íhaldið í mál- inu? Ætlar Geir H. Haarde að láta það verða sitt fyrsta verk eftir klúðrið í varnarmálunum að láta Framsókn beygja sig í prinsippmáli um lækkun matarverðs? Sjálfstæðisflokkurinn er í vondum málum. Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Vandlega undirbúnir lekar beggja floldcanna í fjölmiðla sýna hversu veikt samstarf flokkanna er orðið, og hversu mikið vantraust ríkir milli þeirra. Heilindin eru engin lengur, stjórnarflokkarnir sitra á báða bóga trúnaðarmálum sem eru á vinnslustigi - til að þrengja hvor að öðrum. Ég tel engan vafa leika á því að lekarnir eru vandlega hannaðir til að draga úr því frumkvæði sem Samfylkingin hefur tekið varðandi lælckun matarverðs. Sjálfstæðis- flokkurinn var einfaldlega tekinn á ippon í málinu. Það var augljóst á svörum Árna, sem viðurkenndi að í nýja fjárlagafrumvarpinu væri ekki gert ráð fýrir neinum kostnaði vegna lækkunar tolla, virðisauka- skatts eða vörugjalda. Það staðfestir að ríkisstjórnin hleypur í málið korteri fyrir þing án þess að hafa nolckuð undirbúið sig. Þá undanskil ég að vísu Geir H. Haarde, sem sýndi þann dug að leyfa Hagstofustjóra að leggja fram merlcilegar tillögur í sínu umboði. Dugur Geirs þvarr þó skjótt. 1 dag vill hvorki hann né Árni kann- ast við tillögurnar - þó drengja- bandalagið í prófkjörinu í Reykja- vík keppist við að lýsa því annan Vandræða- gangur sjálf- stæðismanna í verðlagsmálum. Össur Skarphóðinsson Stuðningur okkar skiptir máli! Mi Jk I tilefni afFoi Hefur virkilega verið skoðað hvað krakk- arnir hafa áhuga á?. Anna R. Möller [ tilefni af Forvarnardeginum 28. september er ástæða til að staldra við og velta fyrir sér með hvaða hætti við sem eldri erum getum stutt unglinga til þess að takast á við þær freistingar sem lífið hefur upp á að bjóða. I sumar hafa birst auglýsingar þar sem unglingar segjast ætla að bfða, ætla að bíða með að neyta áfengis eða annarra vímuefna. Vissulega er það virðingarvert að fleiri og fleiri ætli að bíða, því komið hefur í ljós að því seinna sem unglingar neita áfengis þvf minni líkur eru á misnotkun. Um leið og vitað er að sumir unglingar ætla að bíða eru aðrir sem ætla sér ekki að prófa. Við sem eldri erum eigum að styrkja krakkana til þess að standa við fyrirætlanir sínar. Félög sem starfa að íþrótta- og æskulýðsmálum þurfa að bjóða upp á tilboð sem henta sem flestum ung- lingum. Margir finna sig vel í hefð- bundum flokkaíþróttum en einnig er vitað um unglinga sem ekki hafa eins mikinn áhuga á keppni en vilja samt vera með. Þvf þurfa íþróttafé- lög að stefna að því að bjóða upp á fjölbreytta möguleika hvort sem krakkar velja hefðbundar greinar eða greinar eða flokka sem ekki krefjast sömu keppni. Vitað er að mesti brotthvarfsaldur úr íþróttum og ýmsu öðru æsku- lýðsstarfi er efri ár grunnskóla. En vitum við af hverju? Getur verið að hægt sé að breyta framboði, til dæmis á íþróttastarfi, til þess að fleiri finni sér farveg innan íþrótta- félagsins eða finni sér farveg í öðru félagsstarfi? Hefur virkilega verið skoðað hvað það er sem krakkarnir hafa áhuga á? Á Forvarnardaginn 28. september verður meðal ann- ars spurt hvað það sé sem þau vilji breyta til þess að fleiri haldi áfram að stunda skipulagðar íþróttir. Stuðningur oklcar skiptir máli, stuðningur til þess að hjálpa ungling- unum til þess að finna sér farveg í skipulögðu íþrótta- eða æskulýðs- starfi sem mun efla þau og styrkja til þess að þeim takist að bíða. Höfundur er í stjórn Ungmennafé- lags Islands

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.