blaðið - 27.09.2006, Qupperneq 24
'T
32 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
blaði6
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Vantar ykkur ekki líka leyniþjónustu?
„Nei, alls ekki. Ég tel enga þörf fyrir leyniþjónustu hér á landi og
allra síst til að njósna um pólitíska andstæðinga."
Steingn'ntur /. Sigfússan,
formaður Vinstri grxnna
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur sagði að leyniþjón-
ustan sem starfaði hér á landi í kalda stríðinu hafi verið
leyniþjónusta Sjálfstæðisflokksins.
HEYRST HEFUR...
A ðdáendur Sykurmolanna
jtxtóku andköf af æsingi
þegar þeir
heyrðu
fréttir af
því að
hljóm-
sveitin ætli
að koma
saman
aftur
og spila á einum tónleikum
Laugardalshöll 17. nóvember
næstkomandi. Fljótlega heyrð-
ust fregnir af því að FL Group
hefði keypt upp tónleikana. En
nú spyrja íslenskir aðdáendur
sjálfa sig að því hvort þeir hafi
möguleika á að kaupa miða á
tónleikana þar sem FL Group
selji líklegast selja miðana
erlendis og tengja miðakaupin
við pakkaferðir til Islands.
Aðdáendur kvíða því að miðar
verði aðeins í takmörkuðu upp-
lagi til íslendinga og að „elítan“
gangi fyrir í miðakaupum.
Þeir sem standa að Airwaves-
hátíðinni kunna að skamm-
ast sín. I fyrra sköpuðust
klukkustunda langar raðir fyrir
utan hvern einasta tónleikastað.
Margir þurftu frá að hverfa.
Aðstandendur voru harðalega
gagnrýndir. Miðafjöldi sem
seldur hafi verið hafi ekki farið
saman við
það rými sem
í boði var
á tónleika-
stöðum og
talað var
um hreina
fégræðgi í því
sambandi. Að auki fór i taug-
arnar á flestum að það virtist
lögmál að tvær raðir skipuðust
fyrir utan hvern stað og önnur
þeirra gekk fyrir. I ár ætla
aðstandendur að selja færri
miða á tónleikana og fjölga
tónleikastöðum. 180 tónlistar-
atriði verða flutt á hátíðinni
og á meðal listamanna sem
koma fram í ár eru The Kaiser
Chiefs frá Bretlandi, og Braz-
ilian Girls frá Bandaríkjunum.
„Ég hef ekki verið nógu dugleg að
hreyfa mig upp á síðkastið,” segir
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, nýsldp-
aður ritstjóri Nýs Lífs.
„En þegar ég er í rétta gírnum
mæti ég í Laugar nokkrum sinnum
í viku, tek á því í tækjasalnum og fer
svo í heita gufu á eftir til að slaka
vel á.” Heiðdís nefnir að henni finn-
ist göngutúrar í Fossvogsdal alveg
ómissandi og þá ekki síður fyrir geð-
heilsuna en líkamlega formið.
„Ég er líka svakalegur sundgarpur,”
bætir hún við og segist fara reglu-
lega í sund til að æfa gamla takta
enda hafi hún æft sund stíft á yngri
árum. „Þótt ég sé farin að kíkja
meira í heitu pottana undanfarið.”
Heiðdís segir nýja starfið leggjast
vel í sig en hún tók við starfinu í
júlímánuði síðastliðnum. „Þetta er
algjört draumastarf,” segir hún.
„Ég hlakka til að halda áfram að
búa til flott og fjölbreytt blað fyrir
íslenskar konur. Erlendu tímaritin
eru góð út af fyrir sig en við þurfum
líka að hafa aðgang að vönduðum
tímaritum á íslensku sem
endurspegla íslenskan veruleika.”
Hún segir löngunina til að hitta
áhugavert fólk og læra af reynslu
annarra drífa sig áfram í starfi og
það gefi sér mikið að fá fólk til að
opna sig um líf sitt. Heiðdís segist
stundum vinna langa vinnudaga.
Slíkt sé alvanalegt á tímariti eins
og Nýju Lífi. „Hérna á Birtíngi er
þetta þannig að við tökum harðar
vinnuskorpur áður en blöðin fara
í prentun. Það koma dagar þar sem
við þurfum að vinna langt fram á
kvöld en svo er rólegra inn á milli.”
Þrátt fyrir það segist hún aðspurð
ekki vera komin með pönnuköku-
rass af langri setu á skrifborðsstól
og ferhyrnd augu af glápi á tölvu-
skjá. „Ég er í góðum málum ennþá
en það er spurning hvað gerist ef ég
geri ekki eitthvað í þessu.”
Heiðdís ætlar sér að koma sér í
gang fljótt og vera dugleg í vetur.
Vissulega sé hægt að komast upp
með að mæta ekki í ræktina, annir
dagsins séu hreyfing í sjálfu sér.
„En það er spurning hversu væn-
legt það er til árangurs,” bætir hún
við. „Ef ég hreyfi mig ekki finn ég
á mér mun, ég hef minni orku og
er seinni í gang á morgnana. Ég er
miklu hressari og skarpari þegar ég
stunda reglulega líkamsrækt.”
dista@bladid.net
Mynd/Ásdís
Hressari og skarpari
ef ég stunda líkamsrækt
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt I reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
7 3 1 6 2
4
6 8 9 1 5
3 5 7 8 1
1 7 5 9 4
2
8 5 2
5 4 7 1 8
1 3 6
2 7 3 1 8 4 9 6 5
1 4 5 6 9 3 2 7 8
8 9 6 2 5 7 4 1 3
3 8 9 7 2 5 1 4 6
4 1 2 8 3 6 7 5 9
5 6 7 4 1 9 3 8 2
6 5 1 9 4 2 8 3 7
7 2 8 3 6 1 5 9 4
9 3 4 5 7 8 6 2 1
eftir Jim Unger
11-19
© Jim Unger/disl. by United Media, 2tX)1
A förnum vegi
Ferðu í
líkamsrækt?
Snævar Freyr Valsteinsson nemi
„Ég fer ekki sérstaklega í líkamsrækt
en ég æfi fótbolta.“
Malin Flink starfsmaður
Hjálpræðishersins
„Ég fer ekki í ræktina á íslandi enda
finnst mér það fulldýrt."
Brynjar Jóhannesson starfsmaður
Hagkaups „Ég fer einu sinni í viku í
ræktina og held mér í hörkuformi."
Jósef Ladner nemi
„Ég fer tvisvar i viku. Það er fírit að
vera í góðu formi.
Sindri Brjánsson nemi
„Nei, bara í íþróttir í skólanum.'1
Þetta var frábært partí, Rabbi.